Morgunblaðið - 16.09.2011, Page 39
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Viðráðanlegur og þægilegur í umgengni.
Hvað gerir þú til þess að gera heiminn bet (spyr
síðasti
aðalsmaður, Gísli Galdur) Sleppi sumum fiskum
sem ég veiði.
Shakespeare eða ... ja, er einhver annar?
Flestir aðrir.
Hverjir eru helstu áhrifavaldar þínir í listum?
Frank Zappa, Gunnar Helgason og Chaplin.
Hvaða plötu færðu aldrei nóg af?
Steve McQueen með Prefab Sprout.
Hvað er leikrit?
Það sem gerir hið ósýnilega sýnilegt.
Er gaman á hestamótum? Örugglega.
Skák eða félagsvist?
Bæði. Rúberta samt best.
Geturðu lýst dansstíl þínum á djamminu?
Agaður.
Hvað færðu ekki staðist? Hlaðborð.
Áttu þér leyndan hæfileika og ef svo er þá
hvern?
Bý til góða íssósu.
Ertu ljón?
Já um helgar í Borgarleikhúsinu. Tvíburi á
virkum.
Ef þér hefði staðið til boða að syngja við brúð-
kaup Vilhjálms og Katrínar, hvaða lög hefðir þú
sungið og af hverju?
„The Queen is dead“ með The Smiths og
„Þorparinn“. Flott lög með boðskap sem hæfir
þessu fólki.
Hvað fær þig til að skella upp úr?
Allskonar rugl.
Hvað kanntu síst að meta í eigin fari?
Nöldra stundum og pirrast eins og gamall karl.
En best að meta?
Kálfana.
Ef þú ættir eina ósk, hvers myndirðu óska þér?
Að ég gæti spilað á gítar í partíi eins og Stebbi
Már.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann?
Er það rétt sem ég hef heyrt að Jóhannes
Haukur hafi verið í ræktinni?
Flestir aðrir en
Shakespeare
Leikarinn Halldór Gylfason er aðalsmaður vikunnar en hann fer með hlutverk
ljónsins í Galdrakarlinum frá Oz sem Borgarleikhúsið frumsýnir á morgun
Gaman Halldór „Ljón“ Gylfason í góðu atlæti nokkurra kornungra íbúa Oz.
Hljómsveitin For a Minor Reflec-
tion hefur lokið upptökum á nýrri
stuttskífu sem kemur út í október í
ár og ber nafnið EP. Skífan hefur
að geyma fjögur lög sem tekin voru
upp undir stjórn Flex Árnasonar í
ReFlex Studio í haust. Platan er
gefin út af hljómsveitinni sjálfri,
líkt og síðustu plötur og dreift af
Record Records á Íslandi um víða
veröld og Proper Music í Evrópu,
að því er fram kemur í tilkynningu
en IC Records sér um dreifingu á
iTunes og öðrum stafrænum miðl-
um.
Hljómsveitin fjármagnaði upp-
tökurnar með því að selja EP í for-
sölu á vefsíðunni PledgeMusic.com
en á þeirri síðu er einnig hægt að
kaupa lopapeysur sem amma Adda,
vinar hljómsveitarmeðlima, prjónar.
Þeir sem kaupa EP á vefsíðunni fá
plötuna fyrr en aðrir í hendur og
leggja Læknum án Landamæra lið
því hljómveitin gefur 15% af
tekjum sem hún aflar í gegnum síð-
una til þeirra samtaka.
Þar með er ekki allt upp talið því
hljómsveitin er á leiðinni til Kína
og mun spila á hátíðinni Black Rab-
bit. Af öðrum hljómsveitum og tón-
listarmönnum sem þar koma fram
má nefna Ludacris, Thirty Seconds
to Mars og Grandmaster Flash.
For a Minor Reflection
gefur út og spilar í Kína
For a Minor Reflection Fjórmenningarnir bregða skemmtilega á leik.
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
efni loks rætast. Í viðtali við Börk
Gunnarssonar kom þetta m.a. fram:
„Þetta er búið að vera draumur hjá
mér síðan ég var unglingur. Elsta
lagið á disknum er Laminn í Pa-
nama en ég samdi það þegar ég var
25 ára.“ Í dómi Arnars Eggerts seg-
ir: „Umbúðir allar eru hinar smekk-
legustu en innihaldið svona upp og
ofan, eins og svo oft í tilfelli svona
platna. Lögin eru tiltölulega einföld
og saklaus en líða engu að síður
ljúflega um eyrun, þökk sé einvala
liði hljóðfæraleikara sem aðstoða
Sævar við flutninginn.“
Sævar Magnússon, er gaf út plöt-
una Laugardagur í apríl í sumar,
mun kynna verk sitt á Café Rosen-
berg í næstu viku. Tónleikarnir
verða miðvikudagskvöldið 21. sept-
ember og er aðgangseyrir 1500 kr.
Með Sævari leika þeir Sigurgeir
Sigmundsson (stálgítar), Kjartan
Guðnason (trommur), Samúel Ingi
Þórarinsson (gítar) og Jökull Jörg-
ensen (bassi). Sjálfur syngur Sævar
og leikur á kassagítar. Sævar
Magnússon er annars 51 árs skrif-
stofumaður sem vinnur hjá Kaupási
og lét gamlan draum um útgefið
Skúffuskáld Sævar Magnússon ætlar
að leika efni af plötu sinni á Rósenberg.
Sævar kynnir plötu sína
Jessie J, Adele og Arctic Monkeys
fá flestar tilnefningar til Q-
verðlaunanna svokölluðu, sem eru
veitt af samnefndu bresku tónlist-
armánaðarriti. Eru þessir aðilar til-
nefndir til þrennra verðlauna hver.
Coldplay, Ed Sheeran og tvöfaldi
Mercury-verðlaunahafinn PJ Har-
vey eru svo á meðal þeirra nafna
sem tilnefnd eru í tveimum flokk-
um. Muse, Coldplay, Arctic Mon-
keys, Kasabian, Arcade Fire og U2
keppa þá um verðlaunin um hver sé
besta hljómsveit i heimi, verðlaun
sem eru óneitanlega þrungin dýpt
og pressu. Tilkynnt verður um sig-
urvegara 24. október næstkomandi.
Bestu nýliðarnir eru m.a. talin vera
þau Katy B og James Blake en þau
voru tilnefnd til Mercury-verð-
launanna fyrir frumburði sína.
Plata P.J. Harvey, Let England
Shake, er talin á meðal bestu platna
ársins ásamt Suck it and See (Arc-
tic Monkeys), Bon Iver (Bon Iver),
Build A Rocket Boys! (Elbow) og
Skying (The Horrors). Alþjóðlegar
stjörnur (ekki breskar sem sagt)
eru m.a. Lady Gaga, Katy Perry og
Foo Fighters.
Töffari Jessie J hefur komið inn í breskt
tónlistarlíf eins og tundurspillir.
Konurnar eiga Q-verðlaunin
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
I DON´T KNOW HOW SHE DOS IT KL. 6 - 8 - 10 L
COLOMBIANA KL. 6 - 8 - 10 16
I DON´T KNOW HOW SHE DOES IT KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L
I DON´T KNOW HOW... Í LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L
WARRIOR KL. 8 - 10.50 16
SPY KIDS 4D KL. 3.30 - 5.50 L
OUR IDIOT BROTHER KL. 8 - 10.10 14
STRUMPARNIR 2D KL. 3.40 - 5.50 L
STRUMPARNIR 3D KL. 3.30 - 5.40 L
30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14
I DON´T KNOW HOW SHE DOS IT KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
COLOMBIANA KL. 8 - 10.20 16
MELANCHOLIA KL. 6 - 9 12
Á ANNAN VEG KL. 6 - 8 10
SPY KIDS 4D KL. 5.50 L
30 MINUTES OR LESS KL. 10 14
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
WARRIOR Sýnd kl. 7 - 10
COLOMBIANA Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
THE CHANGE-UP Sýnd kl. 5:50 - 8
THE DEVILS DOUBLE Sýnd kl. 10:15
SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 4
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 4
STRUMPARNIR ÍSL TAL Sýnd kl. 4
Í FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI!
BÍÓMYND
Í FJÓRVÍDD!
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ ÞEIM
SÖMU OG FÆRÐU OKKUR „TAKEN“
FRÁ LEIKSTJÓRA
WEDDING
CRASHERS
OG HANDRITS-
HÖFUNDUM
THE HANGOVER
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Hvar í strumpanum
erum við ?
Sýnd í 3D með
íslensku tali