Morgunblaðið - 16.09.2011, Qupperneq 40
Listamaður „Svo er þetta líka hugleiðing um íslenska listamanninn sem lætur sig dreyma inni á kaffihúsinu.“
eftir Fellini sem fjallar líka um
mann í bransanum. Svo er þetta líka
hugleiðing um íslenska listamannin
sem lætur sig dreyma inni á kaffi-
húsinu.“
Lokametrarnir
Elvar segir að þeir félagar hafi
verið orðnir þreyttir á því að bíða
eftir því að eitthvað myndi gerast
upp á styrki og slíkt og ákváðu því
að kýla á þetta og gera bíómynd fyr-
ir sem minnst.
„Þetta byrjaði a.m.k. mjög ódýrt
en við fórum að geta fjármagnað
betur eftir því sem á leið. Við byrj-
uðum á ódýrustu tökunum og end-
uðum á þeim dýrustu. Upptökur
hafa staðið yfir síðan sumarið 2010.“
Elvar segir að framleiðandinn
Valur Hermannsson sé nú genginn
til liðs við þá á lokametrunum
„Nú getum við sent grófklipp af
myndinni til kvikmyndasjóðs, erum
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Elvar Gunnarsson hóf sinn listræna
feril sem einn af stofnendum XXX
Rottweilerhunda en síðar meir átti
hann eftir að verða hluti af Af-
kvæmum guðanna, einni allra bestu
rappsveit sem hér hefur starfað. Það
var svo árið 2003 sem hann hóf nám í
kvikmyndaskóla Íslands og nú, átta
árum síðar, hillir undir fyrstu mynd
hans í fullri lengd. Elvar hefur áður
leikstýrt tónlistarmyndböndum,
m.a. fyrir aðila eins og Mugison,
Maus og Benna Hemm Hemm.
„Eftir að ég kláraði skólann fór ég
að kenna í honum og endaði sem
deildarstjóri yfir kjarnanámi,“ segir
Elvar. „Ég kynntist Guðfinni í skól-
anum og við byrjuðum að vinna að
mynd sem kallast Glæpasaga en hún
er ókláruð. Við erum báðir atvinnu-
lausir og fórum að skrifa Einn árið
2009 til að hafa eitthvað fyrir stafni.
Myndin fjallar um mann sem er að
skrifa kvikmynd, byggða á sinni eig-
inn ævi. Hann er svo beðinn um að
breyta ákveðnum hlutum af fram-
leiðandanum og þegar hann gerir
það þá fer líf hans að breytast í sam-
ræmi við það. Þetta er svört kó-
medía og titillinn er nett vísun í 8 ½
orðnir styrkhæfir. Við getum sýnt
fram á að við getum gert mynd, en
það höfðu ekki margir trú á þessu í
upphafi. Enginn reyndar og margir
hafa helst úr lestinni. Ég, Guðfinnur,
aðalleikarinn Arnþór Þórsteinsson
og harðsnúið lið tökufólks höfum
verið að draga vagninn undanfarna
mánuði.“
Hugur í mönnum
Elvar er þriggja barna faðir og
hann viðurkennir að oft sé þetta
mikið púsluspil.
„Þetta er kannski erfiðast fjöl-
skyldulega séð. Að ráðstafa tím-
anum. Þetta endaði líka stærra en
maður ætlaði sér. En það hefur aldr-
ei verið nein krísa, það hefur verið
hugur í okkur allan tíma.“
Stefnt er að frumsýningu í febr-
úar eða mars á næsta ári. Eftir það
verður stefnt á að klára Glæpasögu,
sem er stærri í sniðum en Einn, að
sögn Elvars og hann segist vera orð-
inn ansi óþreyjufullur eftir því að
klára það dæmi.
„Ég verð að viðurkenna það, að
fólk á það til að mikla þetta fyrir sér.
Þetta er ekki það mikið mál. Á
tækniöld snýst þetta dálítið um
föndur, iðnaðurinn er ekki eins rosa-
lega þunglamalegur og áður.“
Allir eiga sér drauma
Kvikmyndin
Einn fjallar um
mann sem er að
vinna að kvik-
mynd Elvar
Gunnarsson og
Guðfinnur Ýmir
eru höfundar
Hugsi Elvar og Guðfinnur Ýmir.
facebook.com/einnkvikmynd
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2011
HHHH
„ALLIR Á SVEPPA!“
- A.E.T MORGUNBLAÐIÐ
DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 16 LARRY CROWNE kl. 8 2D 7
DRIVE kl. 3:40 - 8 - 10:10 2D VIP HORRIBLE BOSSES kl. 5:50 VIP- 8 -10:10 2D 12
ALGJÖR SVEPPI kl. 3 - 4 - 4:30 - 6 - 6:30 - 8:30 2D L GREEN LANTERN kl. 10:20 2D 12
FRIGHT NIGHT kl. 10:30 3D 16 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D 7
DRIVE kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 16 FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:20 3D 14
ALGJÖR SVEPPI kl. 5 2D L BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 5:30 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:40 2D 7 HARRYPOTTER7 kl. 5 3D 12
FRIGHT NIGHT kl. 8 - 10:30 3D 16
/ EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr.
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS
„DRIVE ER SANNKALLAÐ
MEISTARAVERK“
- TIME OUT NEW YORK
„DRIVE ER BESTA MYND
ÁRSINS 2011“
- FILMOPHILIA.COM
MEÐ TÆPLEGA 9
Í EINKUNN
Á VIRTASTA
KVIKMYNDAVEF
HEIMS - IMDB.COM
SÝND Í KRINGLUNNI
HHHH
„EIN SÚ BESTA SEM ÉG HEF
SÉÐ Á ÞESSU ÁRI“
-KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„ÞESSI MYND ER ROSALEG
OG ENGINN ÆTTI AÐ FARA
ÚT ÓSÁTTUR“
-SCENE.IS
Að hlusta á geisladiskinnSagan með hljómsveit-innni 1860 er dálítið einsog að
sitja í rútu á leið út
í sveit og virða fyr-
ir sér íslenskt
landslagið fyrir ut-
an. Hoppa síðan út
á rykugum vegi og
tjalda í fallegri,
grænni lautu, grilla, spila á gítar og
syngja fram á nótt. Líklegast er
þessi tilfinning af tónlistinni nokkuð
eðlileg í ljósi þess að eitt lagið heitir
„Snæfellsnes“ og fjallar jú um ferða-
lag á það ágæta landsvæði. Þeir fé-
lagar slá líka afar þjóðlegan tón í
fyrsta lagi plötunnar „Lausamjöll“
sem hljómar einfaldlega eins og
rammíslenskt þjóðlag.
Fyrstu lögin á plötunni eru sungin
á íslensku en síðan tekur enskan við
og þar er að finna nokkur hugljúf lög
eins og „For you, forever“ og
„Alunde“. Á plötunni er að finna
skemmtilegt sambland af lögum sem
mætti flokka sem klassísk, íslensk
lög í anda Spilverksins og svo önnur
dálítið poppaðri. Hljómsveitin er
óhrædd við að blanda saman ólíkum
stefnum á þennan hátt og það gerir
plötuna mjög áhugaverða og áheyri-
lega.
Þjóðlegt
popp í
sveitarferð
Geisladiskur
1860/Sagan
bbbmn
MARÍA
ÓLAFSDÓTTIR
TÓNLIST