Morgunblaðið - 16.09.2011, Side 44
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Seldi íbúð fyrir 32 krónur
2. Ben Stiller á Íslandi
3. Fær ekki leiðréttingu mála
4. Andlát: Árni Árnason
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngvarinn Freddie Mercury hefði
orðið 65 ára á þessu ári en hann lést
24. nóvember árið 1991. Mercury
verður minnst á tónleikum í Hörpu og
mun fjöldi íslenskra tónlistarmanna
flytja lög Mercury á þeim. Miðasala
hefst 22. september.
Mercury minnst á
tónleikum í Hörpu
Come to Harm
(Skaði) er stutt
spennumynd í
leikstjórn Barkar
Sigþórssonar. Í
aðalhlutverki er
Björn Thors og
tónlistin er eftir
Daníel Bjarnason.
Myndin verður
forsýnd í Bíó Paradís á miðvikudag.
Hún fer svo í sýningar samtímis á
RIFF og Nordisk Panorama í lok mán-
aðarins.
Come to Harm for-
sýnd í Bíó Paradís
Ný heimildarmynd Cameron Crowe
verður sýnd í Háskólabíói, sal 1, á
þriðjudag. Uppselt er á þá sýningu og
hefur salur 2 verið tekinn undir sýn-
ingar líka. Það er greinilegt að grugg-
sveitin góða á sér fjölda
harðsnúinna aðdá-
enda hér sem
annars
stað-
ar.
Uppselt á Pearl Jam
í Háskólabíói
Á laugardag
Hæg austlæg átt. Dálítil súld eða rigning með austur- og suðaust-
urströndinni. Bjart með köflum á Norður- og Vesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðaustan 5-13 m/s og rigning, einkum suðaustanlands, en skýjað
og þurrt að kalla norðanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.
VEÐUR
„Við erum virkilega ósáttir.
Þetta var leikur sem við átt-
um að vinna og spilaðist
þannig. Við fengum aragrúa
af færum en nýttum þau
ekki,“ segir Grétar Sigfinn-
ur Sigurðarson, varnar-
maður KR-inga. Þeir komust
aftur í efsta sæti Pepsi-
deildar karla en gerðu þó
aðeins jafntefli, 1:1, við
Grindvíkinga á heimavelli.
Grindavík fékk dýrmætt
stig í fallbaráttunni. »3
Ósáttir KR-ingar á
aftur á toppnum
Ingi Björn Albertsson segir að það
hafi aðeins verið tímaspursmál hve-
nær Tryggvi Guðmundsson myndi ná
markameti sínu í efstu deild í fótbolt-
anum. Tryggvi jafnaði 24 ára gamalt
met Inga í gærkvöldi þegar hann
skoraði seinna mark
ÍBV sem tapaði 3:2
fyrir Stjörnunni.
„Það er alveg
ljóst að hann
bætir það,“
sagði Ingi við
Morgun-
blaðið. »1
Ingi segir ljóst að
Tryggvi bæti metið
„Þetta var frábær sigur á sterku liði
sem var hársbreidd frá því að komast
í Meistaradeildina,“ sagði Rúrik
Gíslason. Hann tók þátt í óvæntum
útisigri OB frá Danmörku gegn Wisla
Kraków í Póllandi í Evrópudeild UEFA.
Íslendingaliðin FC Köbenhavn og AZ
Alkmaar unnu líka sína leiki en Eiður
Smári Guðjohnsen mátti þola 4:1 tap
á æskuslóðunum í Brussel. »1
Þetta var frábær
sigur á sterku liði
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Stelpurnar í kvennalandsliðinu í fót-
bolta heimsóttu Barnaspítala
Hringsins í gær og færðu spítalanum
treyju að gjöf, áritaða af öllum lands-
liðskonunum. Er það fyrsta kvenna-
treyjan sem Barnaspítalinn fær að
gjöf en spítalinn hefur fengið gefins
nokkrar áritaðar treyjur frá karla-
landsliðinu í fótbolta.
Kvennalandsliðið er nú að undir-
búa sig fyrir leikina tvo í undan-
keppni Evrópumótsins 2013 sem fara
fram á Laugardalsvelli á morgun og
miðvikudag. Með glöðu geði gerðu
þær hlé á undirbúningnum fyrir leik-
ina til að heimsækja börnin og ung-
lingana á Barnaspítalanum, sem tóku
þeim fagnandi.
Vonandi góð fyrirmynd
„Við ákváðum að heimsækja
krakkana og segja þeim frá komandi
leikjum. Þeir eru áhugasamir um
okkur og glaðir með að við skulum
hafa kíkt á þá. Þeir segjast ætla að
horfa á leikinn á laugardaginn,“
sögðu landsliðskonurnar Dóra María
Lárusdóttir og Sara Björk Gunn-
arsdóttir, spurðar út í heimsóknina.
„Það var kominn tími til að kvenna-
landsliðið kæmi á Barnaspítalann.
Auk treyjunnar gáfum við þeim
kennslumyndband í fótbolta sem
KSÍ gaf út í sumar og fleira til að
gleðja.“
Þær vona að þær séu góð fyrir-
mynd fyrir börnin og unglingana
sem dvelja á spítalanum. „Við vonum
að við séum að gleðja þau og styðja.
Svo höfum við vonandi vakið áhuga á
fótbolta og sýnt þeim að það skilar
árangri að leggja hart að sér og hafa
metnað.“
Söngvari og fótboltastelpa
Ein þeirra sem spjölluðu heilmikið
við landsliðsstelpurnar var Maríanna
Mist Gestsdóttir, fjögurra ára. Henni
fannst flott að fá fótboltastelpurnar í
heimsókn enda gáfu þær henni áritað
plakat, mynddisk og KSÍ-fána. „Mig
langar til að verða söngvari, smiður
og fótboltastelpa,“ svaraði Maríanna
þegar blaðamaður spurði hvort hún
hygðist leggja knattspyrnu fyrir sig.
Landsliðskonurnar voru ekki
einu afreksmennirnir í salnum því
Gunnar Ingi Harðarson er í 15
ára landsliðinu í körfubolta og af-
rekshóp unglinga í frjálsum
íþróttum. „Það var gaman að fá
þær í heimsókn. Ég hef allt-
af fylgst með leikjunum og
ef ég hef orkuna í það
ætla ég að horfa á leik-
inn á laugardaginn.
Ég býst við að þær
vinni,“ sagði Gunnar
Ingi.
Fyrsta kvenna-
landsliðstreyjan á
Barnaspítalann
Morgunblaðið/Eggert
Gaman Margrét Lára ræðir við Maríönnu Mist Gestsdóttur og mömmu hennar á Barnaspítala Hringsins í gær.
Knattspyrnukonurnar Dóra María og Sara Björk
segja komandi leiki leggjast vel í liðið. „Við erum
allar mjög spenntar fyrir leikjunum. Það er
skemmtilegast að spila heima og við stefnum allt-
af að því að vinna, sama hver mótherjinn er.“
Kvennalandsliðið í fótbolta leikur gegn Nor-
egi á Laugardalsvelli á laugardaginn kl. 16 og
gegn Belgíu á miðvikudaginn kl. 19.30. Sýnt
verður beint frá leikjunum í Sjónvarpinu.
Leikirnir eru í undankeppni EM 2013
en Ísland hefur leikið einn leik til þessa
í riðlinum, lagði Búlgara fyrr á þessu
ári.
Stefna alltaf að því að vinna
LANDSLIÐ KVENNA Í KNATTSPYRNU
Fyrirmyndir Sara
Björk og Dóra María.
Fengu landsliðið í heimsókn