Líf og list - 01.05.1952, Síða 2

Líf og list - 01.05.1952, Síða 2
JANÚAR 1952. MIKIL FLÓÐBYLGJA gengur yt- ir lítinn bæ. Um hvað tala karlar og kerlingar næstu daga? Um flóðbylgj- una. Auðvitað. Oss verður hið sama Eftir bókaflóð jólanna verðum vér að tala um bækur og getum þó ekki minnzt nema á örfáar, enda höfum vér ekki lesið allt, sem þó hefur vakið umtal, eins^og til dæmis Sælu- viku Indriða Þorsteinssonar. Mikil lifandi skelfingar ósköp hljóta að vera af kláminu í þeirri bók, úr því að Hagalín blöskrar. Skal nú geta nokkurra bóka og byrja á yngsta höfundinum, Jökli Jakobssyni, manni milli tektar og tvítugs. Um bók hans Tæmdan bikar er náttla ekki afar mikið að segja, en hún er hress og djörf, og ef oss missýnist ekki, lofar góðu, já mjög góðu um höfund sinn, þegar honum vex vizka með vexti. Eyra og auga hefur hann i lagi. Og má Jökull vel við una, þótt vér hrósum honum ekki meira að sinni. Egill Skallagrímsson fékk andaregg og þrjá kuðunga fyr- ir frumsmíð sína í bókmenntum, en varð seinna slíkt ofurmenni í skáld- skap, að hann þá hvorki meira né minna en höfuð sitt af bragarlaun- um, og hafði þó ekki þann háralit, sem æskilegastur er stórskáldum. Þá er það Ólafur Jóhann Sigurðs- son og hans Vorköld jörð. Þetta er mjög góð saga, prýðisvel unnin og í henni mikil ljóðræn fegurð og sál- skilningur. En það skyldi þó ekki vera, að hún væri of vel unnin, að höfundurinn vaki yfir sjálfum sér með of grimmri gagnrýni. Maður fær stundum þá tilfinningu, að höfundurinn sé kúgaður af sjálfs sín aga og þori varla að láta eins og hann lystir fyrir sjálfum sér. Offágun listaverks getur hæglega minnt á dauðamörk. En sem sagt, þetta er bara grunur, og flest viljum vér segja gott um þessa bók. Og heiður sé Ólafi Jóhanni fyrir það mál, sem hann hefur nú orðið á valdi sínu. Sá er nú ekki blankur í íslenzku fremur en Helgi Hjörvar. Þó kemur það fyrir, að orð liggja utan á hon- um, en eru honum ekki samlifuð (aldrei svo hjá Helga), eru orður fremur en orð. Og að lokum Jón Björnsson, vinur Lífs og listar. Þeim var ég verst, stendur þar. Valtýr á grænni treyju þykir oss skemmtileg saga aflestrar, spennandi, allvel sögð, persónurmarg- ar lifandi og ekki ófróðlegar mann- gerðir. Með gleði tökum vér undir með þeim ritdómurum, sem lofað hafa Jón Bjömsson fyrir þessa bók og telja hana beztu bók hans. En nú má hann alvarlega vara sig. Hann var bráðheppinn með söguefni í þetta skipti og má vel fyrir sjá, að svo verði áfram. Og margan galla finnum vér á þessari bók. Illa kunn- um vér þessum hrærigraut af lands- sögu, persónusögu og menningar- sögu 18. aldar innan um skáldsög- una. Síðasti hluti, eftir að Valtýr fyrri er fallinn, er einhvern veginn eins og tréfótur, sem skrúfaður er á lifandi líkama. Og skelfing gloprast Valtýr yngri á Eyjólfsstöðum ófim- lega niður úr höndum skapara síns, eins og þó var til hans vandað. Að lokum er svo mjög alvarleg að- finnsla, sem vér berum fram í trausti þess, að Jón Björnsson telji það vinsemdarvott heldur en hitt. Höfundurinn þarf að læra mál sitt miklu betur og á sér engrar undan- komu auðið frá því. Því fer mjög fjarri, að hann sé vaxinn frá fóstur- máli sínu, dönskunni, og mætti sanna þetta með mýmörgum dæm- um. Hér vantar gagnrýni á sjálfan sig, hörku við sjálfan sig og virðingu fyrir tungunni, þá virðingu, sem er conditio sine qua non fyrir islenzkan rithöfund. Og stíllinn þarf að rísa, bera höfuðið hærra, hefja sig af blessuðu undirlendinu. Allt þetta getur Jón Björnsson, alvarlega hugs- andi og leitandi maður. En eitthvað brestur á, ef til vill smekk og hörku, ef til vill bara það, að einhver segi þetta við hann. Jæja, þá höfum vér sagt það, komi hvað sem koma vill. Um prófarkalestur ÚR ÞVÍ að vér höfum minnzt á bók Jóns Björnssonar, er ekki úr vegi að víkja að prófarkalestrinum á henni. Þótt liann sé óviðkomandi bókmenntajplai, er hann alténd hreinlætisatriði, sem öllum kemur við. Þessi bók er morandi af villum, sem stafa af lélegum prófarkalestri. Með vilja nefnum vér þetta ekki prentvillur, því að flestar stafa ber- sýnilega af fákunnáttu prófarkales- arans i lögboðinni stafsetningu, og taki þeir til sín, sem eiga. Prófarka- lesarinn er til dæmis verri en vit- laus í setunni. Til er gamalt fólk óskólagengið, en kann þó að draga til stafs, og heldur, að ufsílon og seta séu viðhafnarstafir, sem nota eigi í þeim orðum, er maður vill sýna sér- staka virðing, og má meta þá kurt- eisi að bjóða ekki sjaldyrðum og faguryrðum sömu larfana og húð- þrælkuðum hversdagsorðum málsins. Þetta er surhsé til að gera mun á lærðum og leikum. Þeir hjá Norðra virðast halda, að seta í miðmyndar- endingum sagna sé til skrauts, og geti menn látið smekk eða geðþótta ráða, hvenær hún sé notuð. Er þvi líkast sem prófarkalesarinn hafi haldið á ákveðnum fjölda af setu í hendi sér og sett þær í miðmyndar- endingarnar að vild sinni, eins og þegar skrautkúlur eru hengdar á jólatrésgreinar. Gamalt fólk má nota sín ufsílon og setur að vild í sendi- bréfum til barnabarna sinna, því að það gerir það af hæversku, en atvinnuprófarkalesarar mega það ekki, því að þeir gera það af van- þekkingu, sem er óleyfileg í þeirri stétt. Framh. á bls. 41. 2 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.