Líf og list - 01.05.1952, Qupperneq 20
listasöfn, aldrei komið út fyrir Poll-
inn, ekki eldri en tvo vetur yfir tví-
tugt, það er óvenjulegt, að hann leiki
hér á hörpu málaragyðjunnar eins og
harðreyndur fullþroska listamaður.
Islcnzfy myndlist jer etyii á hrepp-
inn, ej hún eignast noWra Sverra
Haraldssyni í tíiðbót.
30. apr. 1952
STEINGRÍMUR.
KOMPOSITION í TRÉ
eftir Sverri Haraldsson
Hljóðlát sýxiing Hjörleifs Sigurðssonar
T TNGUR MÁLARI, nýkominn hingað eftir
nokkurra ára nám í Svíþjóð og Frakklandi og
víðar, opnaði hljóðláta sýning á Listvinasalnum
3. þ. m. Hann heitir Hjörleifur Sigurðsson, og hef-
ur aðeins sýnt hér einu sinni áður, á stóru yfirlits-
sýningunni í fyrra, þeirri, er til Noregs fór. Verkin
eru aðeins þrjátíu talsins, og slíkt er kostur, ekki
mega þau fleiri vera vegna salarrýmisins, og ann-
að: því færri þeim mun vandaðri heildin, betra
val með öðrum orðum.
20
LÍF og LIST