Teningur - 01.01.1987, Síða 18
Hallgrímur Helgason
A meðal Starn - bura
Starn Twins: Kristur (teygður), I9H5 - '86, 28x142 ins, silfur - prent, (Stux - galleri, N. Y. og Boston)
Doug og Mike Starn eða „Thc Starn
Twins“ eru fæddir í Atlantic City í New
Jersey-ríki Bandankjanna árið 1961 og
hófu þegar á unglingsárum sínum að
taka ljósmyndir, framkalla þær og
stækka. Síðar lá leið þeirra í Museum -
skólann í Boston þar sem þeir stunduðu
nám á árunum 1981-1985 og luku með
mikilli viðurkenningu. Það sama haust
(85) héldu þeir sína fyrstu einkasýningu í
Stux-galleríinu í Boston og aðra vorið
1986 í nýopnuðu útibúi þessíNew York.
Hlaut sú sýning verðskuldaða athygli,
umtal og lof gagnrýnenda. „Hlaupið!
Gangið ekki! Missið ekki af henni!“
Sagði Gary Indiana í Village Voice.
Bræðurnir ramba því nú á barmi frægð-
arinnar.
Eg hitti þessa lágvöxnu en um leið
prúðhærðu tvíbura í vinnustofu sinni
sem jafnframt mun hýsa hið nýja gallerí
þeirra ,,Confusion/Order“ sem að sögn
þeirra á að verða það besta á austur-
ströndinni. Það er 17. júní og það er 88
gráður og það er Boston:
Eruð þið ekki samt nokkuð evrópsku-
legir?
Jú við höfum alltaf fundið fyrir ein-
hverskonar skyldleika án þess að ég viti
Starn Twins: Tvöfaldað og snúið Stark por-
trett, 1985 - '86, 84x84 ins, tónað silfur - prent
með skosku límbandi. (Stux - galleri N. Y. og
Boston)
nákvæmlega hvernig hann sé til kominn.
Kannski eru það þessir köldu vetur sem
geysa hér í Boston og gera hana ev-
rópskari en aðrar borgir Bandaríkjanna.
Pið fóruð til Parísar?
Já en þó verk okkar hafi verið jafn
, ,evrópuleg“ áður held ég að sú ferð hafi
haft talsverð áhrif á okkur. T.d. það
hvernig við hengjum myndirnar á sýn-
ingum, en sú aðferð er fengin beint úr
Louvre-safninu.
Hún þótti mér einmitt nokkuð nýstár-
leg?
Já nútímastíllinn á upphengingum er
orðinn nokkuð úreltur. Stóru verkin hér
og litlu myndirnar þar og allt grúppað
eftir temum og beinum línum. En þann-
ig er einmitt verið að gera upp á milli
verkanna. Hjá okkur var það ein megin-
hugmyndin að litlu verkin væru alveg
jafn mikilvæg og þau stóru. Þá er okkur
líka mjög illa við þessa yfir-lýsingu sem
er alltof algeng á sýningum nú til dags og
þess vegna reynum við að kontrólera
hana.
16