Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 2
AVARP GEGN UNDIRBUNINGI
KJ ARNORKUST YRJ ALD AR
Raunveruleg hætta af kjarnorkustyrjöld vofir nú yfir öllum
þjóÖum, yfir hverju heimili, hverjum einstaklingi. Birgðum kjarn-
orkuvopna er hrúgað upp á ótal herstöðvum. Samþykkt ráðs-
fundar Atlantshafsbandalagsins 18. des. 1954 um að beita
kjamorkuvopnum, ef til styrjaldar kemur, er örlagarík ákvörð-
un. Hershöfðingjar og forráðamenn þjóða hóta því opinskátt að
beita kjamorkuvopnum. Hins vegar er á valdi almennings að
hindra nýja styrjöld með nógu öflugum alþjóðlegum mótmæl-
um. Um allan heim er nú verið að safna undirskriftum að áskor-
un heimsfriðarráðsins frá 19. janúar 1954 um eyðileggingu á
birgðum kjarnorkuvopna í öllum löndum og um bann við fram-
leiðslu þeirra. Slíkt bann er fyrsta skrefið til almennrar afvopn-
unar og til friðar í heiminum. Ávarpið er á þessa leið:
„Ýmsar ríkisstjórnir undirbúa nú kjarnorkustyrjöld. Þær leit
ast við að sannfæra almenning um, að hún sé óhjákvæmileg.
Beiting kjarnorkuvopna mundi leiða af sér allsherjar eyð
ingu í styrjöld.
Vér lýsum yfir því, að hver sú ríkisstjórn, sem byrjar kjarn-
orkustyrjöld, hlýtur að fyrirgera trausti þjóðar sinnar og kallo
yfir sig fordæmingu allra annarra þjóða.
Vér munum nú og framvegis standa í gegn þeim, sem undir-
búa kjarnorkustríð.
Vér krefjumst þess, að birgðir kjarnorkuvopna í öllum lönd-
um verði eyðilagðar og framleiðsla þeirra nú þegar stöðvuð."
íslendingar eiga líf sitt undir því, að friður haldist í heimin-
um. í kjarnorkustyrjöld getur ísland orðið í frernstu víglínu, og
ekki þarf nema eina vetnissprengju til að tortíma miklum hluta
þjóðarinnar.
Birtingur lýsir yfir stuðningi við ofangreint ávarp og heitir á sem flesta
íslendinga að samþykkja það með undirskrift sinni.