Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 40

Birtingur - 01.04.1955, Qupperneq 40
morgundagsins. Hann er hinn eilífi andspyrnumaður, „hamar í einskis hendi“, sem lýsir sjaifum sér vel í bókartitlinum „Fureur et Mystére” (Ofsi og lcyndar- dómur). Ljóðheimur Chars er mjög afmarkaður og snýr að hinni upprunalegu náttúru og manninum, sem berzt hörðum höndum fyrir lífi sínu. Fastmótuð ljóðlist hans minnir á ávexti mcð grjótharða skurn; cn þegar skurn- in hefur verið brotin og komizt að kjarnanum eru þeir mettaðir sól og moid og hrjóstrugum heiðum. Char sameinar næmni súrrealista á innsta leyndardóm allra fyrirbæra og tilfinningu existensíalista fyrir hinum ófrá- víkjanlega persónubundna veruleika. Hjá skáldum eins og Guillevic, Leiris, Ponge og Que- neau má finna ýmislegt sameiginlegt, svo sem hvass- yddan stfl, kalt viðhorf tilraunamannsins, meinhæðni, (heimspekilegar) vangaveltur og einkennilega rýni í áþreifanlega hluti. Mest gagn hafa þau gert sem af- burða orðasmiðir, leiknir hugsuðir og ljóðyrkjumenn. Feti framar hefur Isou gengið í fáránlegri orðarækt, sem beinist einkum að því að ná nýjum hljóðáhrifum og blæ- brigðum í hrinjandi úr stafrófinu og forðast vandlega efnislegt samhengi, sem valdið gæti truflunum. Undra- fugl, en ekki ógirnilegur til fróðleiks. Alger andstæða hans er Gracq, sem einskorðar sig við að draga upp kynstur af sefjandi myndum. Hann er nýrómantískur súrrealisti, sem skapar sálfræðilegar dul- sagnir og bregður upp leyndardómsfullum örlögum í furðulegu umhverfi. Genet er erfiðara að draga í ákveð- inn dilk, en eins og hinir er hann töframaður í stíl, sjónhverfingameistari, og hefur gaman af að gera efn- ið leyndardómsfullt. Lýsingar hans á sérkennilegum glæpaferli sínum cru mjög margslungnar og mótsagna- kenndar. Hann fléttar saman rennusteinsraunsæi og kaldhæðniseldmóð f ljóðrænum skáldsögum, þar sem allt víkur undan, breytist í sífellu, verður falskt og óendanlega margrætt. Hann lætur sverfa til stáls og leikur sér af mikilli rökfimi að andstæðum, svo að úr þessu vcrður að minnsta kosti magnað sjónarspil. Bækur hans cru mcð kostum sínum og göllum ávinningur fyr- ir stíllist, scm getur öllu umbreytt og allt sigrað. Anouilh hefur í fjölmörgum íeikritum lýst hugmynd- um sínum um mannlífið þannig, að það beri stöðugt í hnignunarátt án þess að fá rönd við reist. Hann hefur flutt þennan boðskap sinn með æ meiri dugnaði, cn jafnframt hafa verk hans rýrnað að gæðum. Þess vegna beinist nú athyglin meira að ungum lærisveinum hans, svo sem Adanov, Becket og fleirum, sem samið hafa dntngaleg leikrit þrungin örvæntingu. Blindni, hending og grimmd eru alls ráðandi, lífið er dárakista, þar sem allt er á ringulreið, þjóðfélög og einstaklingar haldin sömu kvalafýsninni. Þetta er nihilismi, þrautalending og neyðarkall án vonar. Þessi skáld þekkja hvorki trú né athafnasemi, kirkju né byltingu, hvorki dulræði súrreal- ismans né bölmóð existensíalista. Þau eru utanveltu, á botninum, í auðninni. En samt yrkja þau: í því fclst ósjálfráð bjartsýni þeirra. Síðast cn ekki sízt ber að nefna Saint-fohn Perse, sem af frjálsum vilja hefur haldið áfram að lifa landflótta; hann var áður í utan- ríkisþjónustu, en fæst nú orðið eingöngu við skáldskap. Ljóð hans voru áður fyrirferðarlítil en mikils metin í mjög fámennum hópi vandlátra lesenda. En á síðari ár- um hefur hann orðið mun afkastameiri. í hinu mikla ljóði „Vents“ (Vindar) (1946) er skyggnzt of heima alla, kastað ljósi á vandamál nútímans, glímt við ógnir og fyrirhcit, vísindi og ljóðlist af berserksgangi, scm leiðir hugann að hamförum náttúrunnar, sköpun og tor- tímingu, stígandi og fallandi. Hann geysist ýmist um svið sögunnar eða beinir sjónum að því, sem næst liggur. í öllum sínum óróleik er kvæðið kyrrt eins og úthaf og viðkvæmt eins og nakin taug, svífur ýmist hátt og tígulega eða lýstur niður eins og eldingu. Hinn sérkennilegi, heillandi og víðfeðmi skáldskapur Perses er sigurteikn um framþróun franskrar ljóðlistar. /. Ó. E. B. 38

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.