Birtingur - 01.01.1961, Blaðsíða 10

Birtingur - 01.01.1961, Blaðsíða 10
ton starði fullur aðdáunar á þrýstinn handlegginn sem hún hreyfði mjög oft og með miklum yndisþokka; og þegar hún svo eftir stutta stund svaraði augnatilliti hans, dáðist hann ennþá meira að stórum, brúnum augunum. Hið fjarræna, starandi augnaráð heillaði hann. Hún leit á hann einu sinni eða tvisvar, og þegar þau voru að fara, straukst hún við stól hans og sagði „Ó, pardon!“ með lundúnaframburði. Hann elti hana með augunum, þegar hún gekk út, og var að vona, að hún liti til sín aftur, en sú von brást. Hann bölvaði féleysi sínu og öllum sjússunum sem hann hafði boðið uppá, einkum og sérílagi því viskíi og Apollinaris sem farið hafði í Weathers. Ef það var nokkuð sem hann hataði, þá voru það svoleiðis snýkjudýr. Hann var svo reiður, að hann hætti að fylgjast með samtali vina sinna. Þegar Paddy Leonard hnippti í hann, varð hann þess áskynja, að þeir voru að tala um aflraunir. Weathers var að sýna þeim upphandleggsvöðvana á sér og grobbaði svo, að hinir tveir hnipptu í Farrington til að halda uppi heiðri þjóðarinnar. Far- rington lét ekki standa á sér, heldur bretti upp erminni og sýndi sína vöðva. Hand- ieggir beggja voru skoðaðir og bornir sam- an, og loks varð að samkomulagi að þeir reyndu kraftana. Það var hreinsað til á borðinu, og mennirnir tveir studdu niður olnbogunum og gripu saman höndum. Þeg- ar Paddy Leonard sagði ,, N ú ! “ átti hvor um sig að þvinga handlegg hins niður á borðið. Farrington var mjög al- varlegur og einbeittur á svip. Leikurinn byrjaði. Eftir um það bil þrjá- tíu sekúndur, hægt og hægt lagði Weat- hers handlegg andstæðings síns í borðið. Vínrauða andlitið á Farrington dökknaði ennþá meira af blygðun og reiði yfir að hafa farið halloka fyrir svona stráklingi. ,,Þú átt ekki að nota skrokkþungann við átakið. Beittu ekki rangindum“, sagði hann. „Hver beitir rangindum?" sagði hinn. „Komdu aftur. Allt er þegar þrennt er“. Þeir byrjuðu aftur. Æðarnar þrútnuðu á enni Farringtons og Weathers blánaði í framan. Hendur þeirra og handleggir skulfu undir átakinu. Eftir langa mæðu tókst Weathers aftur að leggja handlegg andstæðingsins í borðið. Áhorfendur létu velþóknun sína í ljós með lágum kliði. Þjónninn sem stóð við borðið kinkaði rauðum kollinum til sigurvegarans og sagði í kumpánlegri einfeldni: „Ohó! Þetta er að kunna lagið á því!-“ ,.Hvern fjandann veizt þú um það?“ sagði Farrington æstur og sneri sér að mannin- um. „Hvað ert þú að sletta þér fram í þetta?“ „Uss, uss!“ sagði nú O’Halloran sem tekið hafði eftir því, hvað Farrington var æðis- legur á svipinn. „Rólegir, strákar. Við skulum bara fá okkur einn lítinn enn og fara svo“. Það var mjög fýldur maður senn stóð á horninu við O’Cannel brúna og beið eftir litla Sandymount-sporvagnin- um til að komast heim. Reiðin sauð í honum og hefnigirnin. Hann var leiður og fann til auðmýkingar; hann var ekki einu sinni drukkinn; og átti ekki nema fáeina aura í vasanum. Hann bölvaði öllu og öllum. Hann var búinn að koma sér út úr húsi á skrifstofunni, veðsetja úrið sitt, 8 Birtingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.