Birtingur - 01.01.1961, Blaðsíða 56
ræðalega aðstöðu þess sem þiggur óverð-
ugur gjafir hafa mennirnir á móti öðlast
tækifæri að afla sér verðleikanna með
ýmiskonar snatti fyrir stjórnmálasamtök
hinna öriátu gustukahöfðingja með hug-
arfarið kristna. 1 hinum hópnum eru þeir
sem geta málað og kompónerað og skrifað
listaverk, mikið eiga þeir gott að geta
þetta. Þeir þurfa ekki styrki, hvað þá
verðlaun. I hæsta lagi má benda þeim á
þau ógrynni af sniðgengnum fjörefnum
sem dyljast í hundasúru og skarfakáli.
Og guð hjálpar þeim sem hjálpar sér
sjálfur.
Laun listamannsins
Svavar Guðnason fór glæsilega för til
Danmerkur méð myndir sínar. Hefur
öðrum íslenzkum listamanni verið boðið að
hafa svo stóra einkasýningu á verkum
sínum einsog Kunstforeningen pantaði hjá
Svavari? Nei ég held ekki. Gagnrýni
dönsku blaðanna var samþykkari en ég
hef í annan tíma séð af þvílíku tilefni.
Það var Menntamálaráði til sóma að grípa
svo góðfúslega tækifærið til þess að sýna
okkur Islendingum hvað við eigum þýð-
ingarmikinn listamann í Svavari.
Sýning Svavars fyrir jólin var mikil hátíð
Ijóssins í þeim mánuði ársins þegar hin
formyrkvuðu sjónarmið merkantílistanna
vaða átakanlegast uppi og allir þurfa að
græða fyrir árið. Eftir svo óvéfengjan-
lega sönnun fyrir stærð Svavars sem mál-
ara, skyldu þá þessir sérfræðingar Al-
þingis í tónlist, málaralist, bókmenntum
og yfirleitt allri þeirri list sem er hafin
yfir smásmugulegheit stjórnmálabarátt-
unnar og er þar af leiðandi ekki skrifuð
með ypsílon — skyldu þeir halda áfram
að fara með Svavar einsog fleiri af þeim
listamönnum okkar sem eru virkastir í
dag líkt og þeir væru lírukassabetlarar í
porti að biðja um peninga fyrir brenni-
víni með ofurlitlum morgunsöng úti fyrir
gluggum þessara kúltíveruðu manna.
Mætti ég stinga upp á því enn einu sinni
að listamannalaun eigi eingöngu að vera
handa listamönnum. Og listamenn eru þeir
sem skapa eða túlka list en ekki þau fyr-
irbæri sem hafa með einhverjum prettum
komizt í þá aðstöðu að hagnast á fyrir-
höfn annarra og erfiði,
Listamannalaun anno 1961
Jú það kom á daginn að Svavar var sett-
ur í næstneðsta flokk listamannalaunanna.
Þessi listamaður sem var kallaður braut-
ryðjandi í Danmörku og nefndur í tölu
beztu málara á Norðurlöndum.
Formaður úthlutunarnefndarinnar sem
metur þennan listamann svo litils leikur
einnig hlutverk formanns menntamála-
ráðs og opnaði sýningu Svavars. Talaði
hann þá ekki einmitt um það að Svavar
væri brautryðjandi í íslenzkri málaralist?
Þetta er tyllidagaafstaða Helga Sæmunds-
sonar en þegar hann kemur í hin hlut-
verkin sín á virkum dögum er annar
uppi.
Meðferðin á Svavari Guðnasyni og Þor-
valdi Skúlasyni er einna grófasta hneyksl-
ið í úthlutun listamannalauna og mætti
þó í sömu andránni nefna það regin-
hneyksli að Kristmann Guðmundsson er
tjakkaður upp í heiðursflokk. 1 launa-
skránni er krökkt af mönnum sem aldrei
hafa haft neina þýðingu fyrir íslenzka
54 Birtingur