Birtingur - 01.01.1961, Side 61

Birtingur - 01.01.1961, Side 61
við eyrun sem aflmiklar vélar veita með dynkjum og drunum í atvinnulífinu. Sleitulaust ríkir rokk-hikstinn með raf- tortúrgíturum, rykkjóttir skrækir með krampakenndum tónstrengjateygjum sem minna á einhverjar sérstaklega sársauka- fullar líkamsæfingar til að reyna að lækna þrálátt þindarslen, hýsterískur júbelemj- andi líkt og húðstrýktir væru kynvilling- ar með kvalalosta. Síðan taka við dá- semdir bíóorgelsins um undirheima engil- saxnesks tónlistarsmekks. Þannig fjara byggðir Islands út meðan aurinn byrgir rúðurnar, fjöll og heiðar, ár og vötn; og hrossagaukurinn flýgur óséður upp úr fjalldrapa, og svanur syndir að leita uppi kongress með sveigðan háls. Það er úti, —- en inni er samkvæmið sem útvarpið býður upp á. Bílstjóri, ekki væri hægt að lækka ofur- lítið í útvarpinu? Ha? segir bílstjórinn og er að setjast aftur í sæti sitt eftir að hafa þeytt pappakassa utan af Osram-ljósaperum með þrívöfðu snæri út á mjólkurbrúsa- pallinn skammt frá kyrrlátum bæ undir hamrahlíð. Ég heyri bara óminn, segir hann. Þetta er kurteis maður, hugsa ég þegar hann lækkar ofurlítið í pyndingartækinu, og hélt hann væri að afsaka það að hann hefði ekki sjálfur haft hugsun á því að þyrma farþegum sínum. Eftir nokkra kílómetra er hávaðinn orð- inn jafn öflugur sem fyrr. Þannig geng- ur nokkrum sinnum. En á áningarstað segi ég við hinn elskulega bílstjóra: Væri nokkur leið til þess að fá lækkað í útvarpinu, þetta er svo anzi hvimleitt. Já en ég heyri bara óminn, segir bílstjór- inn særður í röddinni og í mildum augum ljósbláum: ég skal nefnilega segja þér að það er svoleiðis að hátalararnir fyrir aftan þeir draga úr hátalaranum mínum, þeir eru svo sterkir að þeir taka frá há- talaranum mínum svo að ég get ekki heyrt nema bara óminn. Ég heyri ekki neitt nema ég hækki dálítið. Styrkir og styrkir og sinfóníuhljómsveitin Ríkisvaldið setur lúxustoll á hljóðfæri, hljómplötur, gott ef ekki striga og liti og fleira sem hægt er að sanna að sé nauðsyn, hátollar bækur, sektar rithöf- unda fyrir að þiggja bækur að gjöf frá erlendum starfsbræðrum sínum og vinum með því að láta þiggjendur greiða sölu- skatt af gjöfinni ef gefandinn tekur sig ekki upp til að afhenda gjöfina sjálfur heldur póstsendir hana. Ríkið tekur háar prósentur af þeim pappír sem ekki er notaður í glæparit og klámblöð og undir áhugamál stjórnmálamannanna í dagblöð- unum. Það helgast af því að ríkisvaldið telur að það sé óþarfur munaður sem ekki eru glæpir, klám og pólitík. Annað þurfi ekki að prenta, þeir sem það gera eru skaðabótaskyldir við ríkisvaldið. Já en er ekki ríkið alltaf að styrkja og styrkja menninguna? Reyndar verð ég að játa að í fjögur ár (að minnsta kosti) hefur Jón Dúason fengið greiddar sextíu þúsund krónur árlega og ber þá væntan- lega að líta á hann sem oddvita íslenzkr- ar menningarsköpunar að opinberu mati því að þeir sem fá hæst listamannalaun: Birtingur 59

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.