Nýtt og gamalt - 01.01.1915, Blaðsíða 13
11
evu daglegir viöburöir, og margir
virðast jafnvel fæðast eingöngu til
eymdar eða iasta. Hvernig fá skamm-
sýn augu vor sjeð kærleika og veldi
Drottins í slíku? —
Jeg hefi margoft sagt það, og segi
það enn: Mjer virðist „bjartsýnu"
mennirnir æði tilflnningariitlir fyrir
hörmum manua, og ræður þeirra
um „kærleika Guðs í náttúrunni og
kjörum mannanna" best fallnar til að
vekja og aia efasemdir hugsandi manna.
Eina ótvíræða sönnunin fyrir kær-
leika Drottins er Jesús Kristur og
hann krossfestur. En það er ekki
stærðfræðisleg sönnun, heldur reynslu-
sönnun, sem er þeim einum nægileg,
er reynt hafa hjálpræðið frá Gol-
gata. —
Þá opnast augun svo, að vjer sjá-
um, að aðalætlun Guðs er ekki að
losa menn víð sorgir og erfiðleika
hjer á jörðu. „Hvern sem Drottinn
elskar, þann agar hann“. Beiskasta
bikarinn tæmdi hann sem næstur
stóð kærleikanum. Aðal-takmark
Guðs er hjálpræði mannanna.
Því má síst gleyma við íhugun
hörmunganna.