Vera - 01.02.1986, Blaðsíða 5
ífi veggi
grunar
—=Fyrir rúmu ári síðan gengust félagsráðgjafarnir Ingi-
björg Pétursdóttir og Ingibjörg Broddadóttir hjá Félags-
málastofnun Kópavogs fyrir hópstarfi með einstæðum
mæðrum.
Konum sem allar eru á aldrinum milli 18 og 30 ára var
sent bréf og boð um að taka þátt í umræðuhópum um
stöðu, störf og vandamál einstæðra mæðra. í hverjum
hópi störfuðu 8—12 konur sem hittust einu sinni í viku í
10—15 skipti alls. Nú er í gangi þriðji hópurinn.
Þær nöfnur hafa báðar reynslu af að vinna með
kvennahópum, önnur í Bandaríkjunum og hin í Þýska-
landi.
Við Verukonur brugðum okkur bæjarleið til Kópavogs fáum
dögum fyrirjól og hittum að máli konursem mynduðu einn af um-
ræddum hópum, auk þeirra Ingibjargar Broddadóttur og Ingi-
bjargar Pétursdóttur. Okkur lék forvitni á að fræðast nánar um
starfsemina sem ekki er vitað til að eigi sér hliðstæður annars
staðar á landinu. Konurnar, sem þarna voru saman komnar voru
allar ungar mæður með 1—3 börn hver og það var einróma álit
þeirra allra að hópstarfið hefði haft ómetanlega þýðingu fyrir þær,
verið uppbyggjandi og aukiö sjálfstæðið.
Við byrjuðum á því aö spyrja þær nöfnur hvernig hugmyndin að
hópstarfi með einstæðum mæðrum hefði orðið til. Þær sögðu það
reynslu sina að árlega leitaði mikill fjöldi einstæðra mæðra að-
stoðar hjá F.K. varðandi húsnæði, fjárhagsaðstoð, dagvistar- og
uppeldismál, umgengnisréttarmál o.fl. Að sjálfsögðu eiga ein-
stæðir feður við sömu vandamál að stríða, en þeir eru hlutfalls-
lega fáir, þess vegna hefur hópstarfið miðast eingöngu við konur
hingað til.
Vandi þeirra einstæðu mæðra sem leita til F.K. er sá að það
reynist þeim í flestum tilfellum nánast ómögulegt að sjá sér og
sínum farboða á eigin spýtur. Er þar að nefna í fyrsta lagi þá háu
húsaleigu sem flestar hverjar verða að borga fyrir leiguíbúð á
almennum markaði. Mikill hluti kvennanna er í verka- eða versl-
unarstörfum sem eru illa launuð. Oft þurfa þær að taka sér launa-
laust ,,frí“, vegna veikinda barns eða veikinda dagmömmu eða
eigin veikinda. Sumar konurnar reyna að vinna aukavinnu eftir
venjulegan vinnutíma, t.d. með skúringum frá kl. 17—20. Er þá
barninu komið fyrir í pössun eftir dagheimilistima eða að það er
tekið með, þó hafa ekki nærri allar konur möguleika á að taka sér
slík aukastörf.
r~