Vera - 01.02.1986, Side 15

Vera - 01.02.1986, Side 15
Ljósmynd: S.E. ENDURSPEGLA SAMFÉLAGID PVWLErVGID Námsflokkar Reykjavíkur hafa í áratugi boðið upp á ódýrt og aðgengilegt nám í hinum ólíklegustu greinum nemendum sínum til gagns og ánægju. í skólastjóratíð Guðrúnar Halldórsdóttur hefur þróunin verið í þá átt að æ fleiri sækja sér þangað réttindi, sem gefur þeim aðgang að því starfsnámi, sem hug- urinn stefnir til. Guðrún tók vel málaleitan Veru að segja frá starfi skólans. „Hingað koma aðallega tveir hópar. Annars vegar eru það ungmenni sem hafa hætt í skóla, án þess að hafa lokið grunnskólaprófi. Hinsvegar er það fullorðið fólk, — að lang- mestum hluta konur — sem hafa notið lítillar skólagöngu. Stofnun eins og Námsflokk- arnir endurspeglar mjög vel ástand samfélagsins. Samfé- lagið hefur krafist þess að karl- ar öfluðu sér fagmenntunar, en konur ekki. Þess vegna er það að nemendur okkar nú eru að % hlutum konur. Ég vil taka það fram að mér dettur ekki i hug að halda að það sé fyrst og fremst vegna þess að skóla- kerfið sé svo lélegt, sem ung- lingar hrökklast úr skóla. Oft- ast er það vegna slæmra heim- ilisaðstæðna, eöa annarra fé- lagslegra aðstæðna.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.