Vera - 01.02.1986, Page 36

Vera - 01.02.1986, Page 36
Hugo og Jósefína og bækurn- ar um Elvis Karlsson. Sesselja Agnes fjallar um Nóru, munaöarlausa stúlku sem elst upp hjá frænku sinni, manni hennar og syninum Degi sem er á svipuðum aldri og Nóra og jafnframt besti vin- ur hennar. Ýmsir undarlegir at- buröir fara að gerast, fótak heyrist, hlutir færast úr staö, dularfullar símhringingar o.fl. Nóra er vantrúuö og leitar ,,eðlilegra“ skýringa. Dagurer trúaöri á aö um yfirnáttúrleg fyrirbæri geti verið aö ræða og styður Nóru dyggilega þegar hún getur ekki lengur horft fram hjá þvi að hún sér og heyrir ýmislegt sem öörum er hulið. Vegna skilningsleysis full- oröna fólksins, eöa vanmáttar þess, hefur Nóru ekki tekist aö halda viö minningunni um for- eldra sína — uppruna sinn. En atburðirnir tengja hana smátt og smátt uppruna hennar og dýpka skilning hennar á sjálfri sér. Næmur skilningur höfundar á tilfinningalifi barna og ung- linga gerir persónurnar lifandi, trúveröugar, og lesandinn hrífst meö. Söguþráöurinn er óvenjulegurog spennandi, trú- legur eöa ótrúlegur, þaö skiptir ekki máli, enda í rauninni ekki veriö aö reyna aö sannfæra lesendur um neitt. Bækur Mariu Gripe eiga þaö sam- merkt meö öörum góðum barna- og unglingabókum að vera ekki síður skemmtilegar aflestrar fyrir fullorðna. Þær eiga líka erindi til þeirra ekki síður en til barna. Samskipti kynslóðanna eru séð meö augum barnsins eöa unglingsins og þar tekst Mariu Gripe sérlega vel upp. Oft fær fullorðna fólkiö óblíða útreið þar sem deilt er á skilnings- leysi þess og þekkingarskort á sálarlifi barna. María Gripe fléttar á snilldar- legan hátt saman raunveru- leika og ævintýraheim og er þetta sérlega áberandi í Sess- elju Agnesi. Þaö þýöir þó ekki aö vandamál séu leyst meö einhverjum ævintýrabrögöum, heldur er tekiö á þeim á skyn- samlegan og raunsæjan hátt, þar sem umburðarlyndi og skilningur á því aö viö erum ólík og höfum ólíkar þarfir, er í hávegum haföur. Já og ýmsu í umhverfi okkar getum við ekki breytt og eigum ekki aö breyta, heldur aö læra að skilja og gera þaö besta úr aðstæðun- um. K.BI. KVENNAFRÍDAGURINN 24. október 1985 Miðlun Miölun er fyrirtæki sem tekur aö sér aö safna úrklippum um málaflokka, Ijósrita og útbúa sem bók í örlítið stærra broti en t.d. Vera. Þjónusta sem þessi gagnast mörgum, tam. hefur Kvennahúsið veriö áskrifandi aö þessari þjónustu og fengið klippur um jafnréttismál o.fl. Brugðiö hefur við að við hérna á Vlkinni höfum ekki verið sam- mála túlkun „miölunar" á því hvaö flokka beri undir jafn- réttismál eöa ekki og fundist t.d. vanta efni, sem viö sjálfar sáum í prentuðum fjölmiðli. Ég þori ekkert aö fullyröa um hvort aðfinnslur af þessu tagi gilda almennt um þjónustu „miðlun- ar“. Þess ber aö geta aö þetta þjónustufyrirtæki er fyrsta og eina fyrirtækið sinnar tegundar hér á landi, ekki gamalt og þess vegna e.t.v. reynslulítið. Hvaö sem öllu líöur, þá er þetta gagnleg þjónusta. Nú, ,,miðl- un“ tók sig til og safnaði úr- klippum úr blöðum um 24. október 1985, reykviskum sem utan af landi og erlendum aö auki. Flestar eru klippurnar dagsettar þ. 24 en margar skömmu áöur, þær erlendu flestar 25. október eöa þar um bil. Þetta safn er ómissandi söfnum og einstaklingum, sem heimild. Margar greinar eru þarna; hvatningagreinar, upp- ryfjanir, vangaveltur um árang- ur af kvennaáratug o.þ.h. Tölu- veröa skoðun þyrfti til aö full- vissa sig um aö ALLT sé haft meö og hef ég ekki tekið mér slíka athugun fyrir hendur. En ég óskaöi þess aö til væri sam- bærilegt safn um 24. október 1975. Erlendu fréttirnar snúast mest um forsetann okkar, sem tókst að setja fínan punkt yfir i- iö þennan dag. Fróölegt er aö bera saman fréttir og frétta- skýringar karla annars vegar og kvenna hins vegar í erlendu blöðunum. Eitt eiga þó útlend- ingarnir flestir sameiginlegt, þau kalla daginn kvennaverk- fall, ekki kvennafrí. Gott hjá þeim! Ein og mjög alvarleg gagn- rýni: f þessu riti er tínt til sem mest af efni varðandi dag kvenna en þaö sem þær lögöu sjálfar af mörkum er ekki meö! Þar á ég viö dagblaö kvenna- smiðjunnar í Seðlabankanum, Kvennasmiðjuna. Þaö þykja mér aldeilis ótrúleg afglöp en dæmigerð. Þaö munaöi minnstu aö ég hætti viö þá hugmynd aö kaupa þrjú eintök til aö gefa dætrum mínum á fermingadaginn þeirra bara út af þessu. Til allrar lukku er enn hægt aö kaupa öll eintök Kvennasmiöjunnar, sem festa má viö rit ,,miðlunar“ til aö redda málinu. Ms P.s. Af gefnu tilefni er rétt aö þaö komi fram aö Blaða- mannafélag íslands hefur samiö sérstaklega viö ,,miðl- un“ um greiöslur til blaða- manna fyrir þeirra vinnu. Greiöslurnar renna í sérstakan menningarsjóð B.í. 9 Ananaustum Siml 28855 Við bjóðum öllu útivistarfólki: Stil-Longs ullarnærföt. Vinnufatnað — samfestinga, einnig loðfóðraða. Hlífðar og kuldafatnað. Skó og hlýja sokka. Áttavita, penna-neyðarmerkja- byssur, álpoka og fjölmargt fleira. ERT yöRu UTI- VERA

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.