Vera - 01.04.1993, Page 37

Vera - 01.04.1993, Page 37
SOGUÞRAÐUR, 1. KAFLI IÐUNN STEINSDÓTTIR MÆÐUR OG DÆTUR Jórunn eldri stóð við spegilinn á baðherberginu og kreisti hárburstann svo að beina- berar hendurnar hvítnuðu. Þær skulu ekki sleppa út! Þarna húktu þær í dimm- asta horninu í hugskotinu þar sem þær höfðu árum saman verið undir lás og slá. En nú var eitthvað að bila, lásarnir að bresta og aldrei hægt að fá gert við neitt. Hún var að missa stjórn á öllu, vissi ekki þegar hún vaknaði að morgni hver mundi i'áðskast með hana þann daginn. Það fór eftir því hvaða fylkingar í skæruhernaði minninganna náðu fyrstar að læðast út úr skotinu og setjast úm hana. Þær voru misjafnlega her- skáar. Sumar þolanlegar, ollu óróa og þreytu en ekki beinni vanlíðan. Aðrar fjandsamlegar, tættu hana að innan og yörpuðu löngum skuggum inn í daginn. Verst voru unglingsárin, þeim fylgdi svo mikil einsemd. Skuggarnir frá þeim kæfðu Ijósið svo að hún sá varla handa skil. Það gekk svo langt að einn daginn fór hún til húsvarðarins og bað hann að setja nýjar perur í ljósastæðin af þvi að þær gömlu væru ónýtar. Hann kom upp með Ijósaperur í poka en neitaði að gera nokkuð þegar inn í íbúðina var komið, sagði að það væri ekkert að perunum. í dag var sæmilega bjart. í svefnrofunum höfðu fyrstu búskaparárin læðst að henni og þau voru ekki svo slæm. En unglingsárin leituðu út. Hún fann það á þrýstingnum í bijóstinu og hjartanu sem sló dynk eftir dynk eins og verið væri að berja á hurð. Hurð! Það var verið að berja á hurð. Hann var við dyrnar, vildi inn. Eins og hann þröngv- aði sér inn á hana forðum, læddist að henni þegar engan grunaði. Vitandi að hún gæti ekki sagt neinum frá - og þó að hún segði tryði enginn henni af því að hún var bara unglingur. Hún tók viðbragð, hentist fram að dyrunum og íleygði sér á þær. Hann skyldi ekki inn. Barsmíðin hljóðnaði og gegnum þögnina heyrði hún í Olöfu. - Hvað er þetta, mamma, ætlarðu ekki að opna? Við erum komnar hérna með hana Ingu litlu eins og ég lofaði í gær. Hann hvarf. Hún var hér. 1 dag, áttræð manneskjan. Hér í sambýlinu sem hún keypti sig inn í íýrir tveimur árum. I sinni eigin íbúð, ein, í dag. Hún losaði öryggiskeðjuna og tók lásinn af. - Æ, eruð það þið, ég gleymdi mér alveg, tautaði hún skömmustuleg. - Er eitthvað að, mamma mín? Þú fleygir þér á hurðina eins og þú eigir von á innrás, sagði Ólöf um leið og hún stappaði af sér snjóinn. - Ég ílýtti mér of mikið og hrasaði, tautaði Jórunn. - Ó, er hún komin, litla elskan, bætti hún við og klappaði á böggul sem Jórunn yngri, nafna hennar, var með í fang- inu. - Sæl amma mín. Ósköp er langt síðan ég hef séð þig, sagði Jórunn yngri og kyssti ömmu sína á vangann. - Sjáðu hvað ég er dætutt, sagði hún með tæpitungu og íletti ofan af bögglinum svo að syfjulegt andlit litlu stúlkunn- ar kom í ljós. Hún geispaði ákaflega og gretti sig. - Hún er rétt að vakna og á að fara að drekka. Er hún ekki falleg? - O, þetta er svo saklaust og gott, svaraði Jórunn eldri. Hún tók á rás inn í íbúðina. - Komið þið, ég þarf að traktera ykkur, hrópaði hún og snerist einn hring í eldhúsinu, skrúfaði frá krana og fyrir hann aftur. Gleymdi að hún ætlaði að hita kaffi og hljóp inn í stofu. - Inga mín er með sínar eigin trakteringar, sagði Jór- unn yngri. Hún settist í hæg- indastól og lagði litlu stúlkuna á brjóst. - Það er ekkert eins yndis- legt og þessi litlu börn, það fylgir þeim svo mikill friður, sagði amma hennar og snart höndina á þeirri litlu með visifingri. - Já, er það ekki makalaust að heimurinn skuli vera fullur af ófriði. Og þó hafa allir þeir sem fyrir honum standa ein- hvern tímann verið saklausir 37

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.