Vera - 01.06.1993, Síða 18

Vera - 01.06.1993, Síða 18
KVENN ARÁÐSTEFN A urnar í kvennarannsóknum - menntamál, Qölskyldan, bók- menntir, stjórnmál frá ýmsum sjónarhornum, grasrótar- hreyfingar, flutningar kvenna frá sveitum til borga, konur og fátækt, vændi, sálarfræði, heilsa og heilbrigði, konur og tækni, sjálfsmyndir kvenna, konur og umhverfi og um- hverfisvernd, umönnunar- störf, konur og fötlun, störf og staða á vinnumarkaði, á heimilum, í þriðja heiminum, Austur-Evrópu, konur í list- um, móðurhlutverkið, kynlíf fráýmsum sjónarhornum, of- beldi gagnvart konum, fjöl- margar sessjónir um konur í Costa Rica o.s.frv. Allan tim- ann var í gangi seminar um kenningar í kvennafræðum. Mest virtist vera fjallað um fjölskylduna, þátttöku kvenna í vinnumarkaði og ofbeldi. Það er óhætt að segja að þarna hafi verið mikil viska samankomin og margar for- vitnilegar rannsóknir í gangi. Þekkingarleitin er spennandi, en kvennarannsóknir eiga ekki heima í filabeinsturni. Leitin á að leiða til þátttöku og breytinga. Það þýðir pólitik og aðgerðir. Tækifærið var líka notað til að safna liði og und- irbúa sóknaraðgerðir. Fjórða alþjóðlega kvennaráðstefna S.Þ. er framundan í Beijing sumarið 1995. Það má ekki láta deigan síga í umhverfis- málum þótt Rió-ráðstefnan sé að baki. Friðarmál eru á dag- skrá og áhugahópar um margvísleg málefni kynna sjónarmið sín með ýmsu móti, t.d. á bókamessunni eða í kynningarbásum. HVERJIR ERU MENN? Stór salur er þéttskipaður konum sem bíða spenntar eft- ir að konurnar uppi á palli taki til máls. Viðfangsefnið er mannréttindi. Kazuko Watanabe frá Japan segir frá rannsókn um hernaðarstefnu, heims- valdastefnu og viðskiptum með konur. Það er um skipu- lega misnotkun japanska hersins á konum í hernumdu löndunum í síðari heimsstyij- öldinni sem nú er verið að draga fram í dagsljósið. Hún dregur línuna fram á þessa daga er japanskir karlmenn og karlmenn frá Ástraliu og velmegunarlöndum Evrópu Stórar, fallegar og sterkar konur, lifsreyndar og velmenntaóar meb doktors-gróóur fró þekktum breskum og bandarískum skólum. Þær töluöu af mælsku og orógnótt um þrengingar svarta kynstofnsins einkum kvennanna. skapa grundvöll fyrir túristavændi í Suð-austur Asíu. Yolanda Bertozzi gefur konunum í Costa Rica rödd tveimur árum eftir að lög um jafnan rétt kynjanna hafa verið sett: Las Mujeres tom- an la palabra - konurnar láta í sér heyra og skýra frá hinu leynda ofbeldi innan veggja heim- ilanna. Álirifaríkastir voru þó fyrirlestrar Charlotte Bunch frá Bandaríkjunum um mannréttindi frá feminísku sjónarhorni og Elizabetar Odio Benito, dómsmálaráðherra Costa Rica um end- urskilgreiningu á mannréttindum. Charlotte hvatti til þess að konur bindust samtökum á þessu ári sem S.Þ. hafa helgað fjölskyldunni um að tryggja lýðræði inni á heimilunum. Það þarf að endurskilgreina mannrétt- indi þannig að þau taki til allra við allar aðstæður, líka til einkalífsins. Það er ekki hægt að þola lengur ofbeldi gegn konum í skjóli heimil- anna, nauðganir, barnadráp, vannæringu stúlkubarna, mannsal og vændi, þunganir gegn vilja kvenna. Konur verða að standa saman og knýja á um breytingar. Mikil gagnasöfnun hefur farið fram til að leggja fyrir ráðstefnu S.Þ. um mannréttindi í Vínar- borg í júni og þá reynir á hversu mikil alvaran er með að tryggja öllum mannrétt- indi. Elizabet Odio Benito tók mjög í sama streng og rakti hugmyndafræðina að baki hugtaksins og baráttunnar fyrir rétti einstaklingsins. Hún sýndi með skýrum dæm- um hversu miklum takmörk- unum mannréttini eru háð víðast hvar í heiminum, jafn- vel í löndum þar sem þau eiga sér langa hefð. Stórfelldustu takmarkanirnar eru gagnvart konum og börnum. Réttindi þeirra verða ekki tryggð nema skýrt sé tekið fram að yíirlýs- ingin taki til þeirra Hka og gengið sé eftir því. Þessi skýra og skilmerkilega miðaldra kona hreif alla með sér. Hún sagði að þar til nýlega hefði hún ekki haft áhuga á mál- efnum kvenna en eftir að hún hafði kynnst rannsóknum á stöðu kvenna og konum sem beijast íyrir réttindum þeirra hefði hún gert sér ljóst hversu biýnt málið væri og það gekk þess enginn dulinn að hún vildi leggja sitt af mörkum og heldur ekki að hér væri kona sem munaði um. Hún hafði ekki fyrr lokið máli sínu en allir í salnum stóðu upp og klöppuðu lengi. Síðar um daginn efndu heimakonur til myndarlegrar göngu um aðalgötur borgar- innar til að mótmæla ofbeldi gegn konum. Þó að gangan væri fjölmenn og litrík og vekti mikla athygli vegfarenda létu fjölmiðlar sér fátt um finnast. SVÖRT SJÁLFSMYND Hins vegar létu Qölmiðlar ekki framhjá sér fara pallborðsum- ræðurnar sem efnt var til á vegum UNIFEM um menning- arbundna sjálfsmynd blökku- kvenna. Það var fullt út úr 18

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.