Vera - 01.06.1993, Síða 26

Vera - 01.06.1993, Síða 26
Þ I N G M Á L KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR Á veggnum vlð hliðina á skrif- borðinu mínu er hátalari, sem í má heyra allt, sem talað er á þingfundum, þ.e.a.s. úr ræðustóli. Hins vegar nýt ég þeirra þæginda umfram þá, sem í þingsalnum eru, að ég get hækkað og lækkað i ræðu- mönnum eftir þörfum, jafnvel slökkt algjörlega á þeim. Þar sem ég hef margt annað að gera en að hlusta á umræður, hlusta ég í rauninni ekki á nema brot af þeim, en þó nóg til þess að hafa nokkurn veg- inn hugmynd um það, sem þarna fer fram. Stundum í vetur, þegar lagst var til hvíld- ar að kvöldi, var ástandið eins og að loknum réttardegi, nema að í staðinn fyrir lang- dregið, tregablandið MMEEE hljómaði EEEESS í huganum. Já, það var auðvitað evrópska efnahagssvæðið, sem nánast einokaði umræðuna stóran hluta þingtímans, bæði samningurinn sjálfur og Qöl- mörg mál tengd honum. Umræðurnar voru heit- ar og ágreiningur mikill og teygði sig m.a. inn í þingflokk Kvennalistans, sem ekki náði saman um óskipta afstöðu til málsins. Fjórar þing- kvennanna, þær Anna, Jóna Valgerður, Kristín Ástgeirs og Kristin Einars, höfnuðu samningn- um, en Ingibjörg Sólrún sat hjá við afgreiðslu málsins. Þessi staða var ítarlega rædd á lands- fundi og við önnur tækifæri, og fjölmiðlar töldu sig komna í feitt, löngu leiðir á eindrægni og samstöðu í þessum undarlegu samtökum kvenna. Nú er það hins vegar alls ekki svo, að þetta hafl verið í fyrsta sinn, sem ágreiningur kemur upp í Kvennalistanum. Um það mætti nefna nokkur dæmi. Sum þeirra ágreiningsefna tókst að leysa með málamiðlun, önnur ekki, og það skilaði sér m.a. í mismunandi atkvæða- greiðslu á Alþingi. Samningurinn um evrópska efnahagssvæðið er hins vegar þeirrar tegundar, að málamiðlun er óhugsandi. Og þvi verður ekki í móti mælt, að þessi ágreiningur var Kvennalist- anum erfiður, en einnig lærdómsríkur. Utanríkismál voru almennt mikið til umræðu í þinginu, og á síðustu dögum þess var t.d. samþykkt aukaaðild íslands að Vestur-Evrópusamband- inu. Kvennalistakonur voru andvígar þvi og hafa lagt áherslu á það í sínum mál- flutningi, að öryggishagsmun- ir okkar séu fólgnir í sam- vinnu við aðrar þjóðir um um- hverfismál, en ekki hernaðar- mál. Lítill tími gafst hins veg- ar til að ræða breytingar á að- stöðu Bandaríkjahers á Kefla- víkurflugvelli, en óljósar frétt- ir um slíkt bárust rétt fyrir þinglok. STEFNULEYSI Efnahags- og atvinnumál bar óhjákvæmilega oft á góma, en reyndar fyrst og fremst að frumkvæði stjórnarandstöð- unnar, sem gagnrýndi ríkis- 26

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.