Vera - 01.09.1995, Síða 7
hin litríka ritstýra VERU, hefur ákveðið að skipta um starfs-
vettvang eftir fimm ára farsælt starf. Undir hennar stjórn hef-
ur blaðið vaxið og blómstrað og fest sig í sessi í íslensku fjöl-
miðlaflórunni. Ragnhildur hefur einnig látið í sér heyra sem
pistlahöfundur í öðrum fjölmiðlum ogjafnan sett kvenréttinda-
málin í öndvegi.
•Ragnhildur hefurtekið við starfi Jafnréttis- og fræðslufulltrúa Akur-
eyrar og eru Akureyringar heppnir að fá slíka konu til starfa því hún
mun eflaust sinna nýja starfinu af jafnmiklum krafti og alúð og ritstjórn
VERU.
VERA vonasttil þess að fá að njóta krafta Ragnhildar áfram þótt með öðrum
hætti verði og leita í hennar reynslusjóð.
Um leið og ritnefnd VERU óskar Ragnhildi velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi þökkum
við henni gott og óeigingjarnt starf á undanförnum árum.
Ritnefndin.
Öldungadeild - GRUNNSKÓLASTIG
(ÍSLENSKA, STÆRÐFRÆÐI, DANSKA OG ENSKA)
Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk grunnskóla.
Ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni.
Fornám: Samsvarar 10. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa náð
tilskildum árangri í 10. bekk. Undirbúningur fyrir nám á framhaldskólastigi.
FRAMHALDSSKÓLASTIG
Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjarnagreina: íslenska, danska, enska og stærðfræði.
Auk þess félagsfræði, saga, eðlisfræði, tjáning, þýska, hollenska, ítalska,
stærðfræði 122 og I 12, uppeldisfræði 103.
Sjúkraliðabraut • Verslunarbraut
NÝJAR NÁMSGREINAR
Sálfræði I I 3: Skynjunar- og auglýsingasálfræði. Efni áfangans er skynjun,skynferli
og auglýsingasálfræði.Auglýsingar verða teknar fyrir, dæmigerð auglýsingatækni rædd
og algengustu auglýsingabrellurnar kannaðar. Kennari: Oddur Albertsson
Kvikmyndafræði 102: Kvikmyndarýnl.
Efni áfangans er kvikmyndin, saga hennar,
eðlisþættir og áhrif. Kennari: Oddur Albertsson
Hollenskar bókmenntir: Góð kunnátta
í hollensku nauðsynleg. Kennari: Ida Semey
• t
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla.
Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda
og er haldið í lágmarki.
Innritun fer fram í Miðbæjarskóla,
Fríkirkjuvegi I,
dagana 3 I. ágúst og I. september 1995
frákl 17.00 til 20.00.
Kennsla hefst I I. september.
r tstýra kvödd