Vera - 01.09.1995, Side 36

Vera - 01.09.1995, Side 36
HV AÖ tfcRlSl 1 PEKINC? PJO0. NAL Sigríöur Lillý Baldursdóttir KVEN1 FEKINC 19» Eins og lesendum Veru mun kunnugt verður fjórða ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um mál- efni kvenna haldin í Peking 4.-15. september n.k. Fyrsta ráðstefnan var haldin f Mexíkó við upphaf kvennaáratugar Sameinuöu þjóðanna árið 1975. Önnur ráðstefnan varí Kaupmanna- höfn árið 1980 og sú þriðja í Nairóbí áriö 1985 og lauk þar með áratugnum sem Sameinuöu þjóðirnar höfðu tileinkað konum. Samhliða öll- um þessum ráðstefnum voru haldnir fundir fé- lagasamtaka (NGO-forum). „Jafnrétti, þróun og friður" var yfirskrift ráðstefnanna í Mexíkó, Kaupmannahöfn og Nairóbí. Orð eru til alls fyrst, eins og þar stendur, en það er löngu kominn tími til aðgerða og á það verður lögð áhersla á ráðstefnunni í Pekíng. Yfirskrift fjórðu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um mál- efni kvenna er í takt við þessar áherslubreyt- ingar, en hún er: „Aðgerðir til að stuðla að jafn- rétti, þróun og friði." FYREU RÍÖSTEFNUR Fyrir ráðstefnuna í Mexíkó var safnað miklum upplýsingum um stöðu kvenna um heim allan og vegna ráðstefnunnar urðu kjör kvenna í brennidepli um nokkurt skeið í fjölmiðlum sem og annars staðar. Hér á landi varð ráðstefnan kveikjan að þróttmikilli umræðu um réttindi kvenna og íslenskar konur sýndu þá á eftir- minnilegan hátt samstöðu sína með því að fella niður vinnu heima og heiman á degi Sam- einuöu þjóðanna, 24. október 1975. Sú aö- gerð heppnaðist með þvílíkum ágætum að síð- an hefur heimurinn allur verið fullviss um styrk íslenskra kvenna og til hans vísum við enn, hátt og í hljóði ef efi sækir að okkur um sam- stöðu kvenna. I kjölfar Mexíkó ráðstefnunnar urðu þáttaskil í kvennabaráttu hér á landi sem og víðast annars staðarí heiminum. Það ervitaskuld einföldun að segia að ráðstefna nokkra heita júnídaga í Mexíkó hafi orsakaö þá breytingu sem varð í um- ræöunni um réttindi kvenna á þessum árum, en ég vil fuliyrða aö undirbúningur hennar, allirfund- irnir, ráðstefnurnar og samráðið, blaðagreinarn- ar, útvarps- og sjónvarpsþættirnir og þá ekki síst söfnun tölulegra gagna um stöðu kvenna um all- an heim, hafi skilað sér og orðið til þess að glæöa umræðuna nýju lífi og opna augu margra fyrir mikilvægi jafnréttis. Tvær mikilvægar stofnanir Sameinuðu

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.