Vera - 01.09.1995, Blaðsíða 41
Konurog kosningaréttur
Heimilistækjadeild Falkans ■
Ji&ngur
og koddar
Umboðsmenn um land allt
Góöb
nótt og
sofðu rótt -
Pekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 581 4670
ÞARABAKKA- MJÓDD • S: 567 0100
Heimilistækiadelld Fálkans • Heimilistækiadeild Fálkans •
Á þessu ári fagna bandarískar konur því aö 75 ár
eru liðin frá því aö þær fengu kosningarétt, en 19.
stjórnarskrárbreytingin, þess efnis, tók gildi þann
26. ágúst 1920. Þaö liðu 72 ár frá því aö þær
settu kröfuna um kosningaréttinn fyrst fram á
ráðstefnu um kvenréttindamál, í Seneca Falls í
New York árið 1848, þartil kallinu var svaraö og
mörg þeirra kvenna og karla sem fyrst léöu
málstaðnum liö lifðu ekki aö sjá drauminn
rætast. Á meðan þessi áratuga langa barátta
stóö böröust margar af ríkustu og fátækustu
konum landsins hlið viö hliö fyrir þessu
sameiginlega markmiöi. Suffragettumar, eins og
kvenréttinda-konurnar kölluðust upp á enska tungu,
voru kallaöar öllum illum nöfnum, sættu hótunum,
handtökum og fangavist en héldu þó ótrauðar
áfram baráttu sinni þartil takmarkinu var náð.
I bók Sigríðar Th. Erlendsdóttur um sögu
Kvenréttindafélags íslands, Veröld sem ég vil,
segir aö það hafi átt fyrir bandarískum konum aö
liggja að vera í fararbroddi kvenfrelsiskvenna.
Baksviðiö hafi verið öflug þátttaka þeirra í
baráttunni gegn þrælahaldi og hafi þessar tvær
hreyfingar tengst órjúfanlegum böndum. f bókinni
segir frá þvf aö áriö 1840 hafi veriö haldin í
Lundúnum alþjóöleg ráðstefna um afnám
þrælahalds, og þangaö hafi farið bandarísk
sendinefnd sem f voru fjórar konur: „Þegar til átti
að taka var þeim bannaö að taka þáft í fundarhöldum
vegna kynferöis. Tvær þessara kvenna, þær Lucretia
Mott og Elizabeth Cady Stanton, ákváðu að hittast
þegar heim væri komiö og hefja baráttu fyrir jafnrétti
kynjanna. Og það liðu átta ár þangað til þær létu til
skarar skriða." (bls. 53)
Ms tímaritið bandariska minnist afmælis
kosningaréttarins í nýjasta tölublaöi sínu (júlí/ágúst)
rétt eins og VERA geröi í
síðasta tölublaöi, en þá fjallaði
Auður Styrkársdóttir um 80 ára
afmæli kosningaréttar
fslenskra kvenna sem við
fögnum einmitt á þessu ári.
Þær gengu fyrir okkur, segja
bandarísku kvenréttindakonurnar
um leið og þær minnast allra
þeirra kvenna sem börðust fyrir
kosningarétti þeirra.