Vera - 01.09.1995, Page 45
Þóra Jónsdóttir
Mýrarsel 1995
i þessari Ijóöabók er genginn vegur
meginlínan. Gærdagur Ijóðmæland-
ans er f öndvegi, sem og aldamóta-
kynslóðin, amma og allt hennar
strit. Farinn vegur er drjúgur og um
margt gróinn, og framundan er ekki
frítt við aö feigöin lokki og laöi. Dag-
ur er aö kveldi kominn og það
bjarmar af nýjum degi, annars kon-
ar framtíð. Ný bernska tekur viö af
ellinni, lokunum. Þaö er til nokkurs
aö hlakka.
Þó vottar fyrir trega vegna þess
aö eftirhreytur lífsins eru ekki meira
eöa minnisstæöara en fingurkoss
gegnum bílrúöu. Þá er gott aö geta
horfið inn í mynd og samlagast
myndefninu. Erindi lífsins er fánýtt
og skilur eftir sig frelsi til þess eins
aö daga uppi, og þetta frelsi er dá-
læti feigðarinnar.
Rökkurmynd
Myrkriö færist innar, nær
Ég munda litina
Hermi blæ fjarskans og sinunnar
Snerti brúnir fjallanna með fingur-
gómunum
Við klettaþilið stendur kona
samlit rökkrinu
Hún ber hatt úr hrafnsvængjum
sauðarlitaö pils
Augun streyma f vatnið
Nú kallar hún á mig inn í myndina
að daga uppi sér til samlætis
(30)
Tregablandin angist vegna þess
sem er liðið og hins sem framund-
an er. Tómhyggja, sambandsleysi,
vegvillur og einsemd eru vissulega
ráðandi þættir I Lesnóttum sem og
öörum bókum Þóru.
Lögmál tómsins
1 húsi mínu er herbergi autt
Ég dvel þar inni
skynja örbirgö mfna
meðan tómiö varir
Ég veit þaö fyllist brátt
af fánýti
Afturhvarf til upprunans, til for-
mæðranna, er enn fremur knýjandi
afl Ijóðanna, einhvers konar leit aö
upphafi sfnu. Máð spor ömmu,
brennd Ijóð hennar og engin Ijós-
mynd, aðeins örfáar talaðar teikn-
ingar úr munni afa. Fortfðin seytlar
um gisnar hendurnar.
Náttúran gerir kröfur til óþreyt-
andi vitundarinnar um hið liöna sem^
felur að vissu leyti í sér framtföina.
Skrifað í vatn
Heilluð af bláma fjallsins
skrifa ég það meö vatni
á hvíta örk
Droparnir þo/na mislitir á pappirnum
og fella í ásýnd fjallsins
andlit mitt, fingraför og Ifflínu
Hún endar inni í skugganum
(10)
Aö öllu samanlögðu eru þessar Ijóð-
mæltu myndir heildstætt og trega-
fullt hróp á tilgang, svo tekur undir.
Ég er líka sérstaklega ánægð með
hversu merkingarbærir titlar Ijóð-
anna eru og ekki spillir fyrir heildar-
svipnum einstaklega látlaus og fal-
leg bókarkápa.
Berglind Steinsdóttir