Vera - 01.05.1996, Síða 32
Súsanna Svavarsdóttir
prufukeyrir Toyota Carina
Nú er kominn sá tími árs sem bílaaug-
lýsingar dynja á okkur úr öllum áttum.
íslendingar hafa löngum veriö iönir við
aö versla nýjan bíl, þegar þeir skríöa
undan feldi á vorin. Þetta er nánast
lögmál eins og bókaflóðið á haustin
og bílasalar og innflytjendur svara
hreyfiþörf landans hver sem betur get-
ur. Fjölskyldubílar eru mest áberandi á
þessum tíma; landinn vill keyra um
sína móðurjörð og fara i útilegur.
Einn af þeim fjölskyldubílum sem eru á
markaðnum núna, er Carina E Sedan GLi,
árans skemmtilegur bíll, sem er bæði lipur
og kraftmikill. Vélin er 1998 cc, 16 ventla
með tðlvustýröri innsprautun og vélaraflið
hlýðinttog vel
taminn gœðingur
er 126 hestöfl við 5600 snúninga á mínútu.
Hann er eldsnöggur að taka við sér, snögg-
ur upp og að sama skapi snöggur niður;
laus við titring, með ABS hemlakerfi, sem
kemur í veg fyrir aö hjólin læsist þegar
hemlað er. Hann rásar ekki á malarvegum,
þegar maöur snögghemlar. Þaö sem hreif
mig mest við þennan bíl var stýrisútbúnaö-
urinn. Carinan hefur vökva- og veltistýri,
sem er mjög skemmtilegt. Þaö er nánast
hægt að snúa henni í hring á punktinum,
hún lætur T alla staði mjög vel að stjórn.
Aksturseiginleikar hennar eru frábærir og
það er gaman að keyra hana. Hún er nokk-
uð hlýðinn og vel taminn gæðingur.
Annar ómetanlegur kostur sem hún hef-
ur er hiti í framrúðu. Þótt örugglega þurfi aö
sóþa sköflunum af bílnum á mestu snjóa-
dögum, þarf örugglega ekki að standa úti í
gaddinum og skrapa og skafa, bara setjast
inn og bíða aðeins eftir að gaddurinn gefi
eftir. Eins og vera ber, eru rafmagnsrúður
og -speglar og stjórnbúnaði þeirra komiö fyr-
ir í bílhurðinni, bílstjóramegin.
Sætin eru þægileg, með stillanlegu baki
og sessu, þ.e.a.s. fram og til baka. Mér
fannst þó bílstjórasætið ívið lágt og dætur
mínar kvörtuðu í aftursætinu yfir því aö sjá
1
ekki út um gluggana. Við erum aö vísu ekki
stórt kvenfólk, en það er algengur galli hjá
kvenþjóðinni. Þegar ég bakkaði t.d. út úr
stæði í brekku, gat ég ómögulega séð hvort
annar bíll væri að koma niður götuna. Car-
inan er nokkuð „lendahá”, sem er ekki
endilega kostur. Bílbeltin eru hins vegar
mjög þægileg. Það er auðvelt og fljótlegt að
krækja í þau, sem verður ekki sagt með alla
bíla. í sumum þeirra er svo þröngt á milli
sætis og huröar aö það er ekki hægt að
krækja í bílbeltin án þess að rífa upp á sér
öll naglabönd. Því vandamáli er ekki fýrir að
fara hér.
Annað öryggisatriði í þessum bíl eru
styrktarbitar í hurðum, svo líklega hefur
Toyota nú rekiö af sér blikkdósasliðruorðið.
Auk þess eru öryggispúðar fyrir ökumann og
framsætisfarþega. Höfuðpúðar eru fjórir í
bílnum, þar af tveir fyrir farþega T aftursæt-
um. Það fer vel um aftursætis farþega í Car-
inunni, því rými fyrir fætur er gott og mikið,
svo enginn ætti að þreytast á langkeyrslum.
í fram- og aftursætum eru þriggja festinga
rúllubelti með forstrekkjurum og hæðarstill-
ingum sem læsast T neyðartilvikum. Styrkt-
arbitar eru T öllum hurðum og sérstök
krumpusvæði eru í bílskrokknum að framan
og aftan, sem taka við höggi í árekstri og
minnka áhrifin inn ? farþegarýmið.
Það sem kom mér á óvart í þessum lipra
bíl sem lætur svo vel að stjórn, er að hurðir
eru fremur stífar og þungar. Það sama má
segja um sætastillingarsnerlana. Þeir eru
nokkuð óþjálir. Plussáklæðið finnst mér í
einu orði sagt, Ijótt, jafnvel þótt það sé í grá-
bláum tónum.
Útvarp og segulband, með fjórum hátöl-
urum, fylgir Carinunni, en ég er ekkert of
viss um gæðin, því þaö brestur nokkuð í
tækinu. Eins víst að það geri meira en að
fara í taugarnar á manni þegar til lengdar
lætur. Hins vegar er hægt aö smella
„græjuandlitinu” af og taka það með sér úr
bílnum - til að því verði ekki stolið.
Toyota Carina er fallegur bíll, stöðugur á
veginum og vel hljóðeinangraður. Hann er
langur og fleyglaga og hreint ekkert lítill
4.53 m á lengd, en undarlega sparneytinn.
Samlitir stuöarar gefa þessum bíl enn
mýkra og rennilegra útlit, sem þrátt fyrir
stærðina lætur afar vel að stjórn.
Carinuna er hægt að fá meö fimm gíra
beinskiþtingu eöa fjögurra þrepa sjálfsskipt-
ingu. Verð á beinskiptum bíl er kr.
1.830.000 og á sjálfsskiptum 1.990.000.