Vera


Vera - 01.06.1996, Page 16

Vera - 01.06.1996, Page 16
forstakosningarnar FORSETAFRAMBJÓÐENDUR OG AFNÁM KYNJAMISRÉTTIS Flestum ber saman um að forseti eigi að vera málsvari mannréttinda. Þjóð- félagsþegnar sem beittir eru misrétti vegna litarháttar, trúarbragða, upp- runa eða þess háttar njóta ekki fullra mannréttinda. Sama gildir um mismun- un á grundvelli kynferöis, enda var samþykkt á kvennaráöstefnu Samein- uðu þjóðanna í Kína sl. haust að kven- réttindi væru mannréttindi. Hvernig munt þú styðja baráttu ís- lenskra kvenna fyrir afnámi kynjamis- réttis, náir þú kjöri? Baráttan gegn kynjamisrétti, eins og barátt- an gegn öðrum tegundum misréttis er í eðli sínu sammannleg og enginn er undanskilinn í þeirri baráttu. Það er ekki síður siðferðileg skylda hvítra að berjast gegn misrétti gagn- vart svörtum, en svartra sjálfra. Á sama hátt er það siðferðileg skylda karla ekkí síður en kvenna að berjast gegn kynjamisrétti þar sem konum er mismunað. Nái ég kjöri sem forseti mun ég að sjálfsögðu leggja áherslu á vernd mannréttinda og á almenna sam- stöðu fólks gegn mannréttindabrotum. Það er ekki laust við að það örli á þeirri hugmynd í spurningunni að baráttan fyrir af- námi kynjamisréttis sé einkamál kvenna og að karlar séu ekki vopnabræður kvenna í þessari þaráttu. Auðvitað er það svo að þeir sem misrétti eru beittir hafa ærnari ástæður til að berjast fyrir breytingum, þ.e. hvatinn er meiri fyrir konur aö krefjast breyt- inga en fyrir karla. En málin eru heldur ekki svo einföld aö það misrétti sem kerfið áskapar konunni komi karlinum beint til góða. Kerfi þar sem misrétti viðgengst er í heild aldrei eins skilvirkt eins og kerfi þar sem jafnrétti og jafnir möguleikar eru fyrir hendi, af þeirri einföldu ástæðu að misrétti þýðir að ákveðinn hluti fólksins fær ekki notið hæfileika sinna og dugnaðar. Á síðustu misserum hefur einnig kviknað umræðan um stöðu karlmannsins í þjóðfé- laginu á svipaðan hátt og rætt hefur verið um stöðu kvenna áður. Ég tel að sú umræða sé athygli verð og bind vonir við að hún leiði til breytinga á hefðbundnum skoðunum á stöðu karla í þjóðfélaginu, sem á sama tíma verði til að opna nýja mögu- leika fyrir konur. Karlar eiga þvt hagsmuna að gæta, rétt eins og konur, við að afnema kynjamisréttið og þeir, rétt eins og konur hafa siðferðilega skyldu til aö afnema kynja- misréttiö og á það mun ég leggja áherslu. Þó ég geri hér einn þátt að umræðuefni, mun ég að sjálfsögðu styðja þaráttu kvenna, sem karla, gegn kynjamisrétti eins og mér er unnt bæði í ræðu og riti og vonandi með góðu fordæmi. í þeirri kosningabaráttu sem nú er háð hefur komið fram sú skoðun að engin kona geti gegnt embætti forseta eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur. Hún hafi staðið sig svo vel, að nú þurfi að grípa næsta karl svo fylla megi skarðið. Svona skoðanir eru forneskju- legar og augljós firra. Samkvæmt þessum rökum getur kona aldrei tekið við stöðu af annarri konu. Hafi konan gegnt embættinu illa þarf augljóslega karlmann til að taka við og hafi hún gegnt því vel þarf ekkert minna en karlmann til að sinna því. Ég á von á að íslenskar konur dæmi þessi ummæli að verðleikum. 4 4 1

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.