Vera - 01.06.1996, Page 24
áf raldsfæti
Fremstafellssystur
á faraldsfæti
Systurnar frá Fremstafelli,
Áslaug, Friðrika og Helga
Kristjánsdætur eru glaðlynd-
ar og samrýndar þrátt fyrir
að hver þeirra búi í sínum
landsfjóröungi. Á góðum
sumardegi er ekki útilokaö
að sjá þær þrjár, akandi um
fæðingarsveit sína klæddar
gallabuxum.
Þær brugðu sér í fyrsta sinn
þrjár saman út fyrir land-
steinana í október á síðasta
ári og lá leiðin til Danmerk-
ur. Þetta þætti varla frétta-
efni nema fyrir þá sök að
þær eru komnar nokkuö til
ára sinna, allar á áttræðis-
og níræðisaldri.
Ekki fóru þær Fremstafellssyst-
ur samt í verndaða hópferð fyrir
eldri borgara heldur á eigin veg-
um. Þær höfðu litlar áhyggjur af
húsnæöismálunum þar sem
þrjú af barnabörnum Áslaugar
búa T Danmörku og var frekar
slegist um að hýsa þær en hitt.
Áslaug og Helga eru báðar ekkj-
ur og höfðu því nokkuð frjálsar
hendur með heimkomuna. Frið-
rika var hinsvegar viku skemur
en systur hennar enda hafði
hún skilið Jón bónda sinn eftir
einan heima norður á Húsavík.
í byrjun maí fréttist af tveimur
þeirra saman svo undirrituð dreif
sig á þeirra fund ásamt Báru
Ijósmyndara. Helga hafði komið
suður á aðalfund Krabbameins-
félagsins en þennan dag hafði
hún hitt bekkjarsystur sínar úr
Húsmæðrakennaraskólanum.
Áslaug var hinsvegar að undir-
búa aðra Danmerkurferð sem
hún lagði uppí daginn eftir þó
hún væri tiltölulega nýkomin
heim frá Flórída.
Þær eru úr hópi átta systk-
ina frá Köldukinn í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Ein systirin, Ásdís,
dó á barnsaldri og nú eru tvær
þær elstu, Anna og Rannveig,
látnar. Bræðurnir eru yngstir,
Jón og Jónas. Þetta eru lágvax-
in systkini en stór á sinn hátt
því þeim er margt til lista lagt.
Öll eru þau bjartsýn, glaðlynd og
geysilega fróð og hafa gaman af
að spjalla við aðra.
Áslaug
Áslaug er fædd 1911. Hún giftist
ung suður til Reykjavíkur og eign-
aðist fimm börn með manninum
sínum, Sigurði Thorlacius skóla-
stjóra. Hann lést árið 1945 og þá
fór hún aö vinna úti, tyrst á skrif-
stofu hjá KRON og síðar hjá Þjóð-
skjalasafni íslands. Hún lét af
störfum fyrir aldurs sakir fyrir
tæpum fimmtán árum en fýrir
nokkrum árum réði hún sig í sér-
stakt verkefni og hefur nú hluta-
starf hjá safninu. Hún lærði að
nota tölvu og ræður vinnutíma
sínum sjálf og líkar það vel.
Áslaug er mikil málakona og
þó hún hafi ekki gengið mennta-
veginn les hún frönsku, ensku,
dönsku og sænsku sér tll
ánægju. Hún er ágætur smiður
og snillingur í matargerð enda
er hún alltaf með gesti. Matar-
boðin heldur hún í tvennum til-
gangi. Hún heldur góðu sam-
bandi við fjölskylduna en hún á
tæplega sextíu afkomendur og
einhverja tugi af tengdabörnum
og svo horfellur hún ekki sjálf á
meðan.
Áslaug er alltaf á flakki, ým-
isttil útlanda eða til ættingja og
vina um allt land. Ef einhver ger-
ir slátur eða laufabrauð er hún
fengin til hjálpar. Hún gerir sér
enga rellu útaf hlutunum og fer
sínar ferðir á hvaöa ttma árs
sem er og sefur í svefnpoka á
gólfinu ef svo ber undir.
Friðrika
Friðrika er fædd 1916. Hún
flutti seint að heiman því hún
bjó til skamms tíma í Fremsta-
felli ásamt manninum sínum,
Jóni Jónssyni bónda og rithöf-
undi. Þau eru nú flutt út á Húsa-
vík og búa þar T þjónustuíbúð.
Börnin eru fimm, fjórar dætur
Helga og Áslaug á heimili
Áslaugar í Reykjavík.
og einn sonur og barnabörnin á
fjórða tug. Hún gekk í Hús-
mæðraskólann á Laugum og
þykir alveg einstök við matseld-
ina. Hún hefur alla tíð verið
mjög virk í þingeysku sönglífi og
hefur sungið þar I fjölmörgum
kórum. Hún syngur millirödd og
hefur afbragösgott tóneyra,
sumir halda því jafnvel fram að
hún hafi „absolút“-tónheyrn.
Friðrika er afskaplega þægi-
leg í lund en þó rifjaðist ein-
hverra hluta vegna upp fyrir
systrum hennar í Danmerkur-
ferðinni að hún hefur alltaf ver-
ið einstaklega þrjósk. Þessu til
staðfestingar sögðu þær frá því
að hún hafi sem barn aldrei
blásið í snýtuklút þegar átti að
snýta henni. Ekki í eitt einasta
skipti.
Fri&rika Kristjánsdóttir
Helga
Helga er fædd 1919. Hún gekk
I Húsmæðrakennaraskólann og
var m.a. skólastjóri Húsmæðra-
skólans á Akureyri í 6 ár. Það
var þó ekki vegna þess að
henni þættu húsmóðurstörfin
skemmtileg en gaman hafði
hún af því að kenna. Þar kynnt-
ist hún manninum sínum, Jó-
hanni Lárusi Jóhannessyni eðl-
isfræðingi og kennara við MA
en hann er nú látinn. Þau fluttu
að Silfrastöðum í Skagafirði
árið 1951 og eignuðust einn
son. Sonardæturnar eru tvær
og uppkomnar.