Vera - 01.06.1996, Síða 40
.<9
I maí síðastliönum hlýddi ég á skemmtilega
dagskrá hjá Listaklúbbi Leikhúskjallarans.
Schumania hópurinn, undir leikstjórn Hlínar
Agnarsdótturflutti þar Ijóð ogtónlist. Hóplnn
skipa tveir leikarar, Margrét Vilhjálmsdóttir
og Hilmir Snær Guðnason, ásamt tveimur
söngvurum, þeim Jóhönnu V. Þórhallsdótt-
ur, alt, og Sigurði Skagfjörö Steingrímssyni,
bassbarfton. Píanóleikur var í höndum Jó-
hannesar Andreasen. Þessa rómantísku
dagskrá kalla þau Aö nóttu - sviðsettir
dúettar, eftir Robert Schumann, ásamt pí-
anóverkum úr Waldszenen. 12 ástarljóð ým-
issa höfunda, eru sungin á þýsku í þessum
dúettum, en leikararnir fluttu þau fyrst á ís-
lensku. Ljóðunum sneri Karl Guðmundsson,
utan eins sem Matthías Jochumsson þýddi,
en Karl er að góðu kunnur fyrir þýðingar sínar.
Schumania-hópurinn varð til í kringum
áhuga Hlfnar Agnarsdóttur á dúettum Ro-
berts Schumanns, (1810-1856), og við
sviðsetninguna hefur gamall draumur henn-
ar ræst. Hún er einlægur aðdáandi þeirrar
tónlistar sem hér var flutt, eins og segir í
leikskrá: „...þessi tónlist hefur fylgt mér og
sfendurtekin kynni mín hafa styrkt mig f
þeirri trú að hún sé með því fegursta sem
nokkur maður hefur skapað. Hún er eilífðar-
óöur til ástarinnar, til karls og konu og nátt-
úrunnar sem tengir okkur öll saman." Þetta
eru orð að sönnu og rómantískt andrúmsloft
ríkti í Kjallaranum þessa kvöldstund. Við
kertaljós, í fallegri stofu, sátu tvenn lagleg
þör, klædd litrfkum búningum Áslaugar
Leifsdóttur. Yngra parið las eitt Ijóð í einu,
sem síðan var sungið við píanóundirleik.
Flytjendur stóöu sig allir meö prýði og þau
Ætlunin var aft skapa hreinan unaft og því
markmiði hefur hópurinn náft. F.v.: Sigurður
Skagfjörð Steingrímsson bassbaríton, Jóhanna
V. Þórhalisdóttir alt og leikararnir Margrét Vil-
hjálmsdóttír og Hilmir Snær Guðnason.
Ljósm.: Guðmundur, ímynd.
einkum flutt 1 stofum, og tókst vel að mynda
náið samband við áheyrendur á þessari sýn-
ingu. En þá voru það sérréttindi aðalsins að
hlýða á tónlist Schumanns. „Að nóttu" var
flutt í Borgarleikhúsinu T vor, við mjög góðar
undirtektir, en framundan erferð um landið.
Vonandi eiga margir eftir að njóta góðrar
kvöldstundar með Schumania-hópnum. Ég
óska aðstandendum sýningarinnar til ham-
ingju með framtakið.
Vala S. Valdimarsdóttir
i
Margrét og Hilmir Snær sýndu leikræn tilþrif
viö upplesturinn. Ljóðatextar, ásamt þýöing-
um eru í leikskránni, sem gaman er að eiga.
Það var ánægjulegt að heyra í Sigurði Skag-
fjörö Steingrímssyni, sem ég hafði ekki
heyrt syngja áður. Rödd hans er mjúk og
hljómfögur. Jóhanna V. Þórhallsdóttir hefur
fallega altrödd og sviðsframkoma hennar
var bæöi einlæg og eðlileg.
í hléinu heyrði ég Hlfn segja við einn
áhorfandann að ætlun hennar með svið-
setningunni hafi verið aö skapa hreinan
unað. Því markmiði hefur hópurinn náð.
Dúettar Schumanns og hin fögru ástarljóð
hrærðu örugglega þau hjörtu sem slógu í
salnum. Fyrir áhrif leikhússins tókst að
leggja frekari áherslu á rómantíkina sem
tónlistin og Ijóðin búa yfir.
Fyrir tíma fjölmiðlanna voru tónlist og Ijóö