Vera - 01.12.1997, Side 8
55
y n j u ö
s ý n
Samþætting jafnréttismála
í starfi ÍTR og ÍTA
Iþrótta- og tómstundaráö
Reykjavíkur (ÍTR) og íþrótta-
og tómstundaráö Akureyrar
(ÍTA) vinna nú aö verkefni í
jafnréttismálum. Verkefnið er
samnorrænt og mun standa
yfir í þrjú ár, frá árinu 1997
til 1999, og er styrkt af Nor-
rænu ráðherranefndinni. Verk-
efnið byggist á nýjum hug-
myndum um samþættingu
jafnréttishugsjónar. Markmiö-
ið er aö þróa aðferðir sem
hægt er að nota til að sam-
þætta sjónarhorn kynjajafn-
réttis í alla almenna stefnu-
mótun. Ákvarðanir verða
lagðar fram út frá sjónarmiði
jafnréttis og kvenfrelsis
þannig að áður en mikilvæg-
ar ákvarðanir eru teknar á að
greina stöðu kynjanna og
meta hugsanleg áhrif ákvarð-
ana á þá stöðu. Vera hitti
Steinunni V. Óskarsdóttur
formann ÍTR að máli og
ræddi nánar við hana um
verkefnið.
Hverjar eru forsendur verkefnisins?
„Drífa Hrönn, sem var að vinna á
Skrifstofu jafnréttismála, hafði samband
við mig og kynnti fyrir mér verkefnið sem
hafði komið inn á hennar borð frá Nor-
rænu ráðherranefndinni. Mér leist strax
vel á hugmyndina og sá þarna tækifæri til
að prufukeyra þessa aðferð á stofnun eins
og ITR. Upphaflega komu þær forsendur
að utan að æskilegt væri að taka fyrir at-
vinnumál eða æskulýðsstarf ungs fólks,
þannig að ramminn lá fyrir. Auðvitað
verður að segjast eins og er að í byrjun
var þetta mjög ómótað - hvernig áttum
við að gera þetta og hvað var þetta eigin-
lega? Lagt er upp með það að reyna eigi
að þróa aðferðir til að samþætta kynja-
sjónarhorn í allri stefnumörkun ÍTR.
Verkefnið mun standa í þrjú ár og er
styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og
miðar að því að gera ójöfnuð sem finnst á
milli karla og kvenna sýnilegan. Erlendur
ráðgjafi kom hingað í sumar til að kynna
aðferðafræðina og þangað mættu m.a.
framkvæmdastjóri, starfsmannastjóri og
formaður jafnréttisnefndar ÍTR, auk mín.
Hugmyndin er núna að Akureyrarbær
fari í samskonar verkefni og voru fulltrú-
ar þaðan einnig á fundinum. Eftir miklar
umræður þar sem við fórum í marga
hringi, voru flestir komnir með nokkuð
skýra hugsun varðandi verkefnið. Það er
ekki þar með sagt að við höfum öll gleypt
við þessu strax því lengi á eftir ræddum
við þetta og veltum vöngum yfir því
hvernig best væri að nálgast viðfangsefn-
ið. I verkefninu er mikil áhersla lögð á
stefnumótunarvinnu og er mikilvægt að
stjórnendur og stjórnmálamenn séu virk-
GREINILEGA DENBY
Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaöur ÍTR
Hvert er viðfangsefnið, áberslur?
„Við leggjum upp með það veganesti
að kortleggja stofnunina og alla starfsemi
á vegum ÍTR sérstaklega með tilliti til
íþróttamála og starfseminnar í Hinu Hús-
inu. Við vitum að samþætting er ekki eitt-
hvað lausnarorð eða tæki sem mun geta
reddað öllu en við vonumst til að geta
notað þessa aðferðafræði til að átta okk-
ur á hvort mismunur er á þjónustu stofn-
unarinnar gagnvart kynjunum. Þannig
ætlum við að skoða t.d. opinbera styrki
til íþróttafélaga með tilliti til fjölda æf-
ingatíma, aðstöðu og menntunar og
hæfnis þjálfara. I starfsemi Hins Hússins
munum við m.a. skoða hvernig staðið er
að kynningu á þeim möguleikum sem í
boði eru til atvinnulausra ungmenna,
hvort möguleikar séu jafnir fyrir kynin,
t.d. vegna barna o.fl. Einnig ætlum við að
skoða samsetningu starfsmannahópsins
o.fl. Semsagt kortleggja allt sem hægt er
og meta síðan hvort grípa þurfi til ein-
hverra aðgerða til að jafna hugsanlegan
mun. Auðvitað getum við ekki gefið okk-
ur að einhver munur sé en ef hann fyrir-
TeÖka
Laugavegi • Suðurveri