Vera - 01.12.1997, Blaðsíða 37
landsfund þegar mest var og er það mjög gott. Höf-
um hugfast að á landsfund Kvennalistans mæta kon-
ur af áhuga. Við höfum enga kjörna landsfundarfull-
trúa svo engin fer þangað nauðug. Eg held líka að
flestar hafi verið sammála um að fundurinn hafi ver-
ið góður þó svo að dagarnir á eftir hafi verið við-
burðaríkir. A.nt.k. var aflétt því óvissuástandi sem
þjakað hefur samtökin undanfarin ár. Og það hefur
þegar sýnt sig að Kvennalistinn er enn, hvað sem sagt
hefur verið, vettvangur fyrir hugmyndaríkar og bar-
áttuglaðar konur.
Aslaug Thorlacius,
framkvœmdastýra Kvennalistans
ÁLYKTUN UM
SVEITAR-
STJÓRNARMÁL
Á undanförnum árum hafa stórir og mikilvægir
málaflokkar flust yfir til sveitarfélaganna og því er
enn mikilvægara en fyrr aö konur komi aö
ákvarðanatöku á þeim vettvangi.
Landsfundurinn telur brýnt aö Kvennalistakonur
um allt land taki virkan þátt í komandi
sveitarstjórnarkosningum því mikilvægt er aö
rödd kvenfrelsis ogjafnréttis heyrist sem víöast.
Landsfundur Kvennalistans lýsir ánægju sinni
meö virkni Kvennalistakvenna víöa um land við
undirbúning komandi sveitarstjórnarkosninga og
hvetur konur til öflugrar kvenfrelsissóknar.
MÁLEFNAHÓPU R
UM FJÖLMIÐLA
Málefnahópur um fjölmiöla á landsfundi
Kvennalistans 14. - 16. nóvember lýsir yfir
áhyggjum sínum af rýrum hlut kvenna í íslenskum
fjölmiðlum.
Fjölmiölar hefa mikil áhrif á þjóðfélagiö og er
vald þeirra vandmeöfariö. Því teljum viö
nauðsynlegt aö efnistök og starfsmannastefnu
fjölmiöla endurspegli þjóöfélagiö í heild en ekki
aðeins hluta þess.
Viö viljum leita leiða til þess að breyta staðlaðri
ímynd kvenna í fjölmiðlum, þannig að konur séu
ekki njörvaðar niöur í ákveðin hlutverk.
Viö teljum nauðsynlegt aö efnisval, áherslur og
fréttaval fjölmiöla endurspegli þá staðreynd aö
konur eru rúmur helmingur þjóðarinnar. Þess
vegna viljum við jafna hlut kynjanna innan
fjölmiðlanna og gera konum kleift aö gegna þar
áhrifastööum, ekki síður en körlum.
Til aö ná þessum markmiöum viljum við bæta inn
í útvarpslög almennum ákvæðum um aö gæta
beri jafnréttis í starfsmannastefnu og efnisvali
allra Ijósvakamiðla. Að auki gerum viö sérstaka
kröfu til Ríkisútvarpsins, fjölmiöils allra
landsmanna, hvaö varöar jafnan hlut kynjanna.
Því skorum við á menntamálaráöherra að sjá til
þess að Ríkisútvarpið geri jafnréttisáætlanir eins
og öllum ríkisstofnunum er skylt að gera.
Stálblóm í Mosfellsbæ
Ijanúar n.k. frumsýnir Leikfélag
Mosfellssveitar bandaríska leikrit-
ið Stálblóm, í þýðingu Signýjar
Pálsdóttur og leikstjórn Guðnýjar
Maríu Jónsdóttur. Leikurinn gerist í
smábæ í Louisiana fylki og spannar
þriggja ára tímabili í lífi sex kvenna á
aldrinum 19 til 60 ára. Konurnar eru
mjög mismunandi og litríkir persónu-
leikar en eiga það sameiginlegt að
hittast á hárgreiðslustofu á laugar-
dagsmorgnum. Áhorfendur kynnast
lífi kvennanna í sorg og gleði og þeg-
ar mikið liggur við sannast gildi vin-
áttunnar. Sýningarnar fara fram í
Bæjarleikhúsi Mosfellsbæjar við
Þverholt.
Aldrei ofseint
Það er aldrei ofseint að bœta menntun sína.
Hjá okkur getur þú hafið nám á grunnskólastigi eða
framhaldsskólastigi eftir þínum persónulegu þörfum.
Þú getur tekið eitt fag eða fleiri og hagað námshraða
samkvæmt því.
Einnig er fjölbreytt frístundanám í boði:
Tungumál • bóklegar greinar • verklegar greinar •
listgreinar • skokk
Upplýsingar í síma 551 2992
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Frfkirkjuvegi 1,
og í Þönglabakka 4 í Mjódd (nýr kennslustaður)
V
Lffl
37