Vera - 01.12.1997, Síða 20

Vera - 01.12.1997, Síða 20
NIKE harðlega gagnrýnt Fimmtán bandarískar kvennahreyfingar, mannréttinda- samtök, rithöfundurinn Alice Walker og Maxine Walters, oddviti blökkukvenna á bandaríska þinginu, eru á meðal þeirra sem sent hafa forráðamönnum íþróttavörufyrir- tækisins NIKE bréf þar sem fyrirtækið er harðlega gagn- rýnt fyrir illa meðferð á verkafólki í Asfu. i bréfinu er skírskotaö til nýrrar auglýsingaherferðar NIKE þar sem lögö er áhersla á árangur íþróttakvenna og bent á aö bandarískar konur geti ekki keypt NIKE vörur meö góöri samvisku meðan fréttir berist af því aö ungar verkakonur í Kína, Víetnam og Indónesíu sæti hrottalegri meðferð í verksmiöjum fyrirtækisins. í bréfinu er fullyrt aö verkakonunum séu greidd smánarleg laun, þær látn- ar sæta tíðum hóprefsingum ef einni þeirra verði eitt- hvað á, þær séu neyddar til að vinna aukavinnu kaup- laust og þurfi að aukí að sæta kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem NIKE er I brennidepli fýrir illa meðferð á verkafólki f þriðja heiminum. Fyrirtæk- ið kveðst þó hafa bætt ráð sitt og nýlega skýrðu formæl- endur þess frá þvf aö það hefði slitið samstarfi við fjóra indónesíska undirverktaka sem greiddu verkafólki of lág laun og létu þaö vinna við afleitar aðstæöur. Er sjötta skilningarvitið til? Það er alþekkt fyrirbæri að konur sem búa í nábýli, þó ókunnugar séu, og þær sem umgangast mikið, stilla tíðahringi sfna ósjálfrátt saman. Einnig hafa tilraunir sýnt að konur sem koma reglulega nálægt karlmanni hafa sfður óreglulegar tiðir en þær sem ekki gera það. Enginn veit nákvæmlega hvers vegna þetta gerist en þetta get- ur gefið ákveðna vísbendingu. Vera kann aö menn, líkt og dýr, hafi samskipti ómeðvitað í gegnum efni er kallast ferómón, en það er lyktarhormón - boöefni sem einstak- lingur gefur frá sér, oft í tengslum viö kynhegöun og hef- ur áhrif á einstaklinga sömu tegundar. í mönnum er Iftið Ifffæri við nefgöngin (vomeronasal organ) sem vísinda- menn töldu að áður fyrr hefði þjónað frummönnum en væri nú úrelt. Sú skílgreining er nú á undanhaldi. Nú telja sumir að þetta líffæri innihaldi ferómón sem sendi skilaboð til heilans og það hafi áhrif á skapsmuni okkar og kynlíf. Enn hefur þó ekki tekist að sanna að ferómón sé f mönum en takist það á ilmefnaiðnaðurinn eflaust eftir að taka við sér og hefja efnaframleiðslu sem kann að hafa áhrif á hegðun okkar. Newsweek, október 1997 Ungar konur í ófrjósemisaðgerð Núorðið fara margar breskar konur, á þrftugsaldri, í ófrjó- semisaðgerð. Þær segjast velja barnleysi til að geta helgað sig starfsframa, tryggt sjálfstæði sitt og til þess að geta notið kynlífs án þess að óttast þungun. Fjöldi þessara kvenna í Bretlandi skiptir nú hundruöum, en læknar og fjölskyldur þeirra eru oft lítt hrifnar af þessari ákvörðun - finnst hún óeðlileg og telja að síðar muni þær naga sig I handarbökin. Á sl. ári fóru 400 barnlausar konur f ófrjósemisaðgerð á ríkisreknum sjúkrastofnun- um, en enn fleiri fóru á einkastofur þvf þar er auðveldara fyrir ungar konur að fá samþykki læknis fýrir aðgerðinni. Fyrir tíu árum síðan fóru aðeins örfáar barnlausar konur í ófrjósemisaðgerð f Bretlandi svo hér er greinilega ákveðin þróun á ferðinni. Flestar þessara kvenna hafa þegar á táningsaldri ákveðið að barnauppeldi muni ekki henta þeim og að aðgerð lokinni finna þær iðulega fyrir miklum létti. Af heilsufarsástæðum hrýs þeim hugur viö að nota pilluna árum saman og þeim finnst aðrar getn- aðarvarnir vera óáreiðanlegar. Þær konur sem sækjast eftir ófrjósemisaðgerð segjast handvissar um aö þær muni ekki sjá eftir ákvörðun sinni síðar, og margar njóta stuðnings maka sins. Þær segja aö sú ákvörðun aö eign- ast barn sé alvegjafn róttæk þeirri að vilja ekki börn og þeim finnst sú andúð sem þær finna fyrir óréttmæt. The Sunday Times, ágúst 1997 Sígild fegurð út tísku Nú eru helstu tískuhönnuðir heims orðnir leiðir á sígildri fegurð og smám saman hefur Ijótleikinn tekið yfir. Þeir segja að fólkið vilji sjá eitthvað nýtt og öðruvísi. Nú vilja tískukóngar ófríðar fyrisætur með skögultennur, Iftil augu og kartöflunef. Útlínur kvenllkamans eiga ekki að fá að njóta sín, nýjasti fatnaðurinn afmyndar jafnvel svo stund- um jaörar við að fyrirsætan líkist viðundri. Karen Elson frá Manchester hefur lengi talið sig vera litla Ijóta andarung- ann f sinni fjölskyldu, en nú er hún nýjasta Chanel-stúlk- an. Hún líkist engan veginn ofurfyrirsætum heimsins en hún er mjög ánægð meö framann. Sumir hrífast meö, aðrir hreint ekki. Gagnrýnisraddir segja að þessir fulltrúar afmyndunar séu kvenhatarar og að leikurinn sé bara geröur í nafni frumleikans. Newsweek, október 1997 Indversk kona hlýt- ur virt bókmennta- verðlaun 37 ára gömul indversk kona, Arundhati Roy, hlaut nýver- ið virtustu bókmenntaverðlaun Breta, Booker-verðlaunin, fyrir skáldsögu sfna The God of Small Things. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar, skrifuð á ensku og segir hún frá tvfburum sem alast upp f Kerala á Suður-lndlandi. Viðfangsefnið er fjölskyldan, ástir, missir og stéttakerfi Indlands. Bókin hefur verið gefin út á 27 tungumálum og hefur selst í 400.000 eintökum. Hún hefur slegiö sölu- met f Indlandi, Englandi, Noregi og Ástralíu. Indverskir gagnrýnendur státa sig af þvf að Roy sé fyrsti raunveru- legi Indverjinn sem hlýtur þessi verðlaun en Roy hefur hvorki starfað né menntað sig erlendis. Sjálf segir höf- undur bókina fjalla um „ástar-lögmálið", það sem ræður þvf hverjir verðskuldi ást og hvernig því sé háttað. Newsweek, október 1997 JÓLADAGSKRÁ HÚS DÝRAGARÐSINS Þaö er alltaf mikið um aö vera í Fjöl- skyldu- og húsdýragaröinum í Laugardal og upplagt fyrir fjölskyldur aö leggja þangað leið sína til að skoöa dýrin. Hægt er að fylgjast meö því þegar dýrun- um er gefiö en á hverjum degi er hrein- dýrum gefið kl. 10.30; selum kl. 11 og minkum og refum kl. 11.30. Ef veður leyfir er svínum hleypt út kl. 14; hreindýr- um gefið aftur kl. 15.30; dýrum í smá- dýrahúsi kl. 15.45; selum kl. 16; hest- um, kindum og geitum ki. 16.15; svínum kl. 16.30 og þá eru líka mjaltir í fjósinu. Allan desember hefur veriö jóladagskrá i garðinum. Jólasveinar koma í heimsókn kl. 15 á hverjum degi en á Þorláks- messu kemur Grýla, mamma þeirra, með síöasta jólasveininum, honum Ket- krók. Laugardaginn 20. des. syngur Stúlknakór Reykjavíkur í garðinum kl. 15.30 og einnig mánudaginn 22. des. kl. 14.30. Sunnudaginn 21. des. sýnir Möguleikhúsið leikritið Hvar er Stekkja- staur? kl. 14 og kl. 14.30 leikur lúöra- sveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Á Þor- láksmessu sýnir brúðuleikhúsið 10 fing- ur leikritiö Jólaleik í garðinum kl. 14. Reglur um skjúvinnu eiga að tryggjja öryggi eg hollustu þeirra sem vinna við tölvu. Samkvæmt reglunum ú að: Veita upplýsingar og fræðslu Starfsmenn eiga rétt ó að fé upplýsingar um alla þaetti öryggis og hollustu er tengjast vinnu þeirro við skjá. Þeir eiga einnig rétt á starfsþjálfun. • Mota vinnuaðstæður Atvinnurekendur skulu sjá til þess að gerð sé úttekt á skjáverkstöðvum til að meta hvaða áhrif þær hafa á starfsmenn. Athuga ber sérstaklega áhættu fyrir sjón og líkam- legt og andlegt álag. * Hafa samstarf Hafa ber samráð við starfsmenn og tryggja að samstarf geti orðið sem best um öryggismál, aðbúnað og hollustuhætti. Vinna við tölvu 'sáágB ' (fi • Uppfylla kröfur Nýjar verkstöðvar eiga nú þegar að uppfylla þær kröfur sem fram koma í viðauka reglnanna. Eldri verkstöðvar skal lag- færa fyrir 1. janúar 1997. Reglurnar f jalla einnig um • daglega vinnutilhögun • augn- og sjónvernd starfsmanna Reglurnar fá»t h|á Vlnnuáftlrlitl rílcldns, •Innig lelðbelnlngabækllngurlnn VINNA VIÐ TÖLVU VINNUEFTIRLIT RÍKISINS Bildshötða 1« - 113 Reyk|avík Simi 867 3800 > Brétsiml 867 4086 ■I

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.