Vera - 01.12.1997, Qupperneq 25
verið stofnaðir, annar um jafnréttislögin og
hinn um fæðingarorlof, og einn fræðslufund-
ur verið haldinn. Hann var urn jafnréttislög-
in og þar töluðu nt.a. Sigríður Lillý Baldurs-
dóttir og Brynhildur Flóvenz. í janúar er fyr-
irhugað að halda fræðslufund um fæðingar-
orlof og þá verður stofnaður málefnahópur
undir yfirskriftinni launantál og ráðningar.
„Þegar málefnahóparnir hafa kynnt sér
málefnin vel, vinna þeir að mögulegum
Stýrihópur Kynjavera, f.v. Sóley,
Bolli, Kristbjörg og Erna.
Mynd: Charlotta Hauksdóttir.
lausnum sem verða settar fram á fundi þar
sem allir félagar mega mæta. Þar verða af-
greiddar ályktanir um málið og verður meiri-
hlutakosning látin ráða ef með þarf. Álykt-
anirnar verða síðan kynntar eftir föngum í
fjölmiðlum og á heimasíðu félagsins,“ segir
Erna. „Að því loknu gæti verið að málefna-
hóparnir yrðu lagðir niður,“ bætir Kristbjörg
við.
„Hópurinn um jafnréttislögin fékk Sigríði
Lillý Baldursdóttur í félagsmálaráðuneytinu
til að segja frá 4 ára framkvæmdaáætlun sem
ríkisstjórnin gerði áriðl 995,“ segja Sóley og
Kristbjörg. „Þar er listi yfir atriði sem hvert
ráðuneyti átti að kanna hjá sér og láta fram-
kvæma í því skyni að jafna stöðu kynjanna.
Okkur langar til að athuga hvort þessar
skýrslur hafa verið skrifaðar, hvar þær liggja
og hvort farið hefur verið eftir þeim.“
„Það kom t.d. í ljós á fundinum um jafn-
réttislögin að lögfræðinemum fannst hug-
myndir Brynhildar Flóvenz urn jafnréttislög-
in alveg frábærar og langar að vinna með
þær í lögfræðideildinni. Slík vinna gæti e.t.v.
líka haft áhrif fyrir ]afnréttisráð,“ segir Erna.
„Við rnunum þrýsta á stofnanir og setja
jafnvel frarn mótmæli ef hópunum finnst
ástæða til,“ segir Bolli. „Þetta er sannkölluð
grasrótarhreyfing með fljótandi valdi. Skipu-
lagið er enn í mótun og þessi bráðabirgða-
stjórn mun sitja fram í janúar. Starfið hefur
að mestu legið niðri frá því um ntiðjan nóv-
ember vegna prófa.“
Eftir áramótin ætla Kynjaverur hins vegar
að bretta upp ermar og kynna starfsemi sína
í framhaldsskólum og víðar. Einnig er fyrir-
hugað að koma á fundum með ungliðahreyf-
ingurn stjórnmálaflokkanna og ræða hvað
hver flokkur hefur gert í jafnréttismálum.
„Það þarf að vekja karlmenn til vitundar
um þessi mál. Þeir hafa sofnað á verðinum,“
segir Bolli.
„Við þurfum að hætta að væla ofan í kaffi-
bollana yfir bágri stöðu okkar og óréttlætinu
í þjóðfélaginu," bæta stelpurnar við. Hvaða
óréttlæti skyldi helst hvíla á þeim?
„Einkahagsmuna hugsunarhátturinn í
þjóðfélaginu hefur slæm áhrif. Það er erfitt
að hefja búskap og koma undir sig fótunum
með námi. Margir gefast því upp og skilja.
Um 25 ára aldur hafa margir gift sig, átt
börn og skilið. Mál sem þessu tengjast hvíla
því þungt á okkar aldurshópi, t.d. forræðis-
mál. Við segjum stundum í gríni að það ætti
að banna fólki að eignast börn fyrr en það er
orðið 67 ára! Þá eru báðir foreldrar heima og
þjóðfélagið losnar við að borga fæðingaror-
lof, dagvistun o.fl. o.fl.“ segja krakkarnir í
Kynjaverum og virðast staðráðin í að koma
með lausnir á þjóðfélagsvandamálunum í
nafni jafnréttis. EÞ
Gjafakort 1 Þjoðleikhusið
er kærkomin gjöf c
, 'V'Wfk _ við öll tækifærl! JgP
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
551 1200