Vera - 01.02.2000, Page 14
mabærar þunganir
ó t í
Ég sakna þess
óendanlega mikið
að vera ekki
Ungar mæður nefnist hópur
sem starfar á vegum Cufu-
nesbæjar, félags- og tóm-
stundamiðstöðvar ÍTR í Crafarvogi. Hópurinn samanstendur af stúlkum sem eru á aldr-
inum 15-20 ára og eiga það sameiginlegt að vera ungar mæður. Tilgangur klúbbsins er
að veita þeim tækifæri til að hittast í frítíma sínum og eiga góðar stundir saman. Viku-
lega hittast þær með börnum sínum og er þá lögð áhersla á að spjalla saman og skipt-
ast á skoðunum.
Ég mælti mér mót við fjórar ungar mæður í kjall-
ara Gufunesbæjar. Á meðan ég beið eftir þeim
var mér litið út um gluggann og í skammdeginu
sá ég móta fyrir þremur barnavögnum. Ef vel var
að gáð mátti sjá glaðværar stelpur ýta þeim á
undan sér. Þær nálguðust húsið sem brátt fylltist
af glaðlegu barnahjali og lífi. Það voru dregin
fram leikföng og Irma tilkynnti að Ástbjört Viðja
dóttir hennar væri komin með fyrstu tönnina.
Hinar samfögnuðu og það var auðheyrt að þær
höfðu lengi beðið eftir þessari tönn.
Irma Þorsteinsdóttir er yngst í hópnum. Hún
varð barnshafandi 14 ára og 15 ára varð hún
móðir. Dóttir hennar er nú eins árs. Birgitta Birgis-
dóttir er einnig 16 ára og heldur á syni sinum
Grétari Rafni sem er fimm og hálfs mánaðar.
Anna Kristín Samúelsdóttir var 16 ára þegar hún
eignaðist dóttur sína, Freyju Sól, sem er 16 mán-
aða. Anna hefur áhyggjur af því að dóttir hennar
er með svo lítið hár. Hinar segja henni að það
muni bráðum koma og hún þurfi ekki að hafa
áhyggjur. Gerður Ósk Jóhannsdóttir er 18 ára og
á tveggja ára dóttur sem heitir Kolbrún Emma.
Dóttir hennar er hjá pabba sínum þennan eftir-
miðdag.
Stúlkurnar urðu allar barnshafandi fyrir slysni og
segja að það hafi verið mikið sjokk þegar þær
uppgötvuðu hvernig komið var. Þær eru allar ein-
stæðar mæður og búa í foreldrahúsum. Sam-
böndin við pabbana leystust upp eftir að börnin
komu í heiminn og það er þeirra skoðun að þeir
hafi ekki ráðið við ábyrgðina sem fylgir föðurhlut-
verkinu. Á meðan á meðgöngu stóð sýndu þeir
skilning og tóku þátt I tilhlökkuninni. Þær eru á
því að strákunum hafi ekki fundist eins spennandi
að verða pabbar og þeir höfðu ímyndað sér. Irma
bætir við að þeir hafi ekki skilið þær breytingar
sem konur gangi i gegnum á meðgöngu og eftir
fæðingu. Hugtök eins og fæðingarþunglyndi
voru þeim algjörlega framandi. Birgitta tekur
undir með Irmu en þær hafa báðar þurft að glíma
við þunglyndi eftir fæðingu. „Þeir eru svo miklar
karlrembur og hugsa bara um sjálfa sig," bætir
Irma við og hinar kinka kolli.
Hvernig brugðust fjölskyldur ykkar við
þegar þær fengu tíðindin?
Irma: „Ég var alltaf á leiðinni að fara á pilluna en
kom því aldrei í verk. Ég var á ferðalagi ( útlönd-
Irma Þorsteinsdóttir var 15 ára þegar hún eignaðist
dóttur sina Ástbjörtu Viðju
Birgitta Birgisdóttir 16 ára heldur á syni sínum
Grétari Rafni sem er fimm og hálfs mánaðar.
um með tónlistarskólanum þegar ég komst að því
að ég væri ólétt. Ég varð skyndilega mjög veik á
morgnana og leið hræðilega. Á þessum tíma
gekk hitabylgja yfir og mér leið enn verr. Ég var
mjög veik alla meðgönguna. Þetta var áfall fyrir
fjölskylduna. Við vorum líka mjög fátæk á þessum
tíma. Ég var upp í sveit hjá ömmu og afa um sum-
arið og leið mun betur hjá þeim. Ég komst ekkert
í skólann í 10. bekk vegna veikinda en fékk
kennslu heim þrisvar í viku og tók samræmdu
prófin síðasta vor. Það var þrýst á mig að fara (
fóstureyðingu af félagsmálastofnun og allir þeir
sem ég talaði við hjá þessum stofnunum þrýstu
líka á mig. Ég fékk þau skilaboð að þetta myndi
eyðileggja llf mitt. Mamma upplifði sig ömurlega
móður af því hún sendi mig ekki I fóstureyðingu.
Þegar ég var búin að ákveða mig þá fékk ég hins
vegar mjög góðan stuðning og félagsráðgjafinn
reyndist mér mjög vel. Mamma ákvað að styðja
mína ákvörðun, sama hver hún yrði, og það gerði
barnsfaðir minn lika. Við hættum reyndar saman
stuttu á eftir en höfum verið sundur og saman
síðan Ástbjört Viðja fæddist. Mér finnst þetta alls
ekki hafa eyðilagt líf mitt heldur að það hafi gert
það yndislegt."
Gerður: „Félagsráðgjafinn sem ég talaði við
upp á Landspítala ráðlagði mér eindregið að fara
14 • VERA