Vera - 01.10.2001, Side 3
Rœtur
kvenfyrirlitningarinnar
í þema Veru að þessu sinni er fjallað um margvíslegar hliðar
ofbeldis gegn konum - vændi, heimilisofbeldi og nauðganir -
viðfangsefni sem hafa verið til umræðu á vettvangi kvenna-
hreyfingarinnar frá því þagnarmúrinn í kringum þessar sýnilegu
hliðar ofbeldis var rofinn. Þegar á leið var farið að kalla konur
sem tóku þessi mál upp á sína arma 'fórnarlamba-femínista'
og þær voru svolítið skildar eftir með þessi erfiðu mál. Þær
sem ekki vildu bendla sig við umræðu af þessu tagi töldu sig
þá annars konar femínista - eða vildu alls ekki kalla sig
femínista, bara sterkar konur sem hefðu í fullu tré við karl-
menn.
Við köllum þessa umfjöllun 'menningarbundið ofbeldi' og
viljum með því beina sjónum að rótum þess misréttis sem
konur hafa verið beittar í gegnum tíðina og fær stuðning úr
menningunni og trúarbrögðunum. Maður sem lemur konu
sína heima fyrir eða ungur piltur sem nauðgar stúlku á útihá-
tíð hafa fengið þau skilaboð úr menningunni að svona megi
þeir haga sér. Kvenfyrirlitningin sem býr að baki verknaðinum
hefur síast inn í þá úr umhverfinu.
Undanfarið hefur mikil umræða átt sér stað f þjóðfélaginu
um kynlífssiðferði ungs fólks sem ástæða þykir til að hafa
áhyggjur af. Fréttir berast af því að á höfuðborgarsvæðinu
standi menn um tvítugt fyrir partíum og bjóði 14 og 15 ára
gömlum stelpum þangað og láti þær þjóna kynlífsþörfum
þeirra. Frásagnir af þessu hafa verið á netsíðunni action.is og
vakið hörð viðbrögð. Hvort sem þessar tilteknu frásagnir eru
sannar eða ekki segja þær mikla sögu um þau áhrif sem klám-
væðing undanfarinna missera hefur haft á ungt fólk. Er nú svo
komið að a.m.k. þrjár klámmyndarásir sjást f sjónvarpi margra
landsmanna að þeim forspurðum. Frelsið miðast sem sé ekki
lengur við að fólk velji - það hefur ekkert val.
Einn þáttur í íslenskri menningu eru útihátfðir um verslun-
armannahelgina. Óhjákvæmilegur fylgifiskur þeirra eru nauðg-
anir sem virðast hafa færst í vöxt. Það er sem sé álitið eðlileg-
ur fórnarkostnaður að eftir hverja verslunarmannahelgi hafi
tugir ungra stúlkna orðið fyrir áfalli sem getur búið með þeim
árum og áratugum saman. Þessar nauðganir verða sífellt gróf-
ari, bæði eru notuð svefnlyf til að ná fórnarlambi og færst hef-
ur í vöxt að margir strákar nauðgi einni stelpu. Hvaðan í
ósköpunum fá þeir hugmyndir um að haga sér svona? Hvaða
menning hefur gert það að verkum að þeir geti yfirhöfuð hugs-
að sér að eiga aðild að slíkum verknaði? Við þessum spurning-
um hafa konur aðeins eitt svar: Að byggja sjálfar sig upp. Að
búa til vörn inni í sjálfum sér. Að láta ekki bjóða sér kynlífsat-
hafnir sem þeim hugnast ekki sjálfum. Að sama skapi verður
að byggja unga karlmenn upp. Að þvo úr höfðum þeirra hug-
myndirnar sem hvetja þá til slíkra óhæfuverka. Þær hugmyndir
er að finna út um allt í samfélaginu. Hugmyndirnar sem valda
menningarbundnu ofbeldi.
+ PLÚS
I
Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar og
lögreglu
um ástand mála í miðborginni fyrir að
leggja til að einkadans verði bannaður á nektar-
dansstöðum og að dansarar megi ekki sitja i fangi
viðskiptavina. Reglur af þessu tagi eru í gildi í
mörgum löndum, t.d. í Danmörku.
Héraðsdómur Reykjavíkur
fyrir að dæma
formann Félags þjóðernissinna fyrir meiðandi um-
mæli í garð Afríkubúa. Ef lög um að bannað sé
að vera með meiðandi ummæli um fólk á grund-
velli litarháttar, kynþáttar, kynhneigðar eða ann-
arra einkenna eiga að vera í gildi verður að fara
eftir þeim.
90 ára afmælisblað Háskóla íslands
sem
var fylgirit með Morgunblaðinu. Það var til fyrir-
myndar hve sögu kvenna innan skólans var vel
leg og saga karla.
Blaðið What's on ir í Reykjavík
fyrir þá
ákvörðun að hætta að birta auglýsingar frá nektar-
dansstöðunum i blaði sinu en það er oft eitt það
fyrsta sem erlendir ferðamenn lesa þegar þeir
koma til landsins. Þá hafa þeir reyndar lesið Atl-
antica í flugvélinni og þar er þessar auglýsingar
enn að finna.
MIN
Kringlan
fyrir auglýsingu um Tískudaga sem birt-
í sjónvarpinu og Morgunblaðinu. 14 til 15 ára
stúlka gengur í átt að myndavélinni í stuttum hlýra-
kjól, horfir í myndavélina, bítur í vörina, lætur síð-
an kjólinn falla á gólfið og gengur burt.
Stöð 2 og Breiðbandið
fyrir að senda út
klámmyndarásina Adult channel. I Fjölvarpi
Stöðvar 2 breytist rásin Animal Planet í þessa
klámmyndarás kl. 11 á kvöldin. Skyldu öll börn
vera farin að sofa þá?
Stjórn Knattspyrnusambands íslands
fyrir
að eyða meiri peningum í ferðalög fyrir sig og
styrktaraðila sína heldur en í kvennaknattspyrnu.
Það var hróplegur munur á því hve miklum pening-
um var eytt í kringum landsleik karlaliðsins í Dan-
mörku og jafn mikilvægan landsleik kvennaliðsins
á Spáni nýlega.