Vera - 01.10.2001, Qupperneq 20
„Mér fannst túlkun femínista á ofbeldi gegn konum vera
trúverðugust," segir Sólveig Anna um doktorsritgerS sína.
áhrif þess að gagnkynhneigð hefur verið talin eðlileg og
föst siðfræðileg viðmiðun og í framhaldi af því er talið
að kynlíf og ást séu náttúruleg og eðlileg fyrir gagn-
kynhneigða, á sama tíma og það er talið óeðlilegt og
jafnvel óæskilegt fyrir samkynhneigða. Mig langar að
greina og þróa þessa umræðu áfram innan siðfræði-
nnar í ljósi breyttra tíma og í ljósi guðfræðilegrar og
siðfræðilegrar umræðu um réttlæti. Þar mun ég styð-
jast við kenningar sem gagnrýna og hafna hinu
gagnkynhneigða forræði, en þær koma úr kvenna-
guðfræði, félagsfræðum og úr guðfræði homma og les-
bía. Ég vonast svo til að geta sett fram trúverðuga og
vel ígrundaða kristna siðfræði um kynhneigð, kynlíf og
ást sem útilokar enga vegna kynhneigðar." Sólveig segir
að ástæðan fyrir þvf að hún vill nú snúa sér að sið-
fræðilegri umræðu um samkynhneigð sé sú að í
doktorsritgerðinni valdi hún að sleppa þeim þætti og
einbeita sér að konum. Meðan hún vann að ritgerðinni
dvaldi hún í eitt ár í Bandaríkjunum þar sem þessi
umræða er mjög lífleg. Hún kynntist Ifka samkyn-
hneigðu fólki og segist hafa fengið áhuga á málefninu
vegna almenns áhuga á réttlæti og guðfræði.
Eftir að Sólveig Anna kom heim hefur hún haft nóg
að gera. Hún mun kenna við Leikmannaskóla kirkjunnar
vorið 2002 og er vinsæll fyrirlesari. Nýlega hélt hún
fyrirlestur hjá Rannsóknastofu í kvennafræðum sem
hún kallaði Menningarbundið ofbeldi - undirgefni og
eðli kvenna í guðfræðilegri umræðu. Þar rakti hún
hvernig kvennaguðfræðingar hafa tengt ofbeldi við það
hvernig konur eru sýndar, gerðar og skapaðar í guð-
fræðinni. Sá fyrirlestur tengist einnig efni málstofu sem
hún hélt á Kirkjudögum á Jónsmessu í sumar og
nefndist Ofbeldi karla gegn konum og áratugur kirkjun-
nar gegn ofbeldi. Þarteiknaði hún upp skýringarmynd
af því hvernig líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi byggist
á kerfisbundnu og menningarbundnu ofbeldi.
Þríhyrningur
ofbeidis
Persónubundið ofbeldi
Kerfisbundið ofbeldi
Menningarbundið ofbeldi
Persónubundið ofbeldi:
ofbeldi milli persóna, óþreifanlegt ofbeldi, líkam-
legt, kynferðislegt, jafnvel andlegt ofbeldi.
Kerfisbundið ofbeldi:
ekki óþreifanlegt eða sýnilegt ó sama hótt og
hið persónubundna. Byggt inn í félagslegar,
efnahagslegar og menningarlegar stofnanir
þjóðfélagsins.
Menningarbundið ofbeldi:
þegar maður notar hluta menningararfsins,
hugmyndir, þekkingu eða vísindi, styðst t.d. við
ókveðnar kenningar innan guðfræði til að rétt-
læta persónulegt og kerfisbundið ofbeldi.
20