Vera - 01.10.2001, Page 26
Lögreglu er heimilt að fjarlægja
ofbeldismann frá heimili tafarlaust ef
hún telur að hann ógni lífi, heilsu eða
frelsi fórnarlamba sinna.
Markmið hinna nýju laga er að uppræta heimilisof-
beldi. Leiðin að þvf marki er að einblína á gerendurna,
þá sem beita ofbeldi, í stað þess að hlúa endalaust að
fórnarlömbunum. Femfnistar, sem hér fengu óvæntan
stuðning frá lögreglunni, bentu á að það væri tímabært
að ofbeldismennirnir öxluðu sjálfir félagslega og
lagalega ábyrgð á gerðum sínum þannig að ofbeldið
raskaði fyrst og fremst tilveru þeirra sjálfra. Hin hefð-
bundna leið sem víðast er farin felst í því að rífa konur
og börn úr sínu daglega umhverfi á meðan ofbeldis-
maðurinn situr heima og heldur sínu striki. Við gerð
nýju laganna kölluðu femínistar ríkið og ríkisstofnanir
til ábyrgðar og kröfðust þess að öryggi kvenna og barna
inn á þeirra eigin heimilum væri tryggt. Enda liggur nú
fyrir yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna frá 1993 þar sem
heimilisofbeldi erskilgreint sem mannréttindabrot
gagnvart konum. Náið samstarf og samvinna fjölmargra
ólfkra aðila og stofnana reyndist nauðsynleg forsenda
þess að lögin væru yfirleitt framkvæmanleg. Til dæmis
eru lögreglumenn nú skyldugir til að taka námskeið um
heimilisofbeldi sem skipulagt er af femínistum með
sérþekkingu á málefninu. í gegnum slík námskeið hefur
á undanförnum árum myndast náin og góð samvinna
með kvennahreyfingunni og lögreglunni. Lögin saman-
standa af þremur lykilatriðum:
1. Brottnámi ofbeldismanns. 2. Lögbundinni að-
stoðarskyldu við þolendur ofbeldis. 3. Afskiptum og
eftirliti með ofbeldismanni í kjölfar brots.
Brottnám ofbeldismanns
Mikilvægasta ákvæði hinna nýju laga er ákvæði sem
heimilar lögreglu að fjarlægja ofbeldismann frá heimili
tafarlaust ef hún telur að hann ógni lífi, heilsu eða
frelsi fórnarlamba sinna. Heimild til brottnáms er þó
ekki takmörkuð við heimilisofbeldi heldur nær hún yfir
hverskyns ofbeldisfullar aðstæður á heimili. Þannig má
fjarlægja húseigenda ef hann beitir leigjendur sína
ofbeldi, eins veita lögin samkynhneigðum fulla vernd
gegn ofbeldisfullum mökum en slík heimild var ekki
fyrir hendi f gömlu lögunum. Brottnámið gildir í 10
daga en innan 48 stunda þarf lögreglan að tilkynna það
yfirvöldum. Kona getursótt um að brottnámstíminn sé
framlengdur, allt upp f 20 daga. Á þeim tíma er hægt
að sækja um nálgunarbann sem getur þá varað í allt að
þrjá mánuði. Brottnám ofbeldismanns frá heimili er að
fullu á ábyrgð lögreglu. Ekki þarf að leita eftir samþykki
fórnarlambs. Ef ofbeldisþoli, (kona), tekur ofbeldis-
manninn inn á heimilið á þeim 10 dögum sem bann-
tíminn varir er hún að brjóta lög og þarf að borga sekt
fyrir. Brottnámió takmarkast ekki við heimilið eingöngu.
Ofbeldismanni er gert að halda sig frá öllum mikil-
vægum stöðum sem kona og börn þurfa að sækja í sínu
daglega lífi, svo sem dagheimili, skóla og vinnustað. Að
því leytinu svipar brottnáminu til hefðbundins nálgun-
arbanns.
Lögbundin aðstoðarskylda
við þolendur ofbeldis
Femínfskar íhlutunarstöðvar (e.intervention centers)
eru fræðslu-, upplýsinga- og hjálparstöðvar sem
þróuðust út frá þeirri reynslu og þekkingu sem þegar
hafði orðið til í kringum kvennaathvörfin. Samkvæmt
nýju lögunum ber lögreglu tafarlaust að tilkynna brott-
nám ofbeldismanns og íhlutunarstöðinni ber skilyrðis-
laust að hafa samband við konuna sem orðið hefur
fyrir ofbeldi og bjóða henni aðstoð. Það á ekki að bíða
eftir því að fórnarlambið leiti sjálft eftir slíkri hjálp.
Eftirfylgni Miðstöðin heldur sambandi við fórnarlömb
ofbeldis og fylgist með hvernig mál þróast. í þeim til-
fellum sem ofbeldismaður flytur aftur heim eftir bann-
tímann veitir það honum ákveðið aðhald að vita af því
að fylgst sé með heimilinu.
Afskipti af ofbeldismanni í kjölfar brots
Lögreglu ber að upplýsa ofbeldismanninn um hvað
brottnámið felur í sér, svo og um viðurlög við að brjóta
gegn því. Þá ber lögreglu að benda ofbeldismanni sem
gerður hefur verið brottrækur frá heimili sínu á
mögulegt gistirými. Reynslan hefur þó sýnt að flestir
leita til „hótel mömmu." Reynslan hefur sýnt að til að
tryggja fullt öryggi fórnarlamba heimilisofbeldis er
nauðsynlegt að huga einnig að ofbeldismanninum og
vinna fyrirbyggjandi aðgerðir til þess að koma í veg fyrir
að ofbeldið endurtaki sig. Hér kemur til skjalanna
víðtækt samskiptanet allra þeirra aðila sem að málinu
koma og samvinna ólíkra stofnana. Boðið er upp á
námskeið fyrir ofbeldismenn til þess að hjálpa þeim við
að breyta hegðunarmynstri sínu. Reynslan hefur þó
sýnt að minnihluti ofbeldismanna sækir slík námskeið
af fúsum og frjálsum vilja og brottfall af námskeiðum er
hátt. Mikilvægt er að gera ofbeldismanninum það Ijóst
að heimilisofbeldi verði ekki liðið í framtíðinni. Eitt af
slagorðunum sem notað var við kynningu á lögunum
var einmitt: "Rauða spjaldið gegn ofbeldi." Samfélagið
líðurekki lengurslíka hegðun.
Lögreglumenn eru skyldugir til að
taka nómskeið um heimilisofbeldi
sem skipulagt er af femínistum með
sérþekkingu ó mólefninu.
26