Vera - 01.10.2001, Side 31
Fersk blóm, skreytingar, húsgögn 05 gjafavörur
Ári síðar var hún ásamt öðrum
múslimskum Bosníumönnum lokuð
inni í fangabúðum serbneskra her-
sveita. Hún hafði þá þegar horft upp á
aftökur án dóms og laga, þá þegar ver-
ið misþyrmt og nú þurfti hún að
þrauka í kjólgopa einum fata í köldum
bröggum þar sem matur var af skorn-
um skammti og hreinlæti ekkert. Eins
og aðrir í búðunum var henni gert að
horfa upp á handahófskenndar aftökur
og misþyrmingar og allan tímann vofði
yfir sú skelfing að vera nauðgað: Að
lokum kom að þvf að einn fangavarð-
anna misþyrmdi henni. Samt var það
bara byrjunin. í næsta nágrenni var
fyrrverandi ferðamannaparadís, mið-
aldakastali sem gnæfði uppi á hæð, og
þangað var hún flutt sem „leikfang"
fyrir hásettan yfirmann serbnesku her-
sveitanna. Þar hófst hörmungarsaga
nauðgana og pyntinga sem stóð í rúm
fjögur ár. Orðið „nauðgunarbúðir" er í
senn óskiljanlegt og skelfilegt og þau
sem stóðu fjarri átökunum á Balkan-
skaga gera sér sjaldnast nægilega vel í
hugarlund hvað felst í þeim. í sögu
Leilu er sagt frá hvernig stríðsaðilar á
Balkanskaga smöluðu konum saman í
búðir eða lokuðu þær inni í yfirgefnum
byggingum og héldu þeim föngnum
eins og dýrum svo árum skipti -
skítugum og svöngum, dofnum og
sinnulausum af sálrænu álagi. Þeim
var oft nauðgað mörgum sinnum á
dag, sama hve illa þær voru á sig
komnar. Sumar frömdu sjálfsmorð.
Aðrar misstu vitið og voru umsvifa-
laust skotnar. En sfðan voru aðrar sem
lifðu af og Leila er ein þeirra. Hér segir
hún sögu sína allt frá því að hún var
að alast upp til þess dags þegar hún
var skyndilega hrifinn inn í hildarleik
sem henni var jafn óskiljanlegur og
okkur. Inn f söguna er síðan fléttað
dagbókarbrotum móður hennar sem í
fimm ár vissi ekkert um afdrif dóttur
sinnar. Að stríðinu loknu dvaldi Leila í
sex mánuði á geðsjúkrahúsi sem ætlað
var konum sem eins var ástatt um.
Smám saman náði hún nægilegum
styrk til að segja sögu sína, til að
halda niðri mat, til að sofa nokkurn
veginn reglulegum svefni. Hún er 25
ára, ung kona sem stríðið stal æskunni
frá. Saga hennar er í senn viðvörun og
áminning til okkar sem búum í sömu
heimsálfu en finnst eins og við búum í
öðru sólkerfi. Þetta er saga fórnar-
lambs grimmúðlegs borgarastríðs
sögð af styrk þess sem ætlaði sér þrátt
fyrir allt að halda Iffi og reisn.
Um bókina
og húsgögn
t>að er auðvelt að setfa sig í spor
Leilu áður en stríðið í Bosníu
Piófst. Hún var 14 ára unglings-
stelpa sem filustaði á sömu popp-
músíkina og jafnaldrar fiennar
um alla Evrópu. Það voru plaköt
af Michel Jackson uppi á vegg í
kerberginu hennar, hún las sög-
ur Danielle Steele og þar sem
henni gekk vel í skólanum var
hún ákveðin í að fara í viðskipta-
nám seinna meir. Hún var lífs-
glöð og bjartsýn stelpa þrátt fyr-
ir að heimilisaðstæður væru ekki
alltaf sem bestar.
Glæsilegt úrval blóma og blóma-
skreytinga fyrir öll tækifæri.
Einnig bjóðurn við mikið úrval
af húsgögnum og gjafavörum.
Opið mánudaga til laugardaga kl. 10-22 og sunnudaga kl. 11-21
Fákafeni 11
108 Reykjavík
Sími 568 9120
Fax 568 9117