Vera - 01.10.2001, Síða 47
Lokaorð
Leiðir þessara tveggja kvenna lágu ekki saman
nema að litlu leyti. Þær áttu báðar þátt í stofnun
Landspítalasjóðs 1916. Þær voru báðar viðstaddar
merkisatburði á þessum tíma, ýmsa kvennafundi og
vissu ætíð hvor af annarri í kvennaþaráttunni. Ekki er
annað að sjá í gögnum en að þær hafi borið hvor
annarri vel söguna. Bríet birti ræður Ingibjargar og
skrifaði greinar um Kvennaskólann í Reykjavík í
Kvennablaðið. Ingibjörg bar fram tillögu á Alþingi þess
efnis að Bríet fengi styrk til utanfarar til þess að sækja
fund Alþjóðakvenréttindasambandsins í Berlín (1930).
Vegna þess hve ólíkar þær voru má segja að Bríet og
Ingibjörg hafi "bætt hvor aðra upp" og með baráttu
sinni fyrir kosningarétti og kjörgengi kvenna hafi þær
stuðlað að því að gera íslenskt samfélag betra og rétt-
látara. Bríet og Ingibjörg rufu þagnir sem varð til þess
að rödd kvenna heyrðist loksins með öllum sínum
blæbrigðum og konur fóru smám saman að gera sér
grein fyrir þvf að þær höfðu hlutverki að gegna á fleiri
sviðum en innan veggja heimilisins og við barna-
uppeldi; að konur gátu og áttu rétt á þvf að þroska sig
sem einstaklinga á hinum ýmsu sviðum samfélagsins,
alveg eins og karlar.
Raddir Ingibjargar og Bríetar heyrðust, ekki ein-
göngu vegna þess að þær kunnu að tala. Þær heyrðust
vegna þess að þær gengu fram fyrir skjöldu og hófu
upp raust sína frammi fyrir allri þjóðinni. Brfet steig á
stokk og hélt opinberan fyrirlestur, hún skrifaði svo
rödd hennar barst á prenti til þjóðarinnar. Ingibjörg
hélt ræður á Austurvelli (7. júlf 1915 og 19. júní 1916)
og talaði til þjóðarinnar. Hún hóf upp raust sfna á
Alþingi íslendinga. í Kvennaskólanum barst rödd
hennarvíða. Stúlkurnar sem hlýddu á rödd hennar
tóku hana til sín og létu hana enduróma. Það sem
skipti þó sköpum og kemur fram í eigindlegu
rannsókninni er að Bríet og Ingibjörg höfðu persónu-
eiginleika og styrk sem gerði þeim þetta kleift. Enn í
dag hljóma raddir Ingibjargar og Bríetar meðal fsl-
enskra kvenna, og mun svo verða um ókomna tíð.
Bríet og Ingibjörg skrifuðu nafn sitt á spjöld sögunnar
með lífi sínu. Þær plægðu akur sem skipti sköpum
bæði fyrir konur og karla í íslensku samfélagi.
I samfélagi manna eru tvö kyn sem mynda eina
heild. Ef raddir annars kynsins hljóma líkt og hljóm-
kviða miðað við veikan enduróm hins, verður mis-
hljómur. En ef grunntónar og yfirtónar með öllum
sínum blæbrigðum hljóma saman sem ein heild
verður sterkur samhljómur.
V
Tvíbreiöar dúnsængur og
sængurverasett úr
siikidamanski.
•Íl^rdir 2 x 2 og 2 x 2.20
Koaa^r, íúrvali
Á horni Skólavörðustigs og Klapparstigs S: 551 4050