Vera - 01.10.2001, Side 48
rannsóknarinnar ber ég ábyrgð á birt-
ingu niðurstaðna og eins að gögn og
gripir frá henni séu varðveitt. Fornleifa-
rannsóknir skiptast oftast í tvo þætti,
annars vegar uppgröft og hins vegar
úrvinnslu á þeim gögnum sem grafin
eru upp. Uppgreftirnir fara venjulega
fram yfir sumartímann. Þessi vinna er
oft frekar erfið, mikill burður á grjóti og
mold. Úrvinnslan er mjög tímafrek og
því gott að nýta veturna fyrir hana. Við
úrvinnsluna þarf að þrífa og forverja alla
gripi sem finnast, hreinteikna teikningar
sem oft skipta hundruðum og láta
merkja og skrá ljósmyndir. Eins þarf að
skrá öll önnur gögn og gripi. Þá þarf
einnig að velja sýni og koma þeim til
greininga. Samhliða þessu er unnið að
uppgraftrarskýrslum og birtingu
niðurstaðna. Vinna við fornleifa-
rannsóknir er almennt mjög fjölbreytt
og mér finnst hún alltaf spennandi.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
starfið? Fjölbreytileikinn og fræði-
mennskan. Mér finnst Ifka gaman að
vinna við skipulagningu verkefna yfir-
leitt og þykir gott að hafa mikið að gera.
Eins finnst mér þægilegt að geta unnið
úti á sumrin og inni á veturna en það
get ég þegar ég sinni fornleifarannsókn-
um eingögnu. Að vinna við uppgröft er
líka mjög skemmtiiegt og gefandi.
Hvað finnst þér leiðinlegast? Að
þurfa að búa fjarri börnunum og heimil-
inu heilu sumrin þegar ég vinn við upp-
grefti. Mér finnst líka erfitt að vera án
fastra launa. Afkoma mfn er háð náms-
lánum, styrkjum og framlögum ýmis-
konar. Ég eyði alltof miklum tíma f að
leita leiða til að fjármagna bæði nám
mitt og rannsóknir. Fornleifarannsóknir
hafa þá sérstöðu innan hugvísinda-
greina að vera mjög dýrar í framkvæmd.
Það þarf að borga starfsmönnum upp-
grafta laun, greiða fyrir greiningar og dýr
tæki.
Réttindi og fríðindi sem fylgja
starfinu? Að vera námsmaður leyfir
visst frjálsræði hvað varðar vinnutíma
og tilhögun hans en samviskan stjórnar
því að frjálsræði þetta nýtist ekki sem
skyldi. Það er alltaf eitthvað sem liggur
fyrir að gera. Formaður stjórnar
ReykjavíkurAkademíunnar fær greidda
þóknun sem nemur leigu á skrifstofu-
aðstöðu og kostnaðar vegna síma.
Steinunn fornleifafrœdingur
lUafn: Steinunn Kristjánsdóttir
Aldur: 36 ár
Menntun: Fil.mag. í fomleifafræði.
Starf: í doktorsnámi í fornleifafræði,
formaður stjórnar Reykjavíkur-
Akademíunnar.
Vinnustadur:
ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 121,
Reykjavík.
Starfsaldur: 12 ár.
Laun: Óregluleg - námslán, styrkir,
ýmiskonar framlög og greiðslur fyrir til-
fallandi verkefni, greinaskrif og fyrir-
lestra. Þegar mér tekst að krækja í ein-
hverja styrki skerða þeir námslánin,
nema ég geti nýtt þá hreint og beint í
rekstur vegna námsins eða rannsóknir
tengdu því. Mánaðarleg námslán hjá
LÍN fyrir einstætt foreldri með tvö börn
var kr. 132.050 sl. vetur. Ég stunda nám
mitt allt árið um kring og þarf oft að
nýta sumrin til fornleifauppgrafta. Þá
hef ég tekið sumarnámslán eða sótt um
styrki sem ég nýti til framfærslu.
Sumarið 1999 fékk ég til dæmis 450.000
kr. styrk frá NorFA. Hann miðaðist við
ferðir fyrir mig og börnin tvö til og frá
Svíþjóð og uppihald á íslandi á meðan
á 2 1/2 mánaða uppgrefti stóð á
Þórarinsstöðum í Seyðisfirði en hann er
megin uppistaðan í doktorsverkefni
mínu. Uppgröftinn vann ég á eigin
vegum sumrin 1998 og 1999 og fjármag-
naði hann með styrk frá Rannís,
ríkissjóði, Evrópusambandinu og BYKO.
í sumar sem leið tók ég hinsvegar
námslán til að framfleyta mér.
Fjölskylduhagir: Ég bý með
börnunum mínum tveimur sem eru á
unglingsaldri.
Vinnutími: Ég er námsmaður í
framhaldsnámi og ræð því að mestu
mínum vinnutíma. Ég reyni allt hvað ég
get að takmarka vinnu mína við átta
tíma á dag virka daga vikunnar. Mér
finnst best að mæta snemma á morgn-
ana því ég vil helst geta eytt kvöldum
og helgum með fjölskyldu og vinum en
mér tekst ekki alltaf að halda mig innan
þessara marka vegna anna.
Ertu ónægð með launin? Eins og
fram kom hér að ofan þá er ég ekkí með
föst laun.
Hvað myndir þú telja að þú ættir
að fó í laun? 200 - 250 þúsund á
mánuði fyrir fulla vinnu.
Hvar sérðu þig fyrir þér í framtíðin-
ni á vinnumarkaði? í vinnu við forn-
leifarannsóknir, hugsanlega sem sjálf-
stætt starfandi eða tengd kennslu f
greininni.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Fornleifafræðingur.
Starfsábyrgð og skyldur: Stærsti
hluti námsins felst í ritgerðinni sem
byggir á rannsóknarefni sem nemandinn
velur sjálfur. Hluti námsins felst í þátt-
töku í námskeiðum eða kúrsum. Ég fæ
auk þess punkta fyrir birtar greinar og
fyrirlestra. Ég stunda námið við há-
skólann f Gautaborg og þarf því reglu-
lega að fara utan til að taka þátt í
námskeiðum og eins til að hitta
leiðbeinanda minn. Doktorsritgerðin
mín byggir á fornleifarannsókn sem ég
hef skipulagt og stjórnað sjálf en innan
hennar fóru fram uppgreftir á nokkrum
stöðum á landinu. Sem stjórnandi