Vera - 01.10.2001, Síða 52

Vera - 01.10.2001, Síða 52
Góðar minningar Vilborg Dagbjartsdóttir Vilborg önnur Líbanon og Maríu Þorsteinsdóttur fv. formanni A milli þeirra situr Svetlana túlkur. fjórða f.h. Ég á góðar minningar úr fjölbreyttu og öflugu starfi Menn- ingar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna. í þeim kynntist ég fjölda merkra kvenna, sem höfðu mótandi áhrif á mig, og eignaðist tryggar vinkonur, sem ég sakna, flestar þeirra eru nú látnar, þar sem ég var ung þegar ég kom í þeirra hóp en þær sumar komnar á miðjan aldur. Ég nefni sérstaklega Eyborgu Guðmundsdóttur listmálara, skáldin Sigrfði Einars frá Munaðarnesi, Halldóru B. Björnsson ogValborgu Bengtsdóttur, Maríu Þorsteinsdóttur og Þóru Vigfúsdóttur. Samtökin eru deild í Alþjóðasamtökum lýðræðissinnaðra kvenna og áhersla lögð á að rækta erlendu tengslin og stuðia að friði og alþjóðahyggju á erfiðum tfmum kalda stríðsáranna. Samtökin höfðu einnig farsælt samstarf við ýmsa hópa og félög hér til dæmis þegar baráttan gegn Viet-Nam stríðinu stóð sem hæst. Þau áttu fulltrúa í Viet- Namnefndinni og stóðu ásamt henni að móttöku þriggja manna sendinefndar frá Þjóðfrelsishreyfingu SuðurViet- Nam f júní 1967. Minnisstæður er opinn fundur sem Viet- Namnefndin hélt með sendinefndinni í Austurbæjarbíói fyrir troðfullu húsi. Hann var mikilvægt innlegg í baráttuna. Þetta sama ár fór ég ásamt Maríu Þorsteinsdóttur, sem þá var formaður samtakanna en ég varaformaður, til Sovét- ríkjanna. f tilefni 50 ára afmælis Ráðstjórnarrfkjanna buðu kvennasamtökin þar formönnum allra deilda ALK, og einni eða fleirum félagskonum eftir stærð deildanna, á hátíða- þing 8. mars á baráttudegi kvenna. Frá löndum þar sem engar deildir ALK störfuðu var boðið einni konu, svo þarna voru saman komnar baráttukonur frá flestum löndum heims, reyndar þáðu Kínverjar ekki boðið og heldur ekki Albanir, nýbúið var að reka alla kínverska námsmenn frá Sovétríkjunum og það varpaði skugga á þetta friðarþing. Að þinginu loknu var gestunum boðið að heimsækja hin ýmsu lýðveldi og dvelja þar um tíma og kynna sér stöðu og rétt- indi kvenna. Við María völdum Tadsjikistan og vorum eina viku f höfuðborginni Dyushambe. Það var ógleymanleg reynsla að fljúga úr fimbulvetri, frostið var um 30 stig í Moskvu, austur í vorið. Tadsjikar tóku á móti okkur með blóm- strandi abríkósugreinum þegar við stigum út úr flugvélinni. Bókmenntadagskrá um Jakobínu Sigurðardóttur Það eru ómetanleg gæði að hafa átt þess kost að heim- sækja fjarlægar þjóðir og sitja fundi og alþjóðlegar ráð- stefnur með framúrskarandi konum og taka þátt í að semja ályktanir og yfirlýsingar um málefni sem voru efst á baugi hverju sinni. Samtök sem gera manni það kleift eru mikils virði en þegar ég lít aftur verður mér ofarlega í huga starfið hér heima: Stjórnarfundirnir sem oftast voru á heimilum einhverra stjórnarkvenna, vináttan og hlýjan, félagsfundirnir 52 og opnu fundirnir. Tveir dagar voru miklir hátíðisdagar hjá okkur: Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars og friðar- dagurinn 9. maí, þeirra var ævinlega minnst með viðhöfn og opnum fundi. Einn slíkur vará friðardaginn 1967 í Lindar- bæ. Þá efndu samtökin til kynningará verkum lakobínu Sigurðardóttur og buðu henni og kostuðu ferð hennar. Hún var sannarlega orðin þekkt fyrir skáldskap sinn enda húsfyl- lir og mikil hrifning á samkomunni. Að venju var í upphafi flutt ávarp í tilefni dagsins, það gerði María Þorsteinsdóttir formaður, síðan flutti Arnheiður Sigurðardóttir ýtarlegt erin- di um lakobínu Sigurðardóttur og gerði grein fyrir stöðu hennar í íslenskum bókmenntum. Þá las skáldið kafla úr óprentuðu verði og var þvf tekið með miklum fögnuði. Þá var iesið úr Ijóðum hennar, kafli úr Dægurvísu og Snæbjörtu Eldsdótturog Ketilrfði kotungsdóttur. f lokin leiklas Guðrún Þ. Stephensen leikkona smásöguna Maður uppi í staur úr smásagnasafninu Punktur á skökkum stað. Það var svo fyndið og magnað að sjaldan hef ég séð fólk skemmta sér betur. Gamlar bækur skoðaðar í þjóðarbókhlöðu Tadsjikistan. Á neðri myndinni

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.