Vera - 01.10.2001, Page 60
■ ■ M Guðrún M. Guðmundsdóttir
Lesbiu- og
hommafœlni barna
Einn mikilvægur liður í femínísku uppeldi
barna minna er að vekja með þeim rétt-
lætiskennd gagnvart fólki sem lifir ekki
samkvæmt hefðbundinni félagsmótun. Enda er ég
sannfærð um að umburðariyndi og virðing fyrir
margbreytileika mannlífsins sé undirstaða þess að
vera sátt við sjálfa sig og aðra í senn. Markmiðið er
því að hvetja börnin mín til mannréttindavitundar
svo þau noti eigið innsæi til að meta fólk að verð-
leikum og reyna að forða þeim frá því að meta ein-
staklinga útfrá fyrirfram gefnum staðalímyndum.
Þess vegna gladdist ég innilega þegar eldri dóttir
mín kom eitt sinn heim úr skólanum í fyrravetur
rasandi hneyksluð yfir hátterni bekkjarsystur sinnar.
Þær höfðu verið að leika sér í frímínútum þegar
Frábær andlitskrem úr heilsujurtum,
fyrir allar húðgerðir
Rósakrem
næturkrem luxus, sérlega nærandi.fyrir þurra og slappa húð
Morgunfrúarkrem
24 stunda silkikrem.gefur húðinni næringu og silkiáferð
Kamillukrem
dagkrem, rakagefandi, verndar húðina og gefur henni ferskleika
Engin auka ilm- eða litarefni. Náttúruleg og örugg þráa- og rotvörn
Framleiðandi: Urtasmiðjan Svalbarðsströnd
Upplýsingar um sölustaði o.fl: sími 462 4769
Sendum einnig í póstkröfu um allt land
bekkjarbróðir, í hita leiks, hljóp bekkjarsysturina
næstum um koll sem varð til þess að hún öskraði í
bræði: „helvítis hommi!" Eldri dóttir mín spurði um
leið hvað í ósköpunum væri að því að vera hommi
og fékk það svar að henni þætti það ógeðslegt. Þá
sagði dóttir mín að sér fyndist nú bara ógeðslegt að
tala svona um fólk og undir þetta tóku aðrar bekkjar-
systur. Ég hrósaði dóttur minni í hástert fyrir að lúffa
ekki fyrir misrétti heimsins og fyrir að þora að taka
afstöðu. Yngri dóttir mín, sem hafði fylgst grannt
með frásögninni, greip fram í í miðjum klíðum og
sagði í vægri geðshræringu: „|á, en hann er bara 10
ára. Veit strákurinn að hann sé hommi?!" Þarna var
sú yngri augljóslega ekki einu sinni meðvituð um að
hægt væri að nota „hommi" í niðrandi merkingu,
sem mér þótti góðs viti. Ég held að eldri dóttir mín
hafa tvíeflst baráttuhugurinn við athyglina sem ég
veitti sögunni því skömmu seinna sagði hún mér
hróðug frá því að þegar hún hefði leitt bestu
vinkonu sína á skólaganginum hafi hin lesbíu- og
hommafælna bekkjarsystir spurt hvort þær væru
lessur. Þá hafi hún sagt að hún teldi sig of unga til
að vita það en hún skyldi láta hana vita um leið og
hún vissi betur. Stjúpsonur minn, 6 ára, spurði mig
og pabba sinn fyrir skömmu hvenær strákar vissu að
þeir væru hommar. Ég svaraði samviskusamlega að
Siggi vinur minn hefði vitað það frá 9 ára aldri. Þá
viðurkenndi stjúpsonur minn að hafa einu sinni
verið skotinn í strák, lítilli krúsfdú11u frá litlu deild-
inni í leikskólanum. Mér finnst þessi dæmi að ofan
benda til að við getum að einhverju leyti afstýrt því
að börn okkar fordæmi fólk sem á það eitt sökótt að
verða ástfangið af sama kyni. Sem femínisti finnst
mér það skylda mín að halda uppi réttindabaráttu
samkynhneigðra á heimilinu enda sé ég lítinn mun á
misrétti byggðu á kynferði eða kynhneigð. Krakkar fá
litla sem enga formlega vitneskju um tilveru lesbíu
og homma í menntakerfinu og alltof sjaldan frá
foreldrum sínum og því vart hægt að undrast að í
þeirri þögn myndist fordómar sem brjótast út í
notkun níðyrða. Ég kýs að taka ekki þátt í þögn sem
byggir á fordómum og stuðla þannig að sálarkvölum
barna minna ef eitthvert þeirra kysi að kom út úr
skápnum í framtíðinni og um leið koma í veg fyrir að
þau valdi öðrum skaða með þeim hætti.