Vera - 01.10.2001, Qupperneq 61
ÖYo one cem deny
"It s toasted
LUCKY
Arndís Guðmundsdóttir og Alda Ásgeirsdóttir
Konur þola reykingar
síður en karlmenn
Drottningartóbak
Um miðja sextándu öld hafði Jean Nicot, sem
var sendiherra Frakklands í Lissabon, komist yfir
nokkur fræ af tóbaksjurtinni hjá flæmskum
kaupmanni. Sagt er að hann hafi sent þau
drottningunni, Katrínu af Medici. Þegar Nicot
kom heim til Parísar var hann beðinn um að
gera tilraun til að lækna þrálátan höfuðverk
Katrínar drottningar með þessu nýja meðali.
Blöðin voru möluð í fínt duft og hennar hátign
var sagt að sjúga það eins langt upp í nefið og
hún mögulega gæti - það var þá talin hin beina
og eðlilega leið til heilans. Þetta kvað hafa hri-
fið. Drottningin tók að hnerra og „vondar gufur"
losnuðu úr læðingi og sjúklingnum leið betur.
Eftir þetta þótti ekki við hæfi annað en hefðar-
konur tækju í nefið. Tóbaksdósin varð öðru
fremur eins konar stöðutákn.
Kvenímyndin
Ef horft er til baka, sést glöggt að tóbaks-
auglýsingar hafa haft mikið að segja við að
skapa jákvæða ímynd reykjandi kvenna. Tóbaks-
notkun meðal kvenna varð ekki almenn fyrr en
um eða eftir seinni heimstyrjöldina en á þriðja
áratugnum ríkti mikil andstaða gegn reykingum
kvenna. Tóbaksframleiðendur voru fljótir að átta
sig á því að konur eru helmingur mannkyns. Þeir
sáu sér leik á borði þar sem mun færri konur
reyktu en karlar. Tóbaksframleiðendur notfærðu
sér sjálfstæðisbaráttu kvenna og tókst, með
auglýsingaherferðum, að gera sígarettuna tákn
frelsis og jafnréttis. Um 1920 þrefaldaðist salan
á Lucky Strike á tveimur árum og urðu þær mest
seldu sígaretturnar í Bandaríkjunum. Enda voru
þær markaðssettar undir slagorðinu "Fáðu þér
Lucky í staðinn fyrir sælgæti" (Reach for a
Lucky instead of a sweet) og höfðuðu til kvenna
sem vildu vera grannar. Hver tóbaksauglýsingin
á fætur annarri birtist af konum sem máttu sín
meira í samfélagi kynjanna; fágaðar og kyn-
þokkafullar framakonur. Sú ímynd að konur sem
reyktu væru grannar og í "fínu formi" varð æ
sterkari. Árið 1968 tókst tóbaksframleiðendum
Virginia Slim að auka söluna mjög mikið með
slagorðum eins og You've come a long way baby,
Slim (grönn), Mild (mild), Ught (létt), Ultralight
(ofur-létt). Þá er verið að vísa til lægra tjöru-
innihalds, o.s.frv. Eins og rannsóknir hafa sýnt
er ekki síður skaðlegt að reykja léttar sígarettur
vegna þess að fólk sogar reykinn dýpra ofan í
lungu til þess að fá sama nikótínmagn í líkam-
ann. Smám saman hefur tálbeita tóbaksfram-
leiðenda orðið fágaðri og allt er gert til þess að
skapa jákvæða stemningu og ná til undirmeð-
vitundar fólks með tilvísun í ákveðna sígarettu-
tegund. Leitast er við að skapa andrúmsloft sem
tengist ýmsum tilfinningum, svo sem eins og
gleði, fullnægju, þroska, rómantfk, ævintýra-
legum lífsstfl, hreinleika, frelsi - allt eftir þvf til
hvaða hóps er verið að höfða.
Jafnrétti lastanna
Rannsóknir sýna að konur þola reykingar sfður
en karlmenn. Þeim er mun hættara við að fá
lungnakrabbamein og virðist kvenhormónið
östrógen hafa þessi áhrif. í sumum löndum
Evrópu fjölgar lungnakrabbameinstilfellum
hraðar meðal kvenna en karla. Sums staðar er
svo komið að fleiri konur deyja úr lungna-
krabbameini en brjóstakrabbameini, sem fram
að þessu hefur verið algengasta dánarorsök
þeirra. Niðurstöður Hjartaverndar sýna að hætta
á kransæðastíflu eykst hlutfallslega meira hjá
konum en körlum sem reykja. Beinþynning eykst
verulega við tóbaksneyslu og reykingar stuðla
að því að tíðahvörf verða fyrr en ella, þannig að
eggjastokkarnir hætta að framleiða östrógen, en
það er nauðsynlegt til þess að kalkið bindist í
beinum. Einnig hefur sýnt sig að konur sem
reykja finna frekar fyrir tíðaverkjum og óreglu-
legum blæðingum. Ófrjósemi er þrisvar sinnum
algengari hjá konum sem reykja en þeim sem
ekki reykja. Hætta á fósturláti og utanlegsfóstri
er einnig talsvert meiri og árangur tæknifrjóvg-
ana mun minni hjá þeim fyrrnefndu.
Heilsa