Vera - 01.10.2001, Page 72
Verurnar komnar til ad vera
þökkum fyrir þetta allt fyrir
hönd allra lesenda. Við þökk-
um ritstýrunni Elísabetu Þor-
geirsdóttur sem er drifkraftur
blaðsins með dugmikilli rit-
nefndinni, útlitshönnuði og
Ijósmyndurum og fyrirtækinu
Hæni sem safnar auglýsing-
unum. Og ykkur, kæru les-
endur, þökkum við öll fyrir
samstarfið. Öll rekum við
þetta blað í sameiningu.
Nýjum hluthöfum er nú
boðið í hópinn og öllum hlut-
höfum boðið að auka eign
sína í Verunum. Flest okkar
eiga hlutabréf sem eru 5.000
krónur að nafnverði, en mörg
okkar eiga stærri bréf. Styrkj-
um Veru og styðjum. Það
hefur reynst kvennabarátt-
unni dýrkeypt að leggjast í
dvala og láta sig gleymast.
Vera má til með að vera, vera
til og gleðja okkur og hvetja.
Verum öll velkomin á hlut-
hafafund og aðalfund í Hlað-
varpanum mánudagskvöldið
12. nóvember klukkan 20.
Með bestu kveðjum,
f.h, stjórnar Veranna ehf.
Áudur Eir Vilhjólmsdóttir
Hugmyndir um viðfangsefni
nýrrarVeru flugu um salinn
og voru festar á langan lista.
Vera átti að halda áfram að
standa vörð um kvenfrelsi.
Hún átti að fylgjast með,
berjast og flytja bæði fréttir
af konum sem fengu lítið
rými og mikið í öðrum fjöl-
miðlum. Hún átti að segja
frá konum á öllum aldri,
margvíslegum jífsstfl þeirra
og hugmyndum, störfum og
stjórnmálum, hver sem þau
voru. Vera átti að hafa í
frammi gagnrýni á samtím-
ann. Við töldum að það yrði
nauðsynlegasta en erfiðasta
viðfangsefnið.
En það tókst. Umfjöllun-
arefni Veru hafa aftur og aft-
ur vakið athygli og í öðrum
fjölmiðlum hefur verið skrif-
að og talað um vandaða
rannsóknarblaðamennsku
Veru. Það hefur orðið mesta
gleðiefni starfsársins að Veru
tókst að uppfylla bjartar og
djarfar vonirnar sem fundur-
inn setti fram.
Við sem höfum verið í
stjórn Veranna frá í fyrra
Mynd: Sóla
Stjórn Veranna, f.v. Irma, AuSur Eir, Tinna, Ólafía og
Ragnhildur (varakona Svölu).
Ásunnudagssíddegi, 24. september
f fyrra, komu konur í Hladvarpann til
ad sjá um ad Vera héldi áfram ad
koma út. Fundurinn var auðvitad
auglýsturogöllumopinn. Kvenna-
iistakonur sem stofnuðu blaðið og
ráku fram til þessa vildu fela það í
hendur okkar sem komum á fundinn
og vildum taka við þvf. Og þar með
var það ákveðið. Einkahlutafélagið
Verurnar var stofnað og konur og
samtök skráðu sig fyrir hlutafé.
STAÐFESTING A
HLUTAFJÁREIGN
Það staðfestist hér með að
er eigandi að hlut
I Verunum ehf. kt.571000-2450
að nafnvirði
FIMM ÞÚSUND KRÓNUR
Jfíf/aptt}i/a/1 Jfoýhat)24. jr/i/em/cr 2000
t>ý f j/cj/uamnt/iýtt Jefir:
„J7t'/þa/ipur ft/ayjinj er a/^rýa u/
Ae/e/týre/f&JiúnareYá/ 'fleree
au/ annarrar úeytfýu //tfyu /venýre/efj."
f.h. Veranna ehf.
Dags.
'Úl.M. wot UktM(fw^ovMdéofrf
VERURNAR ehf.°
—-----------■
við erum sterkari saman
Hlutahafa- og aðalfundur Veranna ehf.,
einkahlutafélags um útgáfu Veru, verður
haldinn í Hlaðvarpanum mánudaginn
12. nóvember kl. 20.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður á
fundinum rætt um hlutafjáraukningu og
ákvörðun tekin um hana.
Varst þú að hugsa um að kaupa hlutabréf
en hefur ekki látið verða af því?
Þá ert þú velkomin/nn á fundinn. Einnig er
hægt að hafa samband við skrifstofu Veru,
sími: 552 6310 eða vera@vera.is
VERURNAR EHF. VESTURGÖTU 3, 101 REYKJAVÍK