Vera - 01.08.2004, Page 57
Jafnréttisstofa
Málþing og ráðstefna á vegum
Jafnréttisstofu
Jafnréttisstofa stendur fyrir málþingi og ráöstefnu í nóvember nk.
Ráöstefna á Akureyri, 13.-14. nóvember:
Kyngervi, umhverfi og samfélagsþróun
Áherslur íslands á formennsku ári sínu í Norrcenu ráðherranefndinni eru á
auðlindir norðursins sem felastí samfélagi, menningu og nátfúru.
í yfirlýsingum Sameinuðu þjóðanna hefur skýrt komið fram að sjálfbœr
þróun eigi sér ekki stað án þess að jafnrétti kynjanna sé náð. Konur flytja
hins vegar í meira mceli en karlar frá dreifðum byggðum norðurslóða.
Það er því mikilvcegt að kanna samspil kyngervis og umhverfis í að móta
samfélagsþróunina á þessum svceðum. Markmið ráðstefnunnar sem
verður haldin í Háskólanum á Akureyri, er að skapa vettvang fyrir
samstarf á þessu sviði, þar sem frceðimenn og stjórnmálamenn
geta skipst á hugmyndum.
Málþing í Reykjavík 11.-12. nóvember:
Um stööu karla og kvenna á norrœnum vinnumarkaöi
Jafnréttisstofa stendur fyrir málþingi á Grand Hótel um stöðu
kvenna og karla á norrcenum vinnumarkaði. Þátttaka er
öllum heimil, Fyrri dagur málþingsins fjallar um karla í
"kvennastörfum" og seinni dagurinn um kynjaskiptan
vinnumarkað. Nánari upplýsingar um málþingið og
ráðstefnuna er að finna á vefsíðu Jafnrétisstofu.
Jafnréttisstofa. Rannsóknahúsi viö Norðurslóð. 600 Akureyri
Sími 460 6200 • fax 460 6201 • netfang iafnretti@iafnretti.is
www.iafnretti.is