Ljósmæðrablaðið - 15.11.2000, Page 13
Regnbogahjarta — ir$ hevferö í tengslum Oiö
ráöstefnu ráðherra aðilclaiTÍkja \\)HO
Ráðstefna ráðherra aðildarríkja \ðHO um málefni Irjúkrunarfrceðinga og Ijósmöeðra
Formaður LMFÍ fór til Munchen í Þýskalandi til að
sitja ráðstefnu WHO, dagana 15. - 17. júní sl., að
beiðni heilbrigðisráðuneytisins. í ferðinni voru
einnig Sigurður Guðmundsson landlæknir, Vilborg
Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur hjá landlæknis-
embættinu, Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofu-
stjóri hjá heilbrigðisráðuneytinu og Herdís Sveins-
dóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
I tilefni af ráðstefnunni munu Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin — WHO, Alþjóðasamtök Ljósmæðra
— ICM, og Alþjóðasamtök hjúkrunarfræðinga —
ICN efna til herferðar til að bæta heilsu almennings í
aðildarríkjunum.
Tilgangur ráðstefnunnar var að leggja áherslu á
mikilvægi ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga í heil-
brigðiskerfi landanna og sýna fram á hverju þær
stéttir geta áorkað til að bæta heilsu almennings.
Skemmst er frá því að segja að gaman var að sjá
og fylgjast með hve vel okkar fulltrúar stóðu sig —
hve faglega og málefnalega þeir tóku þátt í allri um-
ræðu. Fundir voru frá hádegi 15.júni og til 17.30, frá
kl.09.00 til 17.30 þann lö.júní og síðan frá kl.09.00
til kl. 13.00 þann 17.júní. Var þetta stíf fundarseta en
jafnframt mjög fróðleg og virkilega ánægjulegt að
heyra hve framarlega við á íslandi eru í okkar þjón-
ustu. Greinilegt er að við getum vel við unað miðað
við svo marga þó svo að alltaf megi betur gera.
Stjórn Ljósmæðrafélags íslands lét útbúa plakat til
að vera með á fundinum um heimaþjónustu ljós-
mæðra. Vakti það mikla athygli fundargesta og fékk
ég heilmiklar fyrirspurnir um þjónustuna. Fannst
fólki þessi þjónusta, sem veitt er af ljósmæðrum, frá-
bær og til eftirbreytni fyrir marga.
Borgarstjórinn í Múnchen bauð til móttöku þann
15. júní og var það boð allt hið huggulegasta. Þýska
hjúkrunarfélagið bauð síðan til matar og skemmtunar
þann 16. júní með ýmsum uppákomum eins og ekta
þýskum dönsum og skemmtiatriðum. Einnig var
boðið uppá mat og drykk að þýskum sið. Var þetta
kvöld einstaklega vel heppnað í alla staði.
Ráðstefnan endaði með að ráðherra eða þeirra
staðgenglar undirrituðu yfirlýsingu þar sem lofað er
stuðningi við ljósmæður og hjúkrunarfræðinga til að
verða leiðandi afl í heilbrigðiskerfinu og að hindrun-
um sem vinna gegn því markmiði verði rutt úr vegi.
Öll aðildarríkin 51, sem eiga aðild að Evrópudeild
WHO, vinna nú í samræmi við 21 markmið áætlun-
arinnar „Heilsa á 21.öldinni“.
Stjórn félagsins fjallar um yfirlýsinguna á fundi
sínum og hvernig félagið getur unnið með yfirlýs-
inguna hér á íslandi.
Ástþóra Kristinsdóttir,
formaður LMFI
UÓSMÆÐRABLAPIP
13