Ljósmæðrablaðið - 15.11.2000, Page 21
verið nokkuð notað. Konur hafa valmöguleikann, en
að sjálfsögðu innan eðlilegra marka.
Áhersla er lögð á brjóstagöf og því ekki gefin
ábót nema í völdum tilfellum og snuð eru ekki notuð
nema foreldrar óski þess sérstaklega. Mikið er lagt
uppúr sólarhringssamveru móður og barns og eru
börn því mest hjá mæðrum sínum eftir fæðingu.
Sængurlegan er 4 — 7 dagar að jafnaði en einnig
veita ljósmæður á Suðurnesjum konum heimaþjón-
ustu sem það vilja.
Á síðustu árum hefur verið dregið úr þjónustu
hvað varðar skurðstofu og er nú svo komið að ekki
er hægt að kalla út skurðstofu nema frá kl. 08 til
kl.20 á kvöldin. Þó er útkallsvakt aðfararnótt mið-
vikudags og fimmtudags. Skurðstofan er lokuð um
helgar og er þetta að sjálfsögðu mjög bagalegt og
gerir okkur lífið leitt. Við höfum undanfarið fengið
ljósmæðranema í 6 vikur fyrir og eftir jól og ég held
að allir séu ánægðir með það. Einnig hafa verið hjá
okkur hjúkrunamemar í tvær vikur í senn. Ef vikið er
að kvensjúkdómaaðgerðum sem gerðar eru eru það
aðallega T.V.T., Urethrocystopexiur, Prolapsar, Abd.
og Vag. hysterecttomiur auk annarra aðgerða. Bama-
læknir er hér þrisvar í viku að öllu jöfnu.
Mæðravemd og ungbamaeftirliti er sinnt frá
heilsugæslu HSS og eru tvær ljósmæður sem sinna
aðallega mæðraverndinni og ljósmóðir og hjúkrunar-
fræðingar sem sinna ungbarnaeftirlitinu. Foreldra-
fræðslunámskeið eru haldin reglulega og hefst nýtt
námskeið að jafnaði mánaðarlega. Það er haldið af
ljósmóður, hjúkrunarfræðing og félagsráðgjafa. Sér-
stakir pabbatfmar hafa verið haldnir undanfarin ár
sem hafa mælst mjög vel fyrir. Þessa tíma sá fæð-
ingalæknir (Konráð Lúðvíkssyni) um en vegna anna
hjá honum hafa þeir verið felldir niður að sinni.
Fæðingadeildin hér þjónar Suðurnesjunum og hafa
konur frá höfuðborgarsvæðinu og víðar leitað eftir
þjónustu hingað og í auknum mæli með tilkomu
baðsins. Skert þjónusta skurðstofunnar hefur þó sett
okkur ákveðin höft sem okkur þykir mjög bagaleg.
Feeðingadeild Sjúkrahúss Akraness.
Fnásögn Önnu Bjömsdóttur, Ijósmóður.
Á fæðingar- og kvensjúkdómadeild Sjúkiahúss
Akraness er veitt þjónusta allan sólarhringinn. Þar
starfa 2 sérfræðingar og 9 ljósmæður í tæplega 6
stöðugildum. Deildin er 9 rúma deild, sængur-
kvennapláss og 5 fyrir kvensjúkdóma. Deildin er
mjög vel tækjum búin og til að mynda fengum við
tvo nýja monitora í vor. „Bilibed" fengum við að
gjöf fyrir ári síðan og var það kærkomin gjöf sem
leysti gamla ljósalampann og kassann af hólmi.
Mæður hafa lýst ánægju sinni með að geta nú haft
börnin inni hjá sér í vöggunni meðan á meðferð
stendur. Þjónustan sem veitt er er bæði almenn og
sérhæfð til kvenna á meðgöngu í fæðingu, sængur-
legu og vegna ýmissa kvensjúkdóma.
Á síðasta ári voru fæðingar alls 207 og koma þær
konur af öllu Vesturlandi, Norðurlandi-vestra og stór
Reykjavíkursvæðinu. Svo lítil aukning hefur verið
vegna lokana á fæðingai'deild Landsspítalans og með
tilkomu Hvalfjarðargangnanna. Boðið er upp á her-
bergi í hjúkrunarbústað fyrir þær konur sem koma
langt að og eru á tíma, og hefur það verið notað tölu-
vert, sérstaklega á veturna vegna fjarlægðar og veð-
urs. Meðgöngueftirlit, ungbarnaeftirlit, foreldra-
fræðsla og sónar er þjónusta sem eingöngu er veitt af
ljósmóður/hjúkrunarfræðingi og sérfræðingi sem
starfar á heilsugæslustöðinni og eru góð samskipti á
milli þeirra og fæðingardeildar. Barnalæknir kemur
úr Reykjavík einu sinni í viku og skoðar inniliggj-
andi börn og böm f eftirliti á heilsugæslustöðinni.
Aðstoðarlæknar eru á sólarhringsvöktum í húsinu og
við flestar fæðingar og ef eitthvað fer úrskeiðis er
sérfræðingur á bakvakt kallaður út. Sjúkraliðar að-
stoða ljósmæður við fæðingar. Kennsla ljósmæðra
og hjúkrunarfræðinema er á sjúkrahúsi Akraness og
er hún í höndum tilsjónarljósmóður. Ambúlant þjón-
usta er veitt á SA og nýta sér hana um 240 konur á
ári. Það er monitoring, tensionmælingar, brjósta-
vandamál, mat o.fl. Sú þjónusta er veitt af ljósmæðr-
um. Gynokoliskar aðgerðir og aðgerðir á dagdeild
eru um 300 á ári á SA, undirbúningur fyrir þær flest-
ar eru unnar af sjúkraliðum en fræðsla og eftirlit í
höndum ljósmæðra/hjúkrunarfræðinga. í sængurleg-
unni er veitt fræðsla til sængurkvenna það er brjósta-
fræðsla, brjóstavandamál, sýniböðun og fl. og er
sængurlegan yfirleitt 4-6 dagar. Leikfimi, grindar-
botnsæfingar, bakstrar, starfstellingar, fræðsla vegna
grindarloss er í höndum sjúkraþjálfara. Sem verkja-
stillandi meðferð við fæðingar er boðið uppá ýmsa
valmöguleika svo sem verkjastillingu f vatni (vatns-
pottinn), settar slökunarolíur útí vatnið, það voru 44
konur sem notfærðu sér það á síðasta ári. Vatnsfæð-
ingar voru 14 á síðasta ári eða 6,8% og hefur áhugi á
þeim aukist. Einnig er boðið uppá svæðanudd, vatns-
bóludeyfingu, pudendal block, þrýstinudd, Xylocain
spray á spöngina og hefur notkun þess aukist mjög á
SA, pethidin er mjög sjaldan notað og síðan en ekki
síst epiduraldeyfingar sem svæfingalæknar sjá um.
Entonox hefur ekki verið notað á S A í 18 ár. Foreldr-
ar geta síðan komið með uppáhalds geisladiskinn
sinn og hlustað á róandi tónlist. Rólu fengum við
LJÓSMÆÐRABLAÐIP
21