Akranes - 01.07.1952, Qupperneq 4
}
BifreiðaverkstœSi Sambandsins, bílaverzlun, rafmagnsdeild og vörulager véladeildar við Hringbraut 119 í Reykjavík.
vegferð samvinnuhreyfingarinnar gegnum
ótroðnar brautir hafa þó, eins og Þorsteimi
Erlingsson orðaði það, „fleiri rutt völmn
úr leið, sem veikbyggðir eru og smáir.“
Það hafa þeir gert með samtakamætti sín-
um. Enginn veit tölu þeirra, en trú-
mennska og drengskapur lifir í verkum,
líka þeirra, sem fáir eða jafnvel engir
menn aðrir vissu alf, virtu né mátu.
Já, mikið og voldugt hefir vaxið af mjó-
um vísi. Ég sagði, að fyrstu sambands-
félögin hefðu verið 3. Nú eru þau 55 og
félagsmannatala þeirra 31.343, og er þó
ekki talið með nýjasta sambandsfélagið.
Eaupfélagsmennirnir eru yfir 21% af þjóð-
inni, og er það hærri hundraðstala en
i nokkru öðru landi i heiminum, að Finn-
landi tmdanskildu. Að baki kaupfélaganna
standa í verzlunarlegu tilliti 98.000 manns
eða nálega 67% Islendinga. Starfsmenn
sambandsfélaganna — fastráðnir — eru
nú yfir 1300 og fá í árslaun milli 17 og
18 milljónir króna. Nú eru kaupfélög al-
mennings starfandi á öllum verzlunar-
stöðum á landinu, fyrst og fremst þar, sem
félögin hafa heimilisfang, en einnig í fjöl-
mörgum útibúum þeirra. Eftirtéktarvert
er það í þessu sambandi, að á ekki færri
en 17—18 verzlunarsvæðum eru viðkom-
andi kaupfélög eini verzlunaraðilinn, sem
fyrirfinnst. Einkaverzlanir eru engar, þar
sem ekki þykir sérlega gróðavænlegt að
reka verzlun. Og það sýnir ekki hvað sízt
heilbrigði og styrk samvinnuverzlana, að
duga EINAR, þar sem aðrir ekki treystast
til, sökum erfiðra staðhátta eða fólksfæðar.
Á nokkuð mörgum stöðum er svo að öðru
leyti, með tilliti til sjálfs viðhorfs fólksins
í þessum sökum, enginn grundvöllur Tyrir
einkaverzlun. Árið 1951 nam heildarvöru-
sala sambandsfélaganna mn 532 millj.
króna, þar af aðkeyptar vörur 317 millj.,
innlendar afurðir 117 millj. og eigin fram-
leiðsla 98 millj. kr. Ráðstafaður tekju-
afgangur sambandsfélaganna reyndist s. 1.
ár 8,4, millj kr. Þar af var greitt í Stofn-
sjóð félagsmanna, sem er persónuleg eign
þeirra, kr. 3,3 millj og annað eins í sam-
eignarsjóði. I lok fyrra árs voru 22,4 millj.
kr. í Stofnsjóði, en úr honum er árlega
greitt samkvæmt lögum. Á sama tíma nam
innstæða í sameignarsjóðum 41,9 millj.
kr. Hefir og stundum þurft að grípa til
fjár úr þeim. Hvorug upphæðin gefur því
rétta mynd af því mikla Tjármagni, sem
á undanförnum áratugum hefir gengið til
þessara sjóða, sem hvor um sig á mjög
merkan þátt i þvi að tryggja og rótfesta
— í öðru tilfellinu rekstur félagsheildar-
innar, i hinu afkomu einstaklingsins —
með skipulögðum skylduspamaði til kom-
andi daga og ára, en grulndvöllurinn
undir þeim spamaði er sá fjárhagslegi á-
vinningur, sem af samvinnufélagsverzlun-
inni hlýzt, fyrir utan hina almennu varð-
veizlu heilbrigðrar verðlagsmyndunar,
beinna endurgreiðslna og margháttaðra
eignamyndana annarra en sjóðanna. Ekki
get ég stillt mig um að skjóta því hér inn,
svo merkilegt og minnisstætt, sem það má
vera, að viðhorf kaupfélagsmanna til þess-
ara umtöluðu sjóðmyndana er jafnan ein-
hver öruggasti mæli-
kvarðinn á félags-
þroska þeirra og sanna
samvinnumennsku.
Enginn, sem ekki ann
sjóðum samtaka sinna
og sjálfs sín vaxtar og
viðgangs, á skilið að
kallast samvinnumað-
ur. Hann vantar það
samvinnufélagslega
viðhorf og framsýni,
sem ein gefa rétt til
slíkrar heiðursnafngift
ar.
Sé litið til „kaupfé-
lags kaupfélaganna“—
Sambands íslenzkra
samvinnufólaga, má
minna á fyrstu fjár-
hagsáætlun þess, sem
hljóðiaði á samtals
1.250, þar af 40 kr.
„embættiskostnaður
framk væmda st j órans,1 ‘
sem var eini starfs-
maðurinn þá. Nú er
öldin önnur, má segja.
Sambandið starfar nú
í 4 aðaldeildum, með
sjálfstæðum framkvæmdastjórum, fyrir ut-
an aðalskrifstofu og þrjár eigin skrif-
stofur erlendis — í Kaupmannahöfn, Leith
og New York. Auk þess eru svo allmarg-
ar undirdeildir, sem lúta beinni yfirstjórn
forstjóra eða framkvæmdastjóranna, með
sérstökum forstöðumönnum, þ. á. m. Skipa-
deild, en SlS á nú 3 hafskip og leigir að
auki mörg flutningaskip. Fastir starfsmenn
SlS eru nú, samkvæmt síðustu tölum,
samtals 741, þar af 554 við iðnað, en 181
við verzlunarstörf ýmiskonar og 6 við
fræðslustörlf, og laun þessa fólks, að ég
ætla, rnn milljónartugur. Heildarvörusala
SÍS nam samkvæmt siðustu tölum 397
millj. kr. þar af aðkeyptar vörur 237 millj.
innl. afurðir 136 millj. og eiginframleiðsla
24 millj króna.
Umfang Sambandsins og hlutdeild í þjóð
arbúskapnum má að öðru leyti marka af
ýmsu og á margan veg. Verksmiðjur þess;
Gefjun og Iðunn eru löngu landskunnar,
og þó sú fyrmefnda í sinni nýju mynd
ekki ennþá svo sem vert væri. Hafa báðar
þessar verksmiðjur haft hina mestu þýð-
ingu, bæði fyrir framleiðendur og neyt-
endur, þótt að sjálfsögðu sitt með hvoru
móti sé. Þriðja verksmiðja SlS á Akureyri
er fataverksmiðjan Hekla, fyrir utan sam-
eignar fyrirtæki þess og KEA; sápuverk-
smiðjuna Sjölfn, kaffibætisgerðina Freyju
og Kaffibrennslu Akureyrar. Dótturfyrir-
tæki SlS í Reykjavík em Dráttarvélar h/f,
sem af sérstaklega tilskildum ástæðum
em reknar í þessu félagsformi til innflutn-
ings á hinum kunnu Fergusondráttarvél-
76
AKRANES