Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 14
38
TlMARIT VFl 1966
t
'Ð 1 'P . zn
5. mynd. Þverskurður skolunarrásar.
rennikrana er annar, sem rennur þvert á hinn
neðra. Með honum má flytja byrðar upp á stíflu
á útskot á henni og setja þær á vagn, sem renn-
ur á stíflusporinu. í viðbyggingu í hinum enda
lokahússins er einnig vinda fyrir strengbraut
þeim megin þrýstivatnsæðanna, en sett nokkru
lægra, því landi hallar þarna meira. 1 jafnhæð
við gólf lokahússins og á efri hæðum þess, er
rýmið notað til verkstæðis, birgðageymslu,
snyrtirúma og vistarveru starfsmanna, auk raf-
búnaðarhúss fyrir lýsingu og hreyfla stífluvél-
anna.
Þrýstivatnsœðarnar. Til þess að komizt verði
af með sem minnsta sprengingu í braut þrýsti-
vatnsæðanna eru þær lagðar í fjórum brautar-
hlutum með 5 æðum í hverri. Lengdir brautar-
hlutanna verða misjafnar, 450 m hin stytzta og
480 m hin lengsta. Þvermál æðanna minnkar í
stigum eftir því sem neðar dregur, frá 3,75 m
efst niður í 2,25 m neðst. Vatnshraðinn verð- i
ur því vaxandi frá 2,2 m/sek up í 6,05 m/sek.
Falltapið er reiknað 3,20 m, að meðtöldu við-
námi í inntaksopum og beygjum, þannig að með
vatnshæð fyrir framan inntaksgáttir 243 m og
vatnsborð í frárennsliskurði 132 m fæst nothæf
fallhæð á hverflana 107,8 m.