Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Blaðsíða 27
TlMARIT VFl 1966
51
Afl og orka
Búrfellsvirkjun er rennslisvirkjun, og er afl
og orkuvinnsla hennar háð nýtanlegri fallhæð
og vatnsmagni því, sem fyrir hendi er hverju
sinni. Fallhæð breytist yfirleitt ekki meir en 2%.
Meðalrennsli í Þjórsá við Búrfell hefur verið
áætlað 338 m3/sek. Þetta er miklu meira vatns-
magn en það, sem 6 hverflar þarfnast, við mesta
álag, þ. e. a. s. 225 m3/sek. Rennslið er ekki háð
miklum breytingum miðað við flestar þær ár,
sem virkjaðar hafa verið víða um heim, en þó
það miklum sveiflum háð, að á vissum tímum
er ekki nægilegt vatnsrennsli til þess að allar
vélasamstæður gangi með fullu álagi. Við slíkar
aðstæður verður nauðsynlegt að reka Búrfells-
stöðina sem toppstöð, og láta aðrar stöðvar í
kerfinu framleiða grunnorkuna, eða grípa til
varastöðva.
Áætlað er að afl og örugg ársorka frá Búr-
fellsvirkjun verði við Geitháls, í meðalári sem
hér segir. Er þá meðtalið það afl, sem reikna
má með að vélar geti afkastað stöðugt umfram
málraun.
Fjöldi véla Afl Örugg ársorka
MW GWh/ári
3 111 900
4 148 1190
5 183 1480
6 220 1720
Virkjun Þjórsár við Búrfell, verður hagað
þannig, að hún haldist í hendur við almenna
orkuþörf og álbræðslu. í fyrsta áfanga er
ráðgert að setja upp 3 vélasamstæður, hverja
með 35 MW afl, eða samtals 105 MW. Orku-
vinnsla hefst, þegar gengið hefur verið frá fyrstu
vélasamstæðu í lok ársins 1968. Áæltað er, að
fyrstu þrjár vélasamstæðurnar verði komnar í
gang í júní 1969 eða um svipað leyti og ál-
bræðslan þarf á fullu afli að halda fyrir fyrri
kerjaröðina (60 MW). 35 MW vélasamstæðu
verður bætt við í öðrum áfanga fyrir mitt ár
1972, en þá er ráðgert að fyrri helmingur síð-
ari kerjaraðar álbræðslunnar taki til starfa og
þarf hann 30 MW. 35 MW vélasamstæða til við-
bótar verður sett upp í þriðja áfanga 1973 til þess
að mæta álagsaukningu almenningsnotkunar á
Suðvesturlandi. Síðasta 35 MW vélasamstæðan
verður svo sett upp áður en seinni helmingur
síðari kerjaraðar álbræðslunnar með 30 MW afl-
þörf tekur til starfa.
Mestur hluti Búrfellsvirkjunar verður byggð-
ur nægilega stór fyrir 6 vélasamstæður í 1.
áfanga. Stöðvarhúsi, uppsetningu véla, búnaðar
og tækja, verður einnig fulllokið, að þrem véla-
samstæðum undanskildum, en þeim verður bætt
við einni á hverju virkjunarstigi. Miðlun úr
Þórisvatni er fyrirhuguð í 2.—3. áfanga. Há-
spennulínum ásamt háspennuvirkjum verður
komið upp þegar í 1. áfanga, en aukningar há-
spennuvirkjanna verða framkvæmdar innan
hvers stigs í samræmi við álag og orkuvinnslu.
8. mynd. Þverskurður í stöðvarhús.