Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 16

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 16
40 TlMARIT VFI 1966 7. mynd. títlitsmynd aflstöðvar. ur, sem veita afli til rennibrauta, verkstæða, lýsingar og dælna, en þær eru einnig hafðar í tvennu lagi til vara. Dælurnar eru fyrir þrýsti- olíu í loka og stilla. Þessar hjálparvélasam- stæður fá rekstrarvatn sitt um greinæðar frá tveimur aðalþrýstiæðunum hvor. Þótt lokað sé fyrir aðra æðina kemur vatnið frá hinni. Hverflanir eru Franeishverflar með tveimur drifhjólum hver, innilukt í sínum lúðri hvort. Sográsin er sett á milli lúðranna. Hverfilás- inn er tengdur við rafalás með ásmíðuðum kraga- tengslum. Hverfilstillarnir nota þrýstiolíu frá olíudæl- um, sem eru reimknúnar frá hverfilásnum og hefir hver hverfill sína dælu. Dælurásirnar eru lagðar í rennur í steypugólfinu og hafa sam- band hver við aðra, með lokum í, þannig að þótt ein dæla sé tekin úr sambandi, má nota þrýsti- olíuna frá sameiginlegri olíuæð, og dælurnar eru nógu styrkar til að geta tekið þetta á sig. Auk þess má fá þrýstiolíu til stillanna frá fyrrnefnd- um lokaolíudælum, því samband er sett á milli kerfanna. Hverfilstillarnir eru og rafrænt stillt- ir, fjarstýrðir frá stjórnborði, þannig að ræsa má og hliðtengja hverja vélasamstæðu þaðan. Til þess að komast hjá skaðlegum þrýstings- hækkunum vatns við snöggt álagshvarf, hefir hver hverfill öryggisloka, sem er í greinæð frá hverfilæðinni ofan við aðrennslið í hverfilinn. Lokinn er hreyfður með þrýstiolíu frá olíu- þrýstikerfi hverfilstillanna. Otrás vatnsins í lokanum er fóðruð stálplötum vegna vatnshrað- ans niður í sográsina. Þegar taka á hverfil úr sambandi, er lokað fyrir vatnið með renniloka og öngloka, sem kom- ið er fyrir í þrýstivatnsæðunum í sérstöku loka- húsi áfast við aflstöðvarhúsið. Önglokana má hreyfa við fullan vatnsþrýsting, en rennilokana aðeins þegar önglokinn hefir létt af þrýstingn- um eða þegar framhjárennsli lokans er opið og forspaðar hverfilsins eru lokaðir, þannig að sami vatnsþrýstingur sé báðum megin á spjaldi renni- lokans. Ef bilun skyldi verða á önglokanum, má nota rennilokann þannig. Báðir lokar eru knúnir með olíuþrýstingi, sem fenginn er úr kerfi hverf- ilstillanna eða frá sérstakri dælusamstæðu, sem komið er fyrir í lokahúsinu. Yfir lokunum er rafknúinn rennikrani til setningar og upptöku lokanna. Frá hverflunum er frárennslisvatninu veitt um sográsir, sem eru steyptar í undirstöður hússins og liggja út undan því í frárennslis- skurð stöðvarinnar. Á þeim hluta rásanna, sem vatnshraðinn er mestur, eru þær fóðraðar stál- plötum, sem hafa kverkjárn áfest inni í steyp- unni þeim til styrktar. Við mynni sográsanna eru steyptar grópir fyrir járnlokur, sem renna má niður og loka fyrir með bokkkrana, er renn- ur á spori yfir rásamynnunum. Til að tæma sog- rásirnar og ná burtu lekavatni er notuð dæla, sem komið er fyrir í gangi yfir sográsunum eft- ir endilöngu. Þar er sameiginleg vatnsæð með grein inn í hverja sográs. Rafálarnir hafa hver sína segulmögnunarvél á ytri enda rafalássins. Rafalarnir eru tilluktir og kældir með lofti, sem segulhjól þeirra soga inn með snúningi sínum. Eru settir spaðar í því skyni utan til á hjólin. Kæliloftið er tekið

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.