Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Blaðsíða 18

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Blaðsíða 18
42 TlMARIT VFl 1966 urskilyrði eru hagstæðust. Fjarlægð þessara staða frá Urriðafossi er 30 km, þótt krækt sé um umferðamiðstöðina Selfoss, sem sennilegt er að gert verði. Landið er flatt og járnbrautar- lagning verður þarna ódýr og fljótgerð. Ef bíða ætti eftir lagningu járnbrautar til Reykjavíkur, til að koma upp virkjununum, yrði það til mik- illa óþæginda og tafa. Þess vegna er þessi styttri brautarlagning og umbætur á nefndum höfnum nauðsynleg. Og þessa braut geta allar virkjanir í Þjórsá notað. Þótt þessi járnbraut sé lögð vegna virkjan- anna ætti ekki að vera þörf á að lagning hennar til Reykjavíkur yrði kostuð af þeim, heldur af iðnaðinum, sem þar verður komið upp. Deildarstjóri norsku ríkisjárnbrautanna, O. Berner, hefir gert áætlun um kostnað við járn- braut frá Eyrabakka um Selfoss að Þjórsárbrú 30 km og áfram upp með Þjórsá til aflstöðv- anna þar. Áætluð sporvídd er 1,06 m (venjulegt norskt mjóspor), teinaþungi 18 kg og sömu kröf- ur um halla og hugsað hefir verið á járnbraut- inni til Reykjavíkur, þannig að orðið geti sam- starf beggja þessara brauta. Lengd brautarinn- ar frá Þjórsárbrú upp til Búrfells með stuttum hliðarbrautum til aflstöðvanna er 63 km. Þá eru 32 km áfram að Tungnaárvirkjun. Þetta er áætlað á samtals 3.909.000 kr. Þar við bætast hafnar- bætur við Eyrabakka á 491.000 kr. Samtals 4,4 millj. kr. Orkuflutningurinn. Ráðgert er að nota 110 kv spennu á öllum línum. Spennutapið er áætlað 8—14%, að meðaltali 10%, og orkutapið 6—9%, að meðaltali 7,5%. 1 taugar eru notaðir 70 og 95 mm2 eirstrengir, lagðir á stálstólpa með 200 m hafi og með 15 m bili milli stólparaða. Hver stólparöð er gerð fyrir tvöfalda línu. Á 1 km bili og í öllum hornum línanna eru fastastólpar, en að öðru leyti sterkir burðarstólpar. Frá Búrfellsvirkjun einni eru hugsaðar 6 stólparaðir við fyrsta virkjunarstig með tvö- földum línum, þ. e. 6 x 70 mm2 eirstrengjum. Við fullvirkjun þarf 4 slíkar raðir til viðbótar. Línukostnaðurinn er áætlaður 16000 kr. á km með einfaldri línu 3x70 mm2, en 29000 kr. á km með tvöfaldri línu 6 x 70 mm2. Nokkrar afspennistöðvar verða byggðar við Reykjavík með 10.000 volta eftirspennu. Þær eru ekki hliðtengdar í rekstri, en tengja má þær saman, ef þarf til vara. Gert er ráð fyrir að nota 3 einfasa spenna saman sem þrífasa ein- ingu með 22000 KVA afli, alls 12 spenna, og auk þess einn til vara fyrir þá alla. Þetta er sam- tals 264000 KVA eða 284.000 rafhestöfl (210.000 kw) í afspennistöð af 317.200 rafhestöflum í aflstöð. Stofnkostnaöur virkjunarinnar er sundurliðað- ur í skýrslunni, en niðurstöðutölurnar eða heildar- kostnaður við fyrsta virkjunarstig er 63 millj. kr. með áspenningu við aflstöð og við fullvirkj- un 75 millj. kr. Allur kostnaður er miðaður við verðlagið á fyrra hluta árs 1914 að viðbættum 50%. Við þennan virkjunarkostnað bætist orku- flutningurinn til Reykjavíkur og afspenning í 10 kv. Er það 23,1 millj. kr. við 1. virkjunarstig og 38, 4 millj. kr. við fullvirkjun. Hér er hlutdeild virkjunarinnar í járnbrautarkostnaði, hafnar- bótum og miðlunarvirkjun meðtalin í virkjunar- kostnaði. Verður þá heildarkostnaður við 1. virkjunarstig 86,1 millj kr. og við fullvirkjun 113,4 millj. kr. Þetta er kostnaður án vatns- og landréttinda. Að lokum er reiknaður út árlegur aflkostnaöur frá rafölum og við Reykjavík, hvort tveggja á 10 KV spennu og í einingunni rafhestafl (0,736 kw.) Við 1. virkjunarstig: Við aflstöð kr. 18,30 (24,80 á kw). Við 1. virkjunarstig: Við Reykjavík kr. 30,30 (41,00 ákw). Við fullvirkjun: Við aflstöð 7 mán. afl. kr. 12,60 (17,00 á kw). Meðalárshestafl kr. 15,20 (20,60 á kw). Við Reykjavík kr. 29,00 (39,20 á kw). Eftirmáli. Síðan þessi áætlun var gerð, hafa orðið miklar tæknilegar framfarir, sem einkum lýsa sér á þessu sviði í því, að vélaeiningarnar eru orðnar miklu stærri. Vatnshverflar á lóð- réttum ásum eru nú orðið einráðir við stórar vélar. Hafa þeir verið byggðir fyrir 150.000 hestöfl á einu hjóli og jafnvel þar yfir hin síð- ustu ár. En við Búrfellsvirkjunina voru hugsuð tvö hjól á láréttum ási í hverri samstæðu eða 13.750 hestöfl á hjól. Stíflulokur eru og breyttar, hólklokur eru ekki notaðar lengur, en virðast hafa verið uppáhald á þeim tíma í flóðgáttir. Hið margfalda öryggi með tvöföldum lokum og dælum á mörgum stöðum hefir reynzt kostnað- arsamt og flókið í rekstri. Hefir hvert tæki sjálft verið gert svo traust að spara má vara- tæki að miklum mun. Sérstakar hjálparvélasam- stæður eru sjaldan settar upp til varanlegs rekstrar enda raforkan víða tiltækileg nú orðið. Við orkuflutninginn myndi nú vera notuð hærri spenna, gildari taugar og færri stólparaðir, en þó ekki færri en svo, að varalínur séu tiltækar til viðgerða og eftirlits.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.