Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 20

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 20
44 TÍMARIT VPl 1966 1. mynd. Isskrið í Þjórsá við Búrfell. ar kæliflöt árinnar og þar með ísmagnið. Hin breytilega íslenzka veðrátta veldur því, að þessi ísbrynja fær sjaldan að standa lengi. Stór hluti árinnar er þess vegna oftast óvarinn fyrir frosti og vindum. Ismyndunin er mest þegar norðan rok með hörkufrosti skellur á ána auða. Is myndast þá hvar sem vatn er að finna. 1 hverjum læk og í hverri á safnast ís fyrir í farveginum í mis- munandi myndum, og víða myndast stærri og smærri ísstíflur. Þessi ummyndun vatns í ís, sem að nokkru leyti verður eftir í farveginum, ásamt vatnssöfnun bak við ísstíflur, veldur því, að rennslið minnkað verulega. Á sama tíma er mikið ísskrið í ánni. Þó frost haldist, kemst rennslið í eðlilegt horf strax og jafnvægi hefur myndazt í ánni. Jafnframt minnkar ísskriðið vegna minnkunnar á kælifleti árinnar. Ástandið er því verst fyrstu einn eða tvo dagana eftir veðrabrigðin. Þær áætlanir og athuganir, sem gerðar hafa verið á krapamagninu, benda til þess að það geti orðið allt að 15 t/sek af hrein- um ís. Þetta mundi jafngilda 40—50 m3/sek af lauspökkuðum ískrapa. Þegar þess er gætt að ísskriðið er hvað mest á sama tíma og rennslið er lítið, er hægt að gera sér grein fyrir þeim tæknilegu erfiðleikum sem við er að etja. Á nokkrum stöðum í Þjórsá safnast ísinn fyrir og myndar stóra ísbunka. Þekktustu staðirnir eru neðan við Urriðafoss og neðan við Búrfell. Geysimikið magn safnast fyrir á báðum þessum stöðum. Athuganir á síðustu árum sýna að rúm- mál ísbunkans neðan við Búrfell getur skipt tug- um milljóna teningsmetra. Búrfellssvœðið Norðan og austan við Búrfell rennur Þjórsá á hrauni í breiðum en grunnmn farvegi, unz hún fellur í fossinum Tröllkonuhlaupi í gljúfur, sem mynda sveig um suðurenda Búrfells. 1 þeim rennur áin um flúðir og fossa og er Þjófafoss þeirra mestur. Skammt fyrir neðan hann kemur áin úr gljúfrunum vestan Búrfells, breiðir úr sér til vesturs, en rennur þvínæst til suðvest- urs, með sem næst sömu stefnu og frá upp- tökum. Á leið sinni um Búrfell fellur Þjórsá um 120 m. Mynd 2 er loftmynd af Búrfellssvæðinu. Búrfellssvæðið er mjög fjölbreytilegt að jarð- myndunum. Milli Búrfells og Sauðafellsöldu hafa sjö Þjórsárhraun runnið, en milli hraun- laganna eru misþykk lög af vikri og sandi. Ytri- Rangá, sem á upptök sín á þessu svæði, renn- ur milli Sauðafellsöldu og Þjórsárhrauna að austanverðu, en Bjarnalækur milli Búrfells og hraunanna að vestan. Ofan við Tröllkonuhlaup rennur Þjórsá miðsvæðis á efsta hraunlaginu, og er vatnsborð hennar þar talsvert hærra en ánna til beggja handa. Fossinn brýtur ánni far- veg niður úr fyrsta hraunlaginu. Við Þjófafoss fellur áin fram af þriðja hraunlaginu og í gegn- um það og fjórða hraunlagið. Hraunin eru yngstu jarðmyndanir við Búrfell, en áður en

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.